Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 31
FRÉTTIR 31Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Bókaútgáfan Óðinsauga hefur fært
Fjölskylduhjálp Íslands þriðja árið í
röð 18 titla af barnabókum, samtals
1.500 stykki. Kemur þessi gjöf að
góðum notum þar sem foreldrar
þúsunda barna munu sækja um
jólagjafir hjá Fjölskylduhjálp Ís-
lands fyrir börnin sín fyrir komandi
jól. „Hvetjum við aðra bókaútgef-
endur til að styðja Fjölskylduhjálp
Íslands með bókargjöfum sem eru
góðar jólagjafir til barna, unglinga
og fullorðinna,“ segir í tilkynningu.
Á myndinni eru Ásta Vilhjálms-
dóttir og Ragna Rósantsdóttir
stjórnarkonur, Ásgerður Jóna
Flosadóttir formaður, Þórunn Kol-
beins Matthíasdóttir varaformaður
og Huginn Þór Grétarsson, eigandi
Óðinsauga.
Fjölskylduhjálpin
fær bækur að gjöf
Sunnudaginn 25.
nóvember kl.
19.00 verður
haldið ljós-
myndauppboð Ís-
landssögunnar í
Gyllta sal Hótels
Borgar. Til-
gangur uppboðs-
ins er að styrkja
Ingólf Júlíusson,
ljósmyndara og
margmiðlunarhönnuð. Ingólfur
greindist með bráðahvítblæði í
byrjun október á þessu ári og hefur
verið á sjúkrahúsi síðan. Upp úr
áramótum fer hann svo til Svíþjóð-
ar þar sem hann mun gangast undir
mergskipti. Samhugur félaga hans
í stétt ljósmyndara varð til þess að
þeir tóku höndum saman til að
styrkja Ingólf og fjölskyldu hans. Á
uppboðinu verður m.a. málverk eft-
ir Tolla, sem hann gaf til söfnunar-
innar. Einnig verður boðin upp
myndavél sem 12 helstu ljósmynd-
arar landsins hafa tekið myndir á
og áritað, en filman fylgir vélinni,
óframkölluð, og því um einstakan
grip að ræða.
Loks er þess að geta að margir
helstu ljósmyndarar og blaða-
ljósmyndarar landsins hafa gefið
myndir á uppboðið.
Ljósmyndauppboð
til styrktar Ingólfi
Ingólfur
Júlíusson
Í dag, laugardaginn 24. nóvember,
verður haldinn stofnfundur félags
fólks með alópesíu eða blettaskalla.
Fundurinn verður haldinn í Esju 2 á
annarri hæð Hótels Sögu og hefst
kl. 14.
Fyrr á árinu var fyrsta íslenska
vefsíðan um þennan sjálfsofnæm-
issjúkdóm opnuð, www.bletta-
skalli.wordpress.com.
„Talið er að um 1% fólks fái sjúk-
dóminn og getur hann fyrst látið á
sér kræla hvenær sem er á lífsleið-
inni. Blettaskalli er hættu- og sárs-
aukalaus en hefur mikil sálræn
áhrif á þann sem fyrir verður. Því
er mikilvægt að skapa vettvang þar
sem fólk getur leitað sér upplýs-
inga, aðstoðar og stuðnings ann-
arra í sömu stöðu,“ segir í tilkynn-
ingu um stofnfundinn. Vonir standa
til að félagið geti beitt sér í kynn-
ingarstarfi og réttindabaráttu fólks
með þennan sjúkdóm. Eins og nafn-
ið gefur til kynna lýsir blettaskalli
sér í hárlausum blettum í hársverði
en getur einnig orsakað algjöran
hármissi. Sjúkdómurinn er óút-
reiknanlegur, en þó að hann lýsi sér
oftast með því að fyrst uppgötvar
fólk lítinn hárlausan blett, er fram-
haldið mjög misjafnt.
Stofnfundur félags
fólks með alópesíu
á Hótel Sögu í dag
Vistgjöld í leikskólum Ísafjarðar-
bæjar lækka um 5% á næsta ári og
sorpgjöld lækka um 10%. Þetta er
meðal þess sem fram kemur í drög-
um að fjárhagsáætlun Ísafjarðar-
bæjar 2013 sem lögð er fram til fyrri
umræðu í bæjarstjórn á fimmtudag.
