Morgunblaðið - 30.07.2012, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2012
www.kemi.is • Sími: 544 5466 • Tunguhálsi 10 , 110 Reykjavík
UMHVERFISVÆNT BÆTIEFNI FYRIR ELDSNEYTI
ALLT AÐ 20%
ELDSNEYTISSPARNAÐUR
YFIR 50%
MINNI MENGUN
BYLTING!
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Útlit er fyrir mjög góða uppskeru á
korni til fóðurframleiðslu og repju
og nepju til olíuframleiðslu. Ef ekki
verða áföll vegna veðurs í haust
munu bændur sem hafa verið með
tilraunaræktun á repju ná töluverðu
fræi í hús og þurfa að hugsa ráð til
að vinna olíu úr hráefninu.
„Þetta er einstakt sumar, ég hef
varla upplifað aðra eins gósentíð.
Hér hafa ekki verið nein vandræði
með þurrka, við höfum fengið fjalla-
skúrir annað slagið sem hafa vökvað
akrana nánast eftir pöntun,“ segir
Ólafur Eggertsson, bóndi á Þor-
valdseyri og formaður Lands-
sambands kornbænda. Hann segir
að hagstæð veðrátta gefi vonir um
að korn- og repjuuppskera verði
með besta móti í haust.
Árangur erfiðisins
Varðandi kornið segist Ólafur
hafa heyrt um þurrkskemmdir á
hörðu landi, en útlitið sé gott í heild-
ina. „Það er gríðarlega verðmætt, nú
þegar verð á korni fer hækkandi á
heimsmarkaðsverði,“ segir Ólafur.
Haraldur Magnússon, kornbóndi í
Belgsholti í Borgarfirði, hefur sömu
sögu að segja um byggræktunina og
bætir því við að hveitið líti einnig vel
út.
Ólafur og Haraldur eru í hópi
þeirra bænda sem hófu tilraunir
með ræktun á repju og nepju til olíu-
framleiðslu fyrir hvatningu Jóns
Bernódussonar, verkfræðings hjá
Siglingastofnun. Á ýmsu hefur
gengið í ræktuninni enda verið að
gera tilraunir með afbrigði, sáning-
artíma og fleira. Nú lítur út fyrir að
þessar tilraunir séu að skila árangri.
Útlit er fyrir góða uppskeru.
„Mér sýnist að þetta ár muni
svara ýmsum spurningum um það
hvað repjan getur gert hér á landi.
Þegar menn verða komnir með fræ-
in í hús í haust og sjá hverju þetta
skilar er komið að þeim tímapunkti
að menn þurfi að koma sér upp ein-
hverjum búnaði til að vinna olíuna úr
fræjunum. Slíkur búnaður er ekki til
hér nema í heimilisútgáfu,“ segir
Ólafur um framhaldið. Þessar vélar
eru dýrar og þarf samvinnu um
kaupin.
Ljósmynd/Ólafur Eggertsson
Repjuakur Akrar bænda eru fallegir þegar repjan stendur í blóma um mitt sumar og gleðja augu ferðafólks.
Útlit fyrir mikla korn-
og repjuuppskeru
Þarf að huga að tækjabúnaði til að vinna olíu úr fræinu
Afurðir íslensku kornræktarinnar
fara aðallega í kjarnfóður fyrir
nautgripi. Nokkuð er þó orðið um
að bygg og hveiti sé notað í brauð
og til bruggunar. Nú hefur bæst við
matarolía úr repjuolíu.
Ólafur Eggertsson, bóndi á Þor-
valdseyri, er með tæki til að pressa
olíu úr repjufræjum. Hefur hann
notað olíuna á dráttarvélar og
ýmsa tilraunastarfsemi. Með því að
vinna olíuna til manneldis og tappa
á flöskur aukast verðmæti
hráefnisins.
Matarolían var sett á markað í
síðasta mánuði og segir Ólafur að
henni hafi verið vel tekið. „Ég sel
hana eingöngu í gestastofunni hér
á Þorvaldseyri. Þegar ég fæ meira
fræ get ég framleitt meira og mun
dreifa henni víðar,“ segir Ólafur.
Hann segir að repjurækt sé mjög
áhugaverð viðbót í íslenskum land-
búnaði. Sér hann fyrir sér að hægt
verði að stórauka ræktunina og
hefja framleiðslu á lífdísil sem elds-
neyti. „Það er nóg til af ræktunar-
landi á Íslandi sem taka mætti
undir repjuræktun. Það takmarkar
ekki ræktun á plöntun til matvæla-
framleiðslu og hægt að nota repju
sem skiptiræktun við korn og gras
og bæta þannig jarðveginn,“ segir
Ólafur sem hefur tekið þátt í repju-
tilrauninni frá upphafi og náð góð-
um árangri.
