Morgunblaðið - 28.11.2012, Side 20

Morgunblaðið - 28.11.2012, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012 Í grein minni Trufl- un, sem birtist í nóv- emberlok 2011, gerði ég alvarlegar at- hugasemdir við umfjöll- un Kastljóss um Gunn- ar Þ. Andersen, þá forstjóra Fjármálaeft- irlitsins (FME); sagði þar m.a.: „eini tilgangur hennar virtist vera að grafa undan trúverð- ugleika FME og for- stjóra þess – og reyna að ryðja hon- um úr vegi.“ Undirróðurinn gegn forstjóranum hélt áfram – 3 mán- uðum síðar var brottrekstur hans staðreynd; í dagrenningu 1. mars hélt Aðalsteinn Leifsson, stjórn- arformaður FME, að heimili Gunn- ars og afhenti honum uppsagn- arbréfið, ef marka má fréttaflutninginn þann dag. Skömmu síðar birtist stjórnarformaðurinn í Kastljósi og harmaði m.a. hve per- sónulegar deilur hans við Gunnar urðu. Ekki fannst mér tilraun hans til að réttlæta brottreksturinn sannfær- andi. Daginn eftir fregnina af ákæru gegn Gunnari ritar ritstjóri Frétta- blaðsins grein um málið og end- urtekur margþvældan málflutning þeirra sem vildu bola Gunnari úr embætti; vandinn er sá að hann gleymir að nefna tvær álitsgerðir Andra Árnasonar lögmanns sem eru þó lykilskjöl – enn og aftur gleymast aðalatriðin. Þessi óháði matsmaður komst – í tvígang – að sömu nið- urstöðu, að Gunnar væri hæfur til að gegna starfi forstjóra FME. Ég veit ekki til þess að dómgreind Andra hafi verið dregin í efa. Sá sem telur brott- rekstur Gunnars réttmætan hlýtur jafnframt að líta svo á að báðar álits- gerðir Andra séu ómarktækar. Hvers vegna telur ritstjórinn svo vera? Tilhæfulaus brottrekstur „Málið snerist aldrei um nein rök eða upplýsingar, þaðan af síður um réttlæti. Engin boðleg rök hafa verið færð fyrir uppsögn Gunnars, engin ný gögn lögð á borðið.“ (Úr yfirlýs- ingu Skúla Bjarnasonar, þá lögmanns Gunnars, 1. mars sl.) Ég tek heils- hugar undir þessi orð – þetta er mergur málsins; frá upphafi til enda var málatilbúnaðurinn gegn forstjóranum í raun sagan um ekki neitt enda engin brottrekstr- arsök fyrir hendi. At- burðarásin sem hófst skömmu eftir áramót var farsakennd, lög- reglan hefði með réttu átt að grípa inn í hana og stöðva úr því að ráð- herra efnahagsmála gerði það ekki með því að leysa stjórnina upp. Hann hafði vald til þess. En vitfirr- ingin tók völdin – rétt eins og í að- draganda bankahrunsins. Hernaður orða og pappíra Hernaður á Fróni hefur þá sér- stöðu að hann er ekki háður með hefðbundnum stríðstólum heldur orð- um og pappírum. Gagnaleki er mann- anna verk og því aldrei tilgangslaus; gleymum því ei að í þessu máli beind- ist hann að einum manni, ekki hópi manna eða félagi. Ljóst var að Kast- ljósþátturinn 17. nóv. 2011 byggðist á trúnaðarskjölum sem lekið hafði ver- ið í þáttinn. Hvers vegna hóf lög- reglan eða saksóknari ekki tafarlausa rannsókn á jafnalvarlegum trún- aðargagnaleka sem nýttur var í ann- arlegum tilgangi? Hverjir stóðu fyrir honum, á hvaða tímabili fór hann fram o.s.frv.? Meðan málið er ekki rannsakað upplýsist það ekki, engin svör fást við knýjandi spurningum. Þegar ljóst varð að stjórn FME ætlaði sér að hrekja Gunnar burt hvað sem það kostaði hófst þessi magnaða gagnsókn sem lifa mun á ódáinslendum hugans og minnti á fátt fremur en lokakafla frægs lags með The Who. Sjálfsögð krafa forstjórans um að stjórn FME hætti að haga sér eins og véfréttin illræmda heldur legði fram vitrænar skýringar á upp- sagnarhótunum var hunsuð. Hver skyldi refsiramminn fyrir ofsóknir vera? Sannfæring sem fékkst ekki keypt Á endanum snerist málið um sann- færingu hins ofsótta forstjóra and- spænis valdníðslu stjórnarinnar og þeim hagsmunaöflum sem vildu losna við hann. Hann fylgdi sannfæringu sinni og réttlætiskennd út í æsar – lokarimman við stjórn FME tók af öll tvímæli um að hann lét ekki fjárhags- lega hagsmuni ráða för heldur stóð – og féll – með sannfæringu sinni. Allar heimsins krónur gátu ekki keypt hana af honum. Enn á ný sannast þau orð Sigurðar Nordal að sigurlaun lífs- ins séu aldrei hvíld, heldur kostur á að halda vörninni áfram. Þau spak- mæli voru föður mínum heitnum, Jó- hannesi Helga rithöfundi (1926-2001), oft hugleikin og ekki að ófyrirsynju. Hann og Gunnar eiga það sammerkt, að hafa ekki látið illskeytt öfl beygja sig – þeir kysstu ekki vöndinn … Það er bæði þakkar- og virðingarvert. Eftir stendur einlæg og mann- eskjuleg barátta Gunnars fyrir starfi sínu, borin uppi af feikilegu valdi á ís- lensku, að ógleymdum hnitmiðuðum yfirlýsingum, viðtölum og ræðum sem vitna um mikla þekkingu hans og greind – og ekki síst leiftrandi innsæi. Allt mikilsverðar samtímaheimildir sem veita innsýn í það sem úrskeiðis fór í íslensku samfélagi og þær lag- færingar sem brýnastar eru. Lokaorð Lokaþáttur Gunnars sögu And- ersen er allur eftir, sögulok óráðin; nú er vettvangurinn Héraðsdómur Reykjavíkur þar sem skylmingar andans halda áfram. Mér segir svo hugur að í vændum sé eitt merkileg- asta dómsmál síðari tíma hér á hjara heims. Kannski verðum við vitni að hinstu vörn – og sókn – hins mik- ilhæfa rannsóknarmanns sem hófst handa við að siðbæta íslenskt fjár- málakerfi. Ég ber fullt traust til Gunnars Andersen; hugur minn og margra annarra er hjá honum í baráttunni fyrir réttlæti. Ekkert fær mætum manni grandað. Eftir Guttorm Helga Jóhannesson » Vandinn er sá að hann gleymir að nefna tvær álitsgerðir Andra Árnasonar lög- manns sem eru þó lyk- ilskjöl – enn og aftur gleymast aðalatriðin. Guttormur Helgi Jóhannesson Höfundur er málvísindamaður. Truflun II eða Sagan um ekki neitt Það hefur löngum verið sagt að Hafn- arfjörður sé mikill íþróttabær og víst er að góður árangur hafnfirsks íþróttafólks hefur borið hróður bæjarins víða. Haukar og FH, Fimleika- félagið Björk, Sund- félag Hafnarfjarðar, Hestamannafélagið Sörli, Golfklúbburinn Keilir, Bad- mintonfélag Hafnarfjarðar, Sigl- ingaklúbburinn Þytur og Íþrótta- félagið Fjörður, allt eru þetta félög sem leggja grunninn að sæmd- arheitinu sem bæjarbúar eru svo stoltir af, íþróttabænum Hafn- arfirði. Auk þess að eiga frábært íþrótta- fólk státum við einnig af öflugu stuðningsneti sjálfboðaliða sem hafa á árum og áratugum staðið dyggan vörð um starf íþróttafélag- anna og unnið ómetanlegt starf í þágu þeirra. Á undanförnum ára- tugum hefur Hafnarfjarðarbær byggt mörg myndarleg íþrótta- mannvirki og aðstaða til íþróttaiðk- unar hefur um margt verið til fyr- irmyndar. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa líka löngum haft góðan skilning á því hversu mikill ágóði fellst í því að hlúa vel að öllu íþróttastarfi og hversu mikið for- varnagildi það hefur að stunda íþróttir. Á fundi Íþrótta- bandalags Hafn- arfjarðar sem haldinn var nýverið kom fram að um 27% umframeft- irspurn væri nú þegar eftir æfingatímum í íþróttahúsum bæj- arins. Stjórn Íþróttabandalags Hafnarfjarðar hefur af þessu mikl- ar áhyggjur og skoraði á bæjaryf- irvöld að horft yrði til þess að byggja nýjan íþróttasal við Íþrótta- miðstöðina á Ásvöllum, en í deili- skipulagi er þar gert ráð fyrir nýj- um íþróttasal og raunar er þegar búið að steypa þar botnplötu auk lagnakjallara. Er þá gert ráð fyrir að nýta búningsaðstöðu og stoð- þjónustu sem þegar er fyrir hendi á Ásvöllum. Íþróttamiðstöðin á Ás- völlum, þar sem Knattspyrnu- félagið Haukar hefur sína aðstöðu, getur ekki lengur annað þeirri þjónustu sem íbúar í nærumhverfi Íþróttamiðstöðvarinnar telja ásætt- anlega. Íþróttamiðstöð Hauka á Ás- völlum var tekin í notkun árið 2001 á 70 ára afmæli Knattspyrnufélags- ins Hauka, um það leyti sem bygg- ing íbúða hófst í Áslandi. Nú, ellefu árum síðar, hefur íbúum fjölgað í Áslandi, auk þess sem 5000 manna byggð er risin á Völlum, en gert er ráð fyrir 18.000 manna byggð á nýjum byggingasvæðum sunnan Reykjanesbrautar. Sveitarfélögin á höfuðborg- arsvæðinu eru ekki einsleit. Þau hafa öll sín sérkenni. Sitt aðdrátt- arafl. Dugmiklir íbúar og öflug fyr- irtæki eru þar kjölfestan. Á þeim þarf Hafnarfjörður nú að halda til að komast í gegnum uppsafnaðan skuldaskafl. Það verður sjálfsagt ekki auðvelt. Þá ber hins vegar að forgangsraða rétt, fjárfesta í því sem mestu máli skiptir, æsku bæj- arins, framtíð hans. Hafnfirðingar, höldum okkar sér- kennum, verum stolt af bænum okkar, íþróttabænum Hafnarfirði. Eftir Magnús Gunnarsson » Skorað á bæjaryf- irvöld að horfa til þess að byggja nýjan íþróttasal við Íþrótta- miðstöðina á Ásvöllum. Magnús Gunnarsson Höfundur er framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Hauka. Íþróttabærinn Hafnarfjörður BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Gullsmárinn Aðeins var spilað á 12 borðum í Gullsmára mánudaginn 26. nóvem- ber, vegna útfarar Ármanns J. Lár- ussonar. Úrslit í N/S: Jón Stefánsson – Viðar Valdimarsson 200 Örn Einarsson – Óskar Ólason 199 Guðrún Gestsd. – Gunnar M. Hansson 189 A/V Sigurður Njálsson – Pétur Jónsson 209 Ragnar Haraldsson – Bernhard Linn 196 Ágúst Vilhelmsson – Kári Jónsson 178 Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Eftir þrjú kvöld í fjögurra kvölda tvímenningskeppni er staða efstu para þessi. Oddur Hannesson – Árni Hannesson 783 Magnús Sverrisson – Halldór Þorvaldss. 754 Ragnar Haraldss. – Bernhard Linn 732 Sigurjóna Björgvinsd. – Gunnar Guðmss. 719 Jón Jóhannss. – Birgir Kristjánss. 689 Sunnudaginn 25/11 var spilað á 10 borðum. Hæsta skor kvöldsins í Norður/Suður. Sigurjóna Björgvinsd. – Gunnar Guðmss. 247 Garðar Jónss – Sigurjón Guðmss. 245 Oddur Hanness. – Árni Hannesson 245 Austur/Vestur Bergljót Gunnarsd. – Jón Hákon Jónss. 266 Ragnar Haraldss. – Bernhard Linn 249 Gróa Guðnad. – Unnar Atli Guðmss. 226 Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Mánudaginn 26. nóv. var tvímenn- ingskeppni hjá Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík, Stangar- hyl 2. Spilað var á 11 borðum. Með- alskor var 216 stig. Úrslit urðu þessi í N-S Valdimar Ásmundss. – Björn Péturss. 272 Óskar Karlss. – Ragnar Björnsson 255 Björn Árnas. – Auðunn Guðmundss. 254 Bjarni Þórarinss. – Örn Ingólfsson 245 A-V Albert Þorsteinss. – Bragi Björnss. 271 Magnús Jónsson – Gunnar Jónsson 263 Kristján Guðmundss. – Einar Einarss. 248 Guðbjörn Axelss. – Eggert Þórhallss. 229 Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali ÁRSALIR FASTEIGNAMIÐLUN 533 4200 FASTEIGNASALA FYRIRTÆKJASALA - LEIGUMIÐLUN .... Hafðu samband LOPI 32 Sjá sölustaði á istