Morgunblaðið - 30.07.2012, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2012
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Setningarathöfn Ólympíuleikanna
vekur ávallt mikla athygli og er
mikil eftirvænting eftir henni og
reyna gestgjafar leikanna að
toppa þá sem á undan voru. Að
þessu sinni stýrði leikstjórinn
Danny Boyle opnunarhátíðinni og
gerði hann það með glæsibrag og
kom hver stórstjarnan á fætur
annarri fram í stórkostlegu sjón-
arspili ljósa og lista. Hugmynd
Boyles var að sýna sögu og sér-
kenni Englands og fékk hann til
m.a. til liðs við sig starfsfólk
breska heilbrigðiskerfisins en
dansandi hjúkrunarfræðingar og
læknar voru raunverulegir læknar
og hjúkrunarfræðingar.
Í höndum leikstjórans
Valið á Boyle til að setja upp og
stýra opnunaratriði leikanna kom
mörgum á óvart þrátt fyrir glæsi-
lega feril hans sem leikstjóra en
hann hefur gert myndir á borð við
Slumdog Millionaire, sem vann til
átta óskarsverðlauna, 127 Hour,
28 Days Later... og Trainspotting.
Það sýndi sig á opnunarhátíðinni
að réttur maður var valinn til
verksins. Sjálfur segist Boyle hafa
tekið að sér verkefnið fyrir föður
sinn sem var mikill áhugamaður
um Ólympíuleikanna. Faðir Danny
Boyles dó fyrir 18 mánuðum en
hann hefði átt afmæli daginn fyrir
setningarathöfnina. Boyle sagði
eftir setningarathöfnina að hún
væri í hans huga til heiðurs föður
sínum sem elskaði og dáði Ólymp-
íuleikana og andann og upplif-
unina í kringum þá.
Setningarathöfn Ólym-
píuleikanna slær í gegn
Leikstjórinn Danny Boyle þykir hafa unnið stórvirki með
uppsetningu setningarathafnar leikanna
AFP
Ólympíuleikar Opnunarhátíð leikanna var hin glæsilegasta og hefur hún vakið mikla athygli um allan heim.
Komi til þess að Ísrael geri loftárásir
eða á einhvern annan hátt ráðist
gegn kjarnorkuráætlun Írans mun
Mitt Romney, forsetaefni Repúblik-
anaflokksins, veita Ísrael fullan
stuðning verði hann kjörinn forseti
Bandaríkjanna. „Ísrael verður að
hafa þann möguleika að geta stöðvað
Íran í þeirri viðleitni sinni að eignast
kjarnorkuvopn,“ sagði Mitt Romney
á ferð sinni um Ísrael. Dan Senor,
einn helsti ráðgjafi Romney í utan-
ríkismálum, lét hafa eftir sér við fjöl-
miðla í Ísrael að ekki mætti útiloka
aðgerðir af hálfu Bandaríkjanna
sjálfra, m.a. hernaðarlegar aðgerðir
gegn Íran.
Viðbrögð frá framboði Obama við
mögulegri kjarnorkuógn Írans er
öllu hófstilltari en þar á bæ segja
menn að Ísrael hafi fullan rétt á því
að verja sig og hagsmuni sína en um
leið hefur Obama sjálfur hvatt Ísrael
að beita ekki hernaði gegn Íran held-
ur leita fyrst allra annarra leiða.
Þrátt fyrir það hefur Obama ekki
viljað útiloka að Bandaríkin beiti
hervaldi gegn Íran.
Verði Mitt Romney forseti Banda-
ríkjanna er víst að það mun styrkja
til muna samband Ísraels og Banda-
ríkjanna enda persónulegt samband
Benjamins Netanyahu, forsætisráð-
herra Ísraels, og Mitt Romney mjög
gott. Þeir hafa þekkst lengi og vin-
átta þeirra verið góð að sögn Ben-
jamins Netanyahu.
vilhjalmur@mbl.is
AFP
Stuðningur Mitt Romney vill bæta samskipti Bandaríkjanna og Ísraels.
Romney styður
Ísraela gegn Íran
Hernaðaraðgerðir ekki útilokaðar
Stjórnvöld í
Norður-Kóreu
hafa gefið skýra
yfirlýsingu þess
efnis til stjórn-
valda í Suður-
Kóreu að þau
ættu ekki að bú-
ast við breyttum
áherslum í sam-
skiptum
ríkjanna undir forustu Kim Jong-
un. Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa
bundið vonir við að Kim Jong-un
muni í stjórnartíð sinni draga úr
spennu milli ríkjanna tveggja á
Kóreuskaganum. Þá binda Vest-
urlönd vonir við breytingar í
Norður-Kóreu sjálfri í frjálsræð-
isátt.
Engu breytt í
Norður-Kóreu
Kim Jong-un
Angela Merkel,
kanslari þýska-
lands, og Mario
Monti, forsætis-
ráðherra Ítalíu,
ræddu saman um
vandamál evru-
svæðisins á laug-
ardaginn. Þau
eru bæði sam-
mála um að ríkin
verði að beita öllum tiltækum ráð-
um til að bjarga evrunni og evru-
svæðinu. Lántökukostnaður Ítalíu
og Spánar hefur verið allt of hár og
fá ráð hafa dugað til að lækka
hann.
Evrusvæðinu
verði bjargað
Angela Merkel
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands,
ásakaði um helgina Sádi-Arabíu,
Katar og Tyrkland um óeðlileg af-
skipti af innanríkismálum Sýr-
lands. Ásakanirnar koma í kjölfar-
ið á hörðum bardögum í borginni
Aleppo en skriðdrekar og fall-
byssur stjórnarhersins létu skotin
dynja á borginni um helgina.
Walid al-Moallem, utanríkis-
ráðherra Sýrlands, tók undir orð
forsetans í heimsókn sinni í Íran.
Þar lét hann sjálfur þau orð falla
að um samsæri væri að ræða af
hálfu súnni-múslimaríkja og beindi
þá spjótum sínum sérstaklega að
Sádi-Arabíu, Katar og Tyrklandi.
Hann sakaði
þessi ríki um að
vinna með Ísr-
aelum að falli og
eyðileggingu
Sýrlands. Mikil
átök hafa staðið
um Aleppo um
helgina og sagði
al-Moallem að
stjórnarherinn
væri í mikilli
sókn í borginni og að uppreisn-
armenn yrðu hraktir frá henni.
Frá því að átök hófust í landinu er
talið að meira en 30 þúsund
manns hafi týnt lífi.
Kennir Ísrael og
Sádi-Arabíu um
Bashars
al-Assads
Ebólu-vírusinn
hefur dregið 14
manns til dauða í
vesturhluta Úg-
anda það sem af
er þessum mán-
uði. Sjúkdómur-
inn hefur valdið
töluverðum ótta
meðal íbúa á
svæðum og fjöldi
fólks hefur flúið heimili sín vegna
ótta um smit.
Að sögn Alþjóða heilbrigðis-
málastofnunarinnar (AHS) er um
faraldur að ræða. Stjórnvöld í Úg-
anda vinna nú með starfsmönnum
Alþjóða heilbrigðismálastofnunar-
innar að því að stöðva útbreiðslu
sjúkdómsins. Vírusinn er mjög smit-
andi og hættulegur en flestir sem
smitast af honum deyja. National
Microbiology Laboratory í Winnipeg
hefur verið að þróa lækningu við
vírusnum sem lofa góðu en prófanir
eru skammt komnar á henni.
Ebólu-faraldur staðfestur í
Vestur-Úganda af AHS
Ebólu-faraldur.