Morgunblaðið - 28.11.2012, Side 1

Morgunblaðið - 28.11.2012, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 8. N Ó V E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  279. tölublað  100. árgangur  SÖLVI OTTESEN YFIRGEFUR FC KÖBENHAVN KÓRFÉLAGAR SYNGJA Á BRJÓSTRÖDDINNI ÆVINTÝRALEGAR JÓLAMYNDIR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA POPPUÐ JÓLALÖG Á AÐVENTUNNI 10 HOBBITINN KEMUR 30VILL FRÁ DANMÖRKU ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Eggert Heilbrigðisþjónusta Stofnanir hafa þurft að taka á sig mikinn niðurskurð sl. ár.  Heilbrigðisstofnanir í landinu eru þessa dagana að skila rekstraráætl- unum inn til velferðarráðuneytisins fyrir árið 2013. Þó að ekki sé gerð krafa um niðurskurð í rekstri næsta árs er hætta á skertri þjón- ustu, sér í lagi hjá þeim stofnunum sem hafa þurft að glíma við halla- rekstur. „Það verður erfitt fyrir stofnanir að ná saman hallalausum rekstri, við höfum ekki fengið allar kostnaðarhækkanir bættar að fullu. Enginn niðurskurður þýðir að menn verða samt að taka á sig skerðingar í þjónustu á sumum stöðum,“ segir Birgir Gunnarsson, formaður Landssambands heil- brigðisstofnana. Meðal stofnana sem glíma við mikinn hallarekstur er Heilbrigðisstofnunin á Sauð- árkróki. »4 Hætta á skertri þjónustu þrátt fyrir engan niðurskurð Íbúðalánasjóður » Sigríður Ingibjörg Ingadótt- ir, formaður velferðarnefndar, segir a.m.k. fimmtíu milljarða lenda á almenningi vegna sjóðsins. » Hún segir alla meðvitaða um vandann og fólk eigi að ein- beita sér að því að leysa hann. Hörður Ægisson Heimir Snær Guðmundsson Þrettán milljarða fjárframlag ríkis- ins til Íbúðalánasjóðs, sem ríkis- stjórnin samþykkti í gær, tekur að- eins á skammtímavanda sjóðsins en breytir litlu um undirliggjandi rekstrarerfiðleika. Að öðru óbreyttu er starfsemi sjóðsins ósjálfbær og halli á rekstri gæti verið þrír millj- arðar á ári næstu árin. Fram kemur í niðurstöðum starfs- hóps að hætt sé við því að útlánasafn sjóðsins sé ofmetið um fjörutíu millj- arða og því þurfi að auka framlag á afskriftarreikning útlána um allt að tuttugu milljarða. Í tillögum ráðgjafarfyrirtæksins IFS er meðal annars lagt til að stofn- að verði sérstakt eignarhaldsfélag með ríkisábyrgð um þær fullnustu- eignir sem sjóðurinn hefur tekið yfir. Taprekstur af slíku félagi, sem ætti meira en þrjú þúsund eignir eftir nokkur ár, gæti numið einum til tveimur milljörðum á ári. Sam- kvæmt aðgerðaáætlun IFS er þörf á greiðslum úr ríkissjóði til ÍLS fyrir að minnsta kosti 48 milljarða næstu þrjú til fimm árin. Ráðherra skipar starfshóp Miðað við áætlanir stefnir í að eig- ið fé Íbúðalánasjóðs verði uppurið við lok þessa árs. Þá ætlar velferð- arráðherra að skipa starfshóp til að fara yfir framtíðarhorfur og hlutverk sjóðsins sem leiði til þess að rekstur Íbúðalánasjóðs verði sjálfbær. Þarf tugi milljarða í viðbót  Eigið fé ÍLS verður uppurið við lok þessa árs miðað við áætlanir  Mælt með stofnun eignarhaldsfélags með ríkisábyrgð um fullnustueignir sjóðsins M Íbúðalánasjóður » 2 og 16 Einstaklingar greindir með HIV-smit á Íslandi 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012* 7 10 5 8 11 13 