Morgunblaðið - 02.08.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.08.2012, Blaðsíða 10
María Ólafsdóttir maria@mbl.is V inkonurnar Ingibjörg Þóra Gestsdóttir og Kristín Unnur Þór- arinsdóttir, eða Inga og Stína eins og þær kalla sig, hanna saman teppapeysu undir nafninu Koffort. Inga er útskrif- aður fatahönnuður frá Danmörku. Hún vann um tíma hjá saumastofu sjónvarpsins og var í hönn- unarteymi fyrirtækisins Pells og purpura. Stína hefur starfað sem flugfreyja hjá Icelandair í 16 ár og kviknaði hugmyndin að teppapeys- unni í 40 þúsund fetum yfir Atlants- hafinu. Breytt á einfaldan hátt „Farþegarnir reyndu að hafa það notalegt undir þunnum teppum að næturlagi og vaknaði þá sú hug- mynd að sniðugt væri að sameina hlýja peysu og teppi í eitt. Ég er mikil áhugamanneska um fallega hönnun sem þjónar tilgangi. Ég ákvað að draga Ingu vinkonu mina með mér í þetta verkefni enda er hún mjög fær fatahönnuður. Ég hefði ekki getað valið betri mann- eskju með mér í þetta ferðalag. Þetta er búinn að vera mjög góður skóli og mikil en skemmtileg vinna og við erum alltaf að læra eitthvað nýtt,“ segir Stína. Teppapeysan er með ermum og hettu og lokast neðst þannig að poki myndast fyrir fæturna. Henni má breyta í peysu á einfaldan hátt með því að nota lykkjurnar neðst á pokanum og smeygja þeim upp á tölur úr kindahorni sem eru á peys- unni innanverðri. Síðan er hægt að rúlla allri teppapeysunni upp inn í hettuna og breyta í kodda. Hún vegur tæpt kíló. Smart á ferðalögum „Hugmyndin er að vera smart á ferðalögum í fallegri og góðri lopapeysu sem og dags daglega,“ segir Stína og bætir við í léttum dúr að í raun séu það mannréttindi að eiga slíka peysu og hún geti örugglega bjargað mannslífum í brekkusöngnum,“ segir Stína. Þær stallsystur taka það sér- staklega fram að öll umgjörðin í kringum teppapeysuna sé íslensk; hugmyndin, efnisvalið og vinnan, en flíkin er úr vélprjónaðri íslenskri ull frá Glófa og síðan saumuð og unnin af þeim sjálfum, en það gera þær í frítíma sínum og hafa gaman af. Þær framleiða einnig jóga- teppapeysur úr hvítri ull og er hett- an á henni fóðruð með lífrænni bómull. Hún hentar sérlega vel í útijóga. Einnig hafa þær síðastliðið ár framleitt ungbarnateppapeysur í tveimur stærðum, 0-1 árs og 1-3 ára. Hettan á þeim er líka fóðruð með lífrænni bómull og einnig hægt að breyta þeim í kodda líkt og stóru peysunum. Þá má hengja teppið upp á tölur úr íslensku völubeini og breyta í peysu á þeirri stærri, 1-3 ára. Gert er ráð fyrir að hægt sé að Alíslensk og hlý teppapeysa Í útilegu er notalegt að geta sveipað um sig einhverju hlýju og notalegu. Teppapeysan frá Kofforti sameinar eiginleika teppis og peysu og fæst bæði fyrir börn og fullorðna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Falleg Teppapeysa fyrir yngstu kynslóðina í blönduðum lit. