Helgafell - 01.12.1954, Qupperneq 37
NUTÍMALIST A NORÐURLÖNDUM
35
sama leyti gerast fyrstu tilraunimar
til að hressa við höggmyndaiistina.
Prá þessum hópi hugrakkra lista-
manna var það — eins og átti'sér stað
um allan heim, ýmist á undan eða
eftir — sem listamenn næstu kyn-
slóðar fengu sitt veganesti, svo sem
Börje, en eftir hann vil ég benda á
verkið M álarinn í garðinum, vel
byggt upp og þykkt smurt. Kylberg
er meðal hinna merkustu málara á
Norðurlöndum, túlkar viðfangsefnin
í þokukenndum lofthjúp heitra lita
(sjá Bið); Hjerten sýnir Dufy mikla
hollustu og tjáir hana hreinskilnis-
lega með fjöri og ferskleik. Erikson
málar kofaraðir með fjöri og hug-
kvæmni, í sterkum litum, og minnir
oft um viðfangsefni á Omiccioli okk-
ar (en hvers vegna, með svo góðum
túlkunarhæfileikum, að koma óvænt
með myndir, sem eru jafn mikið út
í hött eins og Vindmaðurinn og þrum-
an?). Evert Landquist meitlar næst-
um því pensildrættina á léreftið, svo
þykkt smyr hann á, en þó er allt með
ráði gert og glöggu auga. Og Hilding
Linnquist sýnir næmleik í Litla garð-
inum, endurlífgar hann beð fyrir beð,
blóm fyrir blóm, af mikilli ræktar-
semi, jafn örugglega og trúgjarn al-
múgamað'urinn fer með þjóðsöguna.
Nægir að benda á hinn ákaflega dula
Norrman og hina björtu túlkunar-
tækni hans í skáldlegum sýnum frá
ættjörð hans: aspir og pílviðir með
grönnum greinaflækjum, plankarnir á
uppfyllingunni við sjóinn, töfrar morg-
unsársins, allt er dregið fram með
fullkominni tækni og tjáningarkrafti
í nokicrum gullfallegum litógrafíum.
Hér má bæta við nokkrum þun--
stungumyndum eftir Sandelin Börje,
atriði úr sirkuslífi, og hinurn fallegu
litógrafíum eftir Hörlin. Þeirra á með-
al einkum hin ágæta mynd Herbergi
með svörtum stól.
I fám orðum sagt er þetta yfirgrips-
mikil og athyglisverð yfirlitssýning,
bæði að því er varðar Svíþjóð og hin
Norðurlöndin, eins og að framan er á
minnzt. Fjöldi verkanna er ef til vill
of mikiJ]. Hefði óneitanlega verið
heppilegra að hafa þau færri, en iist-
sýningar nú á dögum á nútímalist eru
óhjákvæmilega yfirfullar af málverk-
um og höggmyndum, af því að ómögu-
legt er fyrirfram að fella um þau örugg-
an og endanlegan dóm. Það sem mestu
skiptir, er að maður finnur alvöru
köllunar og starfs hjá Hstamönnun-
um frá Norðurlöndum, starfs, sem
gengur í sömu átt og helztu straumar
listmenningar nútímans. Það' er og
þess vegna sem sýningarnefnd Quad-
riennale hefur haft sérstaka ánægju
af samstarfi við menntamálaráðherra
og borgarstjóm Rómar í því skyni að
ná sem beztum árangri með sýning-
unni, en í kjölfar hennar væntum vér
fastlega að komi sýning á nútímalist
ítalskri í þeim löndum, sem listamenn
hafa nú komið frá og verið hér gestir
vorir.
Þórh. Þorgilsson þýddi.