10 15 24 23 18 *Til loka nóvember Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Átján einstaklingar hafa greinst með HIV-smit hér á landi það sem af er árinu. Þar af einn með alnæmi, sem er lokastig sjúkdómsins. Um er að ræða þrettán karla og fimm konur. Fjórir þeirra eru fíkniefnaneytendur og tengjast líklega flestir hópi sprautu- fíkla sem greindust með HIV-smit í fyrra og hittifyrra. Fimm samkynhneigðir karlmenn hafa greinst á árinu en enginn sam- kynhneigður greindist í fyrra. Þá smituðust níu við kynmök gagnkyn- hneigðra. Meðalaldur karla sem hafa greinst er 37 ár en kvenna 34 ár. Har- aldur Briem sóttvarnalæknir segir að af þessum átján manna hópi séu átta af erlendu bergi brotnir og hafi smit- ast erlendis en álykta megi að tíu smit séu innlend. Í fyrra greindust 23 með HIV-smit og 24 árið þar á undan. Haraldur seg- ir að það megi kalla þetta staðbundna sótt þar sem tölurnar haldist nokkuð jafnar. „En það er ekki alltaf gott heldur. Við viljum sjá þetta fara niður og helst hverfa.“ »18 Dregur lítið úr HIV-smiti  Átján greinst HIV-smitaðir á árinu  Einn með alnæmi Tæpur mánuður er til jóla og virðist ekkert vanta fyrir hátíðina. Víða er hvít jörð og hangi- kjötið er á sínum stað. Ekki sitja samt allir við sama borð en þeir sem eiga nóg að bíta og brenna þurfa ekki að hafa áhyggjur. Jólaversl- unin fer á fullt um helgina og þegar búið er að skreyta jólatrén verður hægt að setja pakkana á sinn stað. Þetta vita starfsmennirnir sem settu upp jólatré við Ráðhús Reykjavíkur í gær. »6 Ekki er ráð nema í tíma sé tekið Morgunblaðið/Kristinn  „Við fögnum ekki tvöföldun virðisaukaskatts á gistingu,“ seg- ir Erna Hauks- dóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar. Fjármála- ráðherra ætlar að leggja til að skatturinn hækki í 14% á næsta ári, en ekki 25% eins og áður hafði verið boðað. Erna bendir á að þessi skatt- ur sé töluvert lægri víðast hvar í Evrópu. »6 Fagna ekki tvöföld- un skatts á gistingu „Mér finnst að í ljósi þess að forseta Alþingis var afhent tillaga stjórnlagaráðs hefði í þessu tilviki verið eðlilegt að forseti hefði, áður en málið var lagt fram, sent erindi fyrir hönd þingsins til Feneyja- nefndarinnar,“ segir Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, spurð hvort hún telji að formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis hafi verið rétti aðilinn til að óska eftir áliti Feneyjanefndarinnar á frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár. Þá segir Ólöf að þegar Finnar óskuðu eftir áliti nefndarinnar á sinni stjórnarskrá fyrir nokkrum ár- um hafi það verið gert af hálfu finnska dómsmálaráðuneytisins. Að sögn Valgerðar Bjarnadóttur, formanns stjórnskipunar- og eft- irlitsnefndar, var eðlilegast að hún sendi bréfið til Feneyjanefndarinnar enda sé það meirihluti nefndarinnar sem leggi frumvarpið fram en ekki ríkisstjórnin. „Það var ákveðið í þessu ferli að það væri þingið sem færi með þetta mál og þess vegna teldi ég það óeðlilegt að einhver ann- ar en þingið, og þá þessi nefnd, sendi þetta bréf.“ skulih@mbl.is. »2 Eðlilegra ef þingforseti hefði óskað eftir áliti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.