Morgunblaðið - 28.11.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.11.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012 Pistlakarl einn með „ríkari rétt-lætiskennd“ en hinir hefur tekið það sem dæmi um hvað flokksskrár séu fáránlegar, að hann sjálfur, sem hefur hreytt í Sjálfstæðisflokkinn hvenær sem tilefni hefur gefist og án þess, hafi verið skráður í þann skúrkaflokk.    En hann veit vel,en vill ekki að aðrir viti, að það er vegna þess að hann gekk í flokkinn til að kjósa í prófkjöri, sem var aðeins fyr- ir flokksbundna. Það sást til hans. Þetta hafa fleiri gert, og regl- urnar hafa boðið upp á slíkt. Sum- ir þeirra skrá sig ekki úr flokki, þótt þeir fái fréttaefni frá honum og aðrir verða áhugasamir flokks- menn, þótt það hafi aldrei staðið til. Jón Magnússon, fyrrverandi al- þingismaður, þekkir vel til slíkra mála. Jón segir:    Flokksskrárnar eru rangar.Fólk er ekki tekið af skrá þó það sé jafnvel komið í aðra flokka ef það hefur einhverntíma skráð sig í viðkomandi flokk. Sjaldnast eru innheimt árgjöld, en sé það gert þá eru þeir sem ekki borga áfram skráðir í flokkinn og á kjör- skrá.“    Prófkjör eru ekki gallalaus ogþau geta ýtt undir sund- urþykkju í röðum fólks sem þarf að vinna saman og eiga gagn- kvæmt traust. En til að tryggja ákveðna endurnýjun og draga úr hættu á að miðstýrt flokksræði verði of íþyngjandi verður að nota þá aðferð reglulega, þótt uppstill- ing í höndum færri trúnaðar- manna sé viðhöfð þess á milli. En þá þarf að gera ríkari kröfur um að hinir „flokksbundnu“ séu það í raun og veru og hafi því rétt til áhrifa á framboðslista umfram aðra kjósendur. Jón Magnússon Lauslega flokksbundnir STAKSTEINAR Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Í spinning öðlast ég aukið úthald og styrk, frábær undirstaða fyrir útivistina, hvort sem það eru hjólreiðar, skíði eða fjallganga. Þórður Magnússon Fjörugir tímar þar sem hjólað er undir leiðsögn þjálfara í takt við skemmtilega tónlist. Mjög mikil brennsla og góð þjálfun. Tímarnir eru fjölbreyttir þar sem hjólað er allan tímann eða tímanum skipt í spinning og styrktaræfingar. Hjólaðu þig í form Frír prufurtími Spinningtímar mán. mið. og fös. kl 12.00 og 17.15 Veður víða um heim 27.11., kl. 18.00 Reykjavík 2 léttskýjað Bolungarvík 1 skýjað Akureyri -4 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 1 skýjað Vestmannaeyjar 5 skýjað Nuuk 2 skýjað Þórshöfn 2 léttskýjað Ósló 0 snjókoma Kaupmannahöfn 7 skýjað Stokkhólmur 2 skúrir Helsinki 1 skýjað Lúxemborg 6 skýjað Brussel 7 skýjað Dublin 3 léttskýjað Glasgow 7 léttskýjað London 7 skýjað París 7 skúrir Amsterdam 7 heiðskírt Hamborg 7 skýjað Berlín 8 skýjað Vín 7 alskýjað Moskva 0 alskýjað Algarve 15 léttskýjað Madríd 7 léttskýjað Barcelona 11 skúrir Mallorca 12 skúrir Róm 16 skúrir Aþena 15 léttskýjað Winnipeg -16 snjókoma Montreal -2 skýjað New York 2 slydda Chicago -3 léttskýjað Orlando 20 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 28. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:39 15:54 ÍSAFJÖRÐUR 11:12 15:30 SIGLUFJÖRÐUR 10:56 15:12 DJÚPIVOGUR 10:15 15:16 Fyrstu niðurstöðu má vænta úr upprunagreiningu makríls á Ís- landsmiðum eftir um það bil sex mánuði að sögn Önnu Kristínar Daníelsdóttur, sviðsstjóra öryggis, umhverfis og erfða hjá Matís. Verkefnið er samvinnuverkefni sem m.a. Hafrannsóknastofnun tekur þátt í. Anna Kristín segir rannsóknir á makríl í forgangi og fjármagn til að sinna þeim sé tryggt. Tilgangur rannsóknarinnar er að greina stofngerð þess makríls sem gengið hefur inn í íslenska fisk- veiðilögsögu á undanförnum árum. Uppi hafa verið getgátur um að hluti hans komi inn í lögsöguna úr vestri í stað þess að hann komi all- ur úr evrópskum stofni. Íslend- ingar hafa átt í hörðum deilum við Norðmenn og ESB um veiðar á makríl. Að sögn Önnu Kristínar hafa verið tekin 100-200 sýni úr hverjum hrygningarstofni til rannsóknar. „Við finnum fyrir miklum áhuga, bæði innanlands og utan. Hvar sem við komum á fundi eða ráðstefnur er mikill áhugi á rannsóknum á makríl enda er lítið vitað um stofn- gerðina. Við erum í raun í frum- kvöðlastarfi á því sviði þar sem við erum að þróa ný erfðamörk fyrir makríl,“ segir Anna Kristín. vidar@mbl.is Búist við niðurstöðu eftir sex mánuði  Fjármagn tryggt til upprunagreiningar á makríl sem fyrirfinnst við landið Makríll Tegundin getur verið misjöfn í útliti. Upprunagreining stendur yfir. Meginefni fundar EES-ráðsins í Brussel á mánudag með utanrík- isráðherrum EFTA-ríkjanna og fulltrúum fram- kvæmdastjórnar ESB var yfirferð um stöðu og fram- kvæmd EES- samningsins. Öss- ur Skarphéð- insson utanríkisráðherra lýsti þeirri afstöðu að æ fleiri mál sem taka þyrfti upp í samninginn sköpuðu stjórnarskrárbundin vanda- mál fyrir Ísland, þar sem í þeim fæl- ist framsal valds umfram það sem stjórnarskráin heimilaði. Utanríkisráðherra lýsti þeirri skoðun Íslands að þar sem EES- samningurinn tæki ekki yfir fisk- veiðar teldi hann ekki rétt að fjalla um makrílveiðar á þessum vettvangi. Hann lagðist gegn því að ályktað yrði um málið, segir í tilkynningu. Hann harmaði jafnframt að ESB og Nor- egur skyldu ekki treysa sér til að fall- ast á tillögu Íslands um að þar sem ekki hefði tekist að leysa makríldeil- una skæru allir málsaðilar niður veið- ar í hlutfalli við niðurstöðu ICES. Stöðugt fleiri stjórnar- skrárbundin vandamál Össur Skarphéðinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.