Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 16
ÚR BÆJARLÍFINU
Óli Már Aronsson
Hella
Íþróttafélagið Garpur fagnar 20
ára afmæli á morgun kl. 14.00 í
íþróttasalnum á Laugalandi í Holt-
um. Á afmælishátíðinni verður stikl-
að á stóru í sögu félagsins, gamlar
kempur heiðraðar og ýmislegt fleira
til gamans gert. Stjórn Garps hvet-
ur alla gamla og nýja félaga til að
koma við sem og aðra velunnara fé-
lagsins.
Aðventan er framundan og að
venju er ýmislegt í bígerð fyrir
hana. Jólatónleikar verða haldnir í
safnaðarheimilinu á Hellu miðviku-
daginn 28. nóvember. Þar munu 4
kórar koma fram og flytja jóla-
dagskrá. Kirkjustarf í héraðinu er
líka sérstaklega öflugt á aðventunni.
Margs konar viðburðir fara fram í
kirkjunum fram að jólum og hefjast
með öflugum hætti fyrstu helgina í
aðventu.
Kvenfélagið Eining heldur
mikla aðventuhátíð á Laugalandi í
Holtum, hún fer fram sunnudaginn
2. desember. Þetta hefur verið fjöl-
sótt hátíð með söng- og tónlistar-
atriðum, handverksmarkaði og fleiri
viðburðum.
Tónleikar verða haldnir á Hellu
sunnudaginn 16. desember sem
nefnast „Jólagjöfin“. Það er 18 ára
stúlka á Hellu, Írena Víglundsdóttir,
sem stendur fyrir þeim og allur
ágóði rennur til styrktar SOS-
barnahjálpar. Fyrir utan að syngja
sjálf á tónleikunum hefur Írena
fengið til liðs við sig fjöldann allan af
hljóðfæraleikurum og söngvurum.
Þetta verður mikil tónlistarveisla,
gott framtak hjá Írenu.
Á þessu ári eru 100 ár síðan
fyrsta brúin var byggð á Ytri-
Rangá. Það var 31. ágúst 1912 sem
Hannes Hafstein, ráðherra Íslands
vígði brúna í miklu slagveðri eins og
þau gerast verst á Suðurlandi. Það
var ekki fyrr en 15 árum síðar sem
kauptúnið Hella byrjaði að byggjast
upp við brúna. Þessi fyrsta brú
þjónaði í hálfa öld til 1962 þegar nú-
verandi brú var tekin í notkun.
Hlutar af gömlu brúnni, sem Hann-
es Hafstein kallaði „Járngerði“ hafa
gert sitt gagn síðan annars staðar á
Suðurlandi.
Meirihlutabreyting varð í
sveitarstjórn Rangárþings ytra hér
á dögunum, þegar einn fulltrúi af Á-
lista sem hafði fjóra í meirihluta
gegn þremur fulltrúum af D-lista,
gekk til liðs við D-listann. Gagnrýnt
er að fyrrverandi sveitarstjóra var
sagt upp með tilheyrandi uppsagn-
arfresti, sem þýðir að hann er á
launum í hálft ár, en lætur samt
strax af störfum. Að auki hafi nýr
sveitarstjóri, Drífa Hjartardóttir,
fyrrverandi alþingismaður, verið
ráðin samstundis án auglýsingar.
Þessir atburðir hafa vakið mikið
umtal í sveitarfélaginu og jafnvel út
fyrir það.
Gagnrýnendur þessara aðgerða
hafa bent á það að ráðning fyrrver-
andi sveitarstjóra hafi verið sam-
þykkt með öllum atkvæðum hrepps-
nefndar í upphafi kjörtímabilsins,
m.a. D-lista, sem nú stendur að
sveitarstjóraskiptum. Aðrir hafa
gengið enn lengra og sagt sig úr
Sjálfstæðisflokknum og birt auglýs-
ingu í héraðsblaði hér um slóðir þar
sem „heiðarlegt sjálfstæðisfólk í
Rangárþingi“ er hvatt til að gera
slíkt hið sama.
Sá sem birti auglýsinguna und-
ir nafni, Haraldur Konráðsson,
bóndi á Búðarhóli í Rangárþingi
eystra, er tengdafaðir sveitarstjór-
ans fyrrverandi. Hann er líka bróðir
Unnar Brár Konráðsdóttur alþing-
ismanns og hefur hann látið hafa
eftir sér að hún styðji aðgerðir hans.