„Nokkuð einfaldara var að koma
saman fjárhagsáætlun nú en und-
anfarin tvö ár þar sem þær hagræð-
ingaraðgerðir sem ráðist hefur verið
í á síðustu árum eru farnar að skila
sér. Lækkun launa- og rekstrar-
kostnaðar hefur skilað sér, eftirlit er
markvissara og tekjuþróun hefur
verið bæjarsjóði hagfelld. Þróun
rekstrar bæjarins er því á réttri leið,
en áframhaldandi aðhalds og aga er
þörf,“ segir í frétt frá bænum.
Gert er ráð fyrir að framkvæmt
verði fyrir 765 milljónir króna á
næsta ári.
Nýtt hjúkrunarheimili
Helstu verkefni eru bygging
hjúkrunarheimilis en áætlaður
framkvæmdakostnaður á næsta ári
er 350 m.kr. Framkvæmdir við ofan-
flóðavarnir eru áætlaðar 180 m.kr.
og gert er ráð fyrir að endurbyggja
og malbika Heiðarbraut og Dal-
braut í Hnífsdal. Að auki verða stál-
þil og þekja Suðureyrarhafnar end-
urnýjuð. Gert er ráð fyrir að
malbika Tangagötu, Þvergötu,
Smiðjugötu og hluta Seljalands-
vegar á Ísafirði og Sjávargötu á
Þingeyri. Viðhald þessara gatna er
talið mest áríðandi. Viðhald er aukið
á milli ára og sérstaklega á að horfa
til bætts aðgengis fatlaðs fólks að
byggingum bæjarins og bættum
brunakerfum.
Þá er gert ráð fyrir því að ganga
frá urðunarstaðnum á Klofningi í
Önundarfirði.
Á árinu 2014 á skv. frumvarpinu
að endurnýja leiktæki og undirlag
við Grunnskólann á Suðureyri og
Flateyri og malbika götur á Ísafirði
og Flateyri.
Leikskólagjöld og sorpgjöld lækka
Morgunblaðið/Ómar
Menningar-
og hvíldarferðir
Hafið samband við Silju Rún eða Guðnýju hjá VITA í síma 570 4472 eða sendið tölvupóst á siljarun@vita.is
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
VITA er lífið
VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
62
02
7
11
/2
1
Tenerife hefur upp á margt að bjóða, margbrotna sögu,
fallegt landslag og gott veðurfar. Saga eyjunnar kemur á
óvart, með tengingum við landafundi Ameríku og við fornar
menningarþjóðir, t.d. Egypta. Gist verður við suðurströndina
á fjögurra stjörnu hóteli, Noelia Sur. Það er vel staðsett, rétt
hjá „Laugaveginum“. Allt fæði er innifalið: morgunmatur,
hádegismatur og kvöldmatur ásamt drykkjum með mat.
Þegar við ferðumst í skoðunarferðum fáum við nestispakka
með drykk og ávöxtum. Að venju verður ekki farið
eldsnemma af stað á morgnana heldur í rólegheitum eftir
morgunverðinn. Hótelið okkar er mjög miðsvæðis og því nóg
að gera á frjálsu dögunum. Á kvöldin eru skemmtanir á
hótelinu. Þetta er ekki erfið ferð og á þessum tíma má búast
við sól og hlýju veðri.
Verð 314.500 kr.
aukalega 40 þús. kr. fyrir einbýli.
Innifalið: flug og skattar, akstur, skoðanaferðir,
fæði og drykkur skv. ferðalýsingu.
Tenerife 13. - 27. febrúar 2013
Vegna fjölda áskorana endurtökum við þessa notalegu ferð
næsta haust. Siglt verður upp Rínarfljót frá Amsterdam í
Hollandi til Basel í Sviss með viðkomu á völdum stöðum á
leiðinni, m.a. Köln, Strassburg (Frakklandi) og siglt inn Mosel
og Cochem heimsótt. Eftir siglinguna verður dvalið í
Freiburg í Svartaskógi á Hotel Stadt Freiburg. Þaðan verður
farið í skoðanaferðir, m.a. til Elsass í Frakklandi.
Verð: efra dekk 320 þús. kr. í tvíbýli.
Verð: neðra dekk 295 þús. kr. í tvíbýli.
Innifalið: flug og skattar, akstur, skoðanaferðir,
fæði og drykkur skv. ferðalýsingu.
SiglingAmsterdam -Basel - Freiburg
28. september til 9. október 2013
Fararstjóri:
Friðrik G. Friðriksson.
Myndasafn úr ferðum Friðriks er að finna á:
www.vita.is, evrópurútur Frissa, myndasafn.