Matarolía úr repju
seld í gestastofu á
Þorvaldseyri
Íslenskt korn og repja í ýmsum
vörum á matvælamarkaði
Repja Matarolía beint af akrinum á
Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hækkandi heimsmarkaðsverð á
korni mun hafa áhrif hér á landi á
næstu vikum og mánuðum. Hráefni í
fóður til framleiðslu á mjólk, eggjum
og ýmsum kjöttegundum mun
hækka. Það mun væntanlega leiða til
verðhækkana á kjöti og öðrum af-
urðum eða erfiðleika í rekstri búa.
Hækkun heimsmarkaðsverðs á
maís, sojabaunum og fleiri hráefnum
er rakin til mikilla þurrka og upp-
skerubrests í miðríkjum Bandaríkj-
anna. Við það bætist að nú er útlit
fyrir lélega uppskeru í Rússlandi af
sömu sökum. Rússar framleiða mik-
ið af hveiti og má því búast við hækk-
unum á hveiti og fleiri korntegund-
um þegar nær líður uppskeru.
„Þetta mun leiða til hækkunar á
framleiðslukostnaði ýmissa bús-
afurða,“ segir Hörður Harðarson,
formaður Svínaræktarfélags Ís-
lands, um áhrifin hér á landi. Hann
segir að fóðurverð muni væntanlega
stórhækka en það komi fram með
mismunandi hætti hjá búgreinunum.
Tóm svínahús
Áhrifanna er þegar byrjað að
gæta hjá framleiðendum í nágranna-
löndunum. Þannig sjá danskir svína-
bændur afrakstur erfiðis síns hverfa
eins og dögg fyrir sólu og eru farnir
að gera ráðstafanir til að verja sig.
Dæmi eru um að framleiðendur
slátri bústofninum og láti húsin
standa tóm, vegna þess að þeir hafa
ekki efni á að kaupa dýrt fóður. Það
hefur keðjuverkandi áhrif í
greininni.
„Það segir sig sjálft að þetta mun
leiða til aukins kostnaðar við fram-
leiðslu á mjólkurafurðum, eggjum og
kjötafurðum. Ef markaðurinn getur
ekki borið aukinn framleiðslukostn-
að stendur framleiðslan ekki undir
sér og menn verða að hætta,“ segir
Hörður um áhrifin á markaði hér.
Eigin kornrækt er ljósið í myrkr-
inu hjá norrænum svínaræktendum.
Verðmæti kornsins aukist með
hækkandi heimsmarkaðsverði og
þeir geta haldið sjó. Hörður nefnir að
svínaræktin í Noregi sé stærsti not-
andi korns sem þar er ræktað. „Auð-
velt er að koma upp svipuðu fyrir-
komulagi hér og auka ræktun á korni
til framleiðslu á íslensku svínakjöti.
Þetta er augljóst sóknarfæri sem
því miður hefur ekki verið sam-
staða um að nýta,“ segir Hörður.
Hér er styrkjakerfið miðað við
þarfir meðal kúabús og því lítill
hvati til að framleiða korn í stærri
stíl, eins og í nágrannalöndunum.
Hörður telur ekki raunhæft að
reikna með að hægt sé að stunda
kornrækt án opinberra styrkja.
„Við erum í öllum tilvikum að
keppa við innflutta framleiðslu
sem hefur notið styrkja,“ segir
Hörður.
Skilar sér í verðlag hér
Hækkun heimsmarkaðsverðs á fóðurhráefnum leiðir til aukins framleiðslu-
kostnaðar íslenskra matvæla Búast má við hækkun á mjólkur- og kjötafurðum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Bóndi Hörður Harðarson vill stór-
auka ræktun á fóðurkorni hér.
„Mér sýnist þetta ætla að verða með bestu árum hjá mér. Ég skrifa það
svolítið á þá aðferð við sáningu sem ég tók upp í vor,“ segir Haraldur
Magnússon í Belgsholti. Hann vísar til þess að hann hafi sáð nánast beint
í plógförin og valtað fljótt yfir.
„Þetta er mjög mikilvægt í þurru vori. Fræin ná strax í jarðrakann og
byrja að spíra,“ segir Haraldur. Hann segist hafa áþreifanlegan saman-
burð á sínu landi. Hann hafi sáð sömu afbrigðum í stykki sem voru orðin
skraufþurr og þaðan sé ekki von um mikla uppskeru, öfugt við plönturnar
sem fengu rakann.
Sáð beint í plógförin
MEÐ BESTU KORNRÆKTARÁRUM Í BELGSHOLTI
„Ég vona að það fari meira
í bjórinn,“ segir Har-
aldur Magnússon í
Belgsholti um aukna
kornuppskeru.
Ölið Snorri sem Borg
brugghús bruggar er
eingöngu úr íslensku
byggi, ættuðu frá
Belgsholti og krydd-
aður með alíslensku,
lífrænu blóðbergi.
Snorri er eingöngu
seldur í Fríhöfninni á
Keflavíkurflugvelli til
að byrja með. „Mér
finnst hann góður,“
segir Haraldur og
vonast til að hægt
verði að fá hann víð-
ar á næstu mán-
uðum.
ÞJÓÐLEGUR BJÓR
Eingöngu úr
íslensku
byggi