Þess er skemmst að minnast að það
var Unnur Brá sem felldi Drífu í
prófkjöri fyrir nokkrum árum og
endaði þar ferill hennar sem þing-
maður.
Nýr sviðsstjóri Umhverfis-,
eigna- og tæknisviðs hefur verið
ráðinn í Rangárþingi ytra. Hann
heitir Haraldur Birgir Haraldsson
og gegnir jafnframt starfi skipulags-
og byggingarfulltrúa. Þessi staða og
ráðning kemur í framhaldi af slitum
á samstarfi sveitarfélaganna í Rang-
árvallasýslu um skipulags- og bygg-
ingarmál.
„Jólagjöfin“ skipu-
lögð af 18 ára stúlku
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Upplýsingar Fyrir nokkru var komið fyrir upplýsingaspjaldi um fyrstu
brúna yfir Ytri-Rangá. Það stendur framan við Handverkshúsið á Hellu.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
„Það má segja að allir skólar þurfi að
fara eftir ákveðnum kjarna náms-
skrár hins opinbera. En skólarnir
hafa möguleika á að bregða út af og
vera öðruvísi, kerfið ýtir undir ný-
sköpun, hugmyndaauðgi og frum-
kvæði forsvarsmanna skólanna,“
segir Odd Eiken, aðstoðarforstjóri
Kunskapsskolan, sem rekur 34
grunnskóla í Svíþjóð.
Á málþingi Samtaka skattgreið-
enda um nýja nálgun í rekstri
grunnskóla í gær flutti Eiken erindi
um ávísanakerfi innan grunn-
skólakerfisins í Svíþjóð, innleiðingu
þess, áhrif og starf Kunskapsskolan.
Kerfið sem tekið var í gagnið fyrir
20 árum er þannig uppbyggt að
kostnaður hins opinbera við skóla-
göngu fylgir nemanda, ekki skólum.
Foreldrum og nemendum er heimilt
að velja grunnskóla, opinbera eða
einkaskóla og ávísunin fylgir nem-
andanum.
Samkeppni ýtir undir gæði
Eiken kom að innleiðingu ávís-
anakerfisins á sínum tíma. „Þetta
hefur aukið samkeppni milli skól-
anna, rannsóknir sýna að gæði allra
skóla hafa aukist. Skólar hins op-
inbera eru þar engin undantekning.
Kerfið hefur örvað grunnskólana og
breytingar innan þeirra. Þeir nota
mismunandi aðferðir og nálganir og
svigrúm hefur skapast til þróunar og
hugmyndaauðgi í kennslu,“ segir
Eiken.
Þá segir hann áhugavert að sjá að
á svæðum þar sem samkeppni skóla
er mikil þá standa allir skólar sig
betur, samkeppnin skilar sér því
greinilega í betri kennslu. „Áður
höfðu skólarnir engan hvata af því
að laða til sín nemendur. Nú er því
öfugt farið, skólarnir leggja mikið
upp úr því að vera í sífelldri þróun
og í góðum tengslum við samfélagið,
enda samkeppnin um nemendur
mikil,“ segir Eiken. heimirs@mbl.is
Möguleikar í
rekstri skóla
Morgunblaðið/Kristinn
Málþing Odd Eiken í pontu en hann rekur 34 grunnskóla í Svíþjóð.
Ýtir undir þróun og hugmyndaauðgi
Hlutfall nemenda í einkareknum
grunnskólum er mun lægra en á
öðrum skólastigum hér á landi.
„Mér finnst það skjóta skökku
við og ástæðan er, að ég held,
sú að foreldrar þurfa að greiða
tiltölulega miklu meira í skóla-
gjöld en t.d. í framhalds-
skólum,“ segir Sölvi Sveinsson,
skólastjóri Landakotsskóla,
sem einnig hélt erindi á mál-
þinginu.
Hann vill auka framlög hins
opinbera til reksturs sjálfstætt
starfandi grunnskóla. „Það er
full þörf á því að auka fjöl-
breytni og sveigjanleika. Við
þurfum breiðara skólakerfi til
að búa nemendur undir fram-
haldsskólana,“ segir Sölvi.
Auka þarf
sveigjanleika
ÞÖRF Á FJÖLBREYTNI
Betra kaffi!
Kaffivél með hitabrúsa
Tekur aðeins 7 mínútur að hella upp á
2,2 lítra af kaffi.
Síðumúla 16 ~ 108 Reykjavík ~ Sími: 580 3900 ~ fastus.is
Fastus til framtíðar