Morgunblaðið - 02.08.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2012
Sjáðu
Við erum flutt
Sjáðu, Hverfisgötu 52, 101 Reykjavík
Sími: 561-0075 - sjadu.is
Samskip lýstu því yfir við Sjó-
mannafélag Íslands í fyrrinótt að
séð yrði til þess að íslenskir sjó-
menn yrðu ráðnir í hásetastöður á
Helgafelli og erlendir hásetar sem
nú eru um borð verði farnir úr
skipsrúmi eigi síðar en þegar skipið
kemur til Reykjavíkur úr næstu
ferð. Sjómannafélagið aflýsti í kjöl-
far þess banni við losun og lestun
skipsins á Grundartanga svo og
lestun og losun Arnarfells í Rotter-
dam.
„Á þessum árstíma hafa íslensk
fyrirtæki gjarnan þurft að ráða er-
lenda starfsmenn vegna þenslu á
vinnumarkaði. Ekki fæst fólk til
starfa,“ segir Anna Guðný Aradótt-
ir, markaðsstjóri Samskipa. Hún
bendir á að sama eigi við um Sam-
skip og fyrirtæki í mörgum öðrum
atvinnugreinum, ekki hafi fengist
fólk með sérþekkingu á þessum
tíma. Hún segir að reynt verði til
hins ýtrasta að fá hæft fólk hér-
lendis til starfa þegar skipið kemur
aftur til Reykjavíkur.
Helgafell sigldi frá Grundar-
tanga til Reykjavíkur í fyrrinótt og
heldur í dag áfram til Evrópu í
hálfsmánaðarlanga áætlunarferð.
Sjómannafélagið hefur haldið því
fram að tveir erlendir hásetar, sem
deilan snýst um, hafi aðeins um
fimmtung þeirra launa sem kjara-
samningar hér á landi kveða á um.
Jónas Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélagsins, vísar til ráðning-
arsamninga mannanna sem hann
segist hafa afrit af. Anna Guðný
segir að fullyrðing Sjómanna-
félagsins um laun hásetanna sé al-
röng en segist ekki geta tjáð sig um
launamál starfsfólks. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Bann Ekki var unnið við Helgafell á meðan málin voru rædd við útgerðina.
Íslenskir sjómenn
fá hásetastöðurnar