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2012 Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík | sími 568 2870 | www.friendtex.is OPNUNARTÍMI mánudag - föstudag 11:00-18:00 LOKAÐ á laugardögum ÚTSALA 40% 50% 60% 70% Ný frábær tilboð Kíktu, það borgar sig Þær eru margar aðferðirnar við að svala sér í hitanum sem gleður okkur þessa dagana, en ein þeirra er að búa sér til dásamlegt ískaffi. Það er ekki leiðinlegt að koma í heimsókn í garð- inn til einhvers og vera boðið upp á slíkt gómsæti, svo nú er um að gera að æfa sig. Þá er tilvalið að fara inn á ofangreinda vefsíðu, sheknows.com, og prófa einhverjar af þeim upp- skriftum að ískaffi sem þar er að finna. Ekki vilja allir hafa sitt ískaffi eins, sumir vilja hafa það einfalt, sterkt kaffi með ísmolum. Aðrir vilja hafa það sætt og orkumikið, til dæm- is með bragðbætandi sírópi og/eða þeyttum rjóma. Súkkulaðiflögur gera líka gæfumuninn með útlitið en í ís- kaffi eins og öðru sem for ofan í okk- ur skiptir hið sjónræna miklu máli. Svo getur hver og einn prófað sig áfram og um að gera að láta vaða og gera eitthvað óvenjulegt. Vefsíðan www.sheknows.com/food-and-recipes Ískaffi Súkkulaðiflögur á rjómann gera gæfumuninn fyrir útlit drykksins. Svalandi ískaffi í hitanum Helgin framundan er jú ein mesta ferðahelgi sumarsins og úr mörgu að moða. Sumir hafa fyrir löngu ákveðið hvert þeir ætla að fara en aðrir fá val- kvíða. Vert er að minna á dásemdir Norðurlandsins, en þar verður margt um að vera. Á Akureyri verður fjöl- skylduhátíðin Ein með öllu og þar verður mikið um dýrðir, útitónleikar með heitasta tónlistarfólki landsins, Dynheimaball og flugeldasýning svo fátt eitt sé nefnt. Á Siglufirði verður hið árlega Síldarævintýri og um að gera að heimsækja þennan frábæra bæ sem iðar af lífi um helgina. Svo eru ótalmargt fleira á Norðurlandi. Endilega … … njótið Norð- urlandsins Ljósmynd/Þórhallur Mannfögnuður Njótum helgarinnar. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Séra Matthías setti sterkansvip á bæjarlífið á sínumtíma. Davíð Stefánssonsagði að það hefði verið eins og að mæta fjalli að mæta honum á götu, og þá ekki fyrir það að hann væri stór og feitur, heldur vegna þess hversu persónuleikinn var stór og útgeislunin mikil,“ segir Gísli Sigurgeirsson sagnaþulur, sem ætlar að leiða fimmtudags- gönguna í kvöld á Akureyri og fræða göngugesti um skáldið og mannvininn Matthías Jochumsson. Gengið verður frá Minjasafns- kirkjunni á Akureyri, þar sem Matthías steig sín fyrstu spor á Akureyri, og að Sigurhæðum, þar sem Matthías bjó síðustu æviárin. Gangan tekur um klukkustund og er þátttakendum að kostn- aðarlausu. „Matthías er Breiðfirðingur, fæddur á Skógum við Þorskafjörð. Hann vígðist þrítugur prestur að Móum á Kjalarnesi og seinna var hann með blaðaútgáfu í Reykjavík og gaf út Þjóðólf sem var einhvers konar Morgunblað þess tíma. Síðan var hann í sex ár prestur í Odda á Rangárvöllum, en flytur að lokum hingað til Akureyrar í lok nítjándu aldar, árið 1887. Hann bjó hér til æviloka en hann lést árið 1920, viku eftir að hann hafði verið gerður að fyrsta heiðursborgara Akureyrar,“ segir Gísli og bætir við að Matthías segi í minningum sínum að Akur- eyringar hafi tekið honum heldur fálega í byrjun. „Hann var fátækur prestur með stóran barnahóp og hann hafði á tilfinningunni að Ak- Að mæta Matthíasi var eins og að mæta fjalli Skáldaganga í kvöld á Akureyri Matthías Hann var húmanisti, opinn og fljótur að kynnast fólki. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.