Morgunblaðið - 28.11.2012, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012
Nákvæmni Herjólfur verður í flotkví hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði næstu daga en til þess að koma honum í þessa gömlu kafbátaflotkví þurfti að fjarlægja björgunarbátana.
Árni Sæberg
Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra
bjargaði pólitísku lífi
sínu fyrir horn í forvali
Vinstri grænna í Suð-
vesturkjördæmi. Hans
höfuðlausn var flutt á
mótmælafundi við
bandaríska sendiráðið
fyrir skömmu þar sem
krafist var að Banda-
ríkin beittu Ísrael
þrýstingi vegna ófriðar á Gaza.
Þrátt fyrir að Hamas-samtökin
hefðu skotið flugskeytum á Ísrael
var framferði Ísraela fordæmt og
bandarísk stjórnvöld harðlega gagn-
rýnd fyrir að styðja ríki gyðinga.
Vinstri menn á Íslandi hafa alltaf
kunnað að meta þá sem ganga hart
fram í gagnrýni á Bandaríkin. Fátt
elska þeir meira en þegar hið „illa
stórveldi“ er fordæmt. Að sýna op-
inberlega óvild í garð Ísrael er talið
til eftirbreytni meðal vinstrimanna.
Þetta veit innanríkisráðherra
manna best og í aðdraganda að for-
vali, þar sem að honum var sótt af
fulltrúa Steingríms J. Sigfússonar,
gat Ögmundur ekki látið tækifærið
renna úr greipum sér. Hann flutti
kraftmikla ræðu og var harðorður:
„Ríkið Ísrael hefur breyst í
ófreskju, sem fær að leika lausum
hala, undir vernd-
arvæng Bandaríkj-
anna.“
Árni Þór
bjargar sér
Óvild innanrík-
isráðherra í garð Ísr-
aels og Bandaríkjanna
er augljós og hana
kunna félagar í VG vel
að meta. Því kom það
engum á óvart þegar
Árni Þór Sigurðsson,
formaður utanrík-
ismálanefndar, tók til máls á Alþingi
daginn eftir mótmælin við banda-
ríska sendiráðið.
Líkt og Ögmundur átti Árni Þór
undir högg að sækja forvali VG en
af ólíkum ástæðum. Margir flokks-
félagar gruna Árna Þór um græsku
vegna tvískinnungs í afstöðunni til
aðildar Íslands að Evrópusamband-
inu.
Með því að „fordæma framferði
Ísraela og gagnrýna Bandaríkja-
stjórn hispurslaust fyrir linnulausan
og að því er virðist skilyrðislausan
stuðning í verki við ólögmætar og
ofbeldisfullar aðgerðir Ísraela,“
tryggði Árni Þór stöðu sína í forvali
VG í Reykjavík. Ekki skemmdi það
fyrir formanni utanríkismála-
nefndar að lýsa því yfir að „hvers
konar sniðganga og refsiaðgerðir,
efnahagslegar, menningarlegar eða
pólitískar“, gagnvart Ísrael kæmu
til greina. Árni Þór telur rétt að
huga að því að slíta stjórnmála-
sambandi við Ísrael.
Tvöfeldni VG
Tvískinnungur Vinstri grænna í
utanríkismálum hefur komið oftar
en einu sinni í ljós á kjörtímabilinu
og þá ekki aðeins er varðar aðild-
arumsókn að Evrópusambandinu.
(Um það getur Hjörleifur Gutt-
ormsson, einn stofnanda VG, vitnað
best).
Ríkisstjórn Samfylkingar og
Vinstri grænna gat beitt neit-
unarvaldi til að koma í veg fyrir loft-
árásir NATÓ á Líbíu. Ráðherrar
VG þögðu hins vegar þunnu hljóði
sem og þingmenn. Mörgum miss-
erum síðar stóð Ögmundur Jón-
asson innanríkisráðherra fyrir
framan bandaríska sendiráðið og
gagnrýndi Bandaríkin meðal annars
fyrir að vilja koma Gaddafí, einræð-
isherra Líbíu, frá völdum. Tvöfeldn-
in verður vart meiri.
Á sama tíma og Ögmundur flutti
sína höfuðlausn og Árni Þór stóð í
ræðustól Alþingis, hélt borg-
arastríðið í Sýrlandi áfram. Tugir
þúsunda óbreyttra borgara hafa
fallið og hundruð þúsunda flúið
heimili sín. Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna stendur máttlaust hjá.
Rússnesk stjórnvöld halda hlífiskildi
yfir ríkisreknum böðulskap og þjóð-
armorði í Sýrlandi. Kínversk stjórn-
völd veita Bashar al-Assad forseta
Sýrlands einnig pólitískt skjól á al-
þjóða vettvangi. Harmleikurinn
heldur áfram. Á Íslandi kemur hins
vegar ekki fram tillaga um að slíta
stjórnmálasambandi við Sýrland til
að mótmæla þjóðarmorði.
Af hverju boða þeir félagar, Árni
Þór og Ögmundur ekki til mótmæla
fyrir framan sendiráð Rússlands
vegna ástandsins í Sýrlandi? Væri
ekki tilefni til að mótmæla einnig við
sendiráð Kína? Ögmundur gæti ekki
aðeins flutt ræðu um Sýrland heldur
einnig minnst á frelsisbaráttu Tíb-
eta. Árni Þór hefði gott efni í áhrifa-
mikla ræðu um mannréttindabrot
kínverska stjórnvalda. Hann gæti
sótt efnivið til Amnesty Int-
ernational. Til að vera sjálfum sér
samkvæmur væri eðlilegt að Árni
Þór krefðist viðskiptabanns á Kína
um leið og hann benti á þann mögu-
leika að slíta stjórnmálasambandi
við Peking.
Varla getur það skipt máli í huga
réttsýnna vinstrimanna hvaða
stjórnvöld stunda mannréttindabrot
eða veita böðlum pólitískt skjól til
að fara sínu fram?
Helgur réttur
Það er helgur réttur sjálfstæðra
og frjálsra þjóða að grípa til varna
ef á þær er ráðist. Sá réttur getur
aldrei orðið skálkaskjól fyrir hernað
gegn saklausum borgurum. Slíkan
hernað á að fordæma. En eitt og hið
sama verður yfir alla að ganga. Við
getum ekki beitt mismunandi mæli-
stiku eftir því hver á hlut að máli.
Árásir Hamas-samtakanna á
óbreytta borgara í Ísrael eru við-
urstyggileg með sama hætti og þeg-
ar ísraelskir hermenn ráðast á sak-
lausa Palestínumenn. Þjóðarmorð
sýrlenskra stjórnvalda vekja óhug
og þeim á að mótmæla. Við Íslend-
ingar eigum einnig að nota hvert
tækifæri til að mótmæla grófum
mannréttindabrotum jafnt í Kína
sem í öðrum löndum.
En barátta fyrir mannréttindum,
friði og frelsi, verður aldrei trúverð-
ug þegar tvískinnungur vinstri-
manna ræður för. Það sem meira er;
hún mun litlum árangri skila, öðrum
en þeim að nýtast sem pólitísk höf-
uðlausn nokkrum dögum fyrir val á
framboðslista.
Eftir Óla Björn
Kárason » Á sama tíma og Ög-
mundur flutti sína
höfuðlausn og Árni Þór
stóð í ræðustól Alþingis,
hélt borgarastríðið í
Sýrlandi áfram.
Óli Björn Kárason
Höfundur er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Höfuðlausn Ögmundar og Árna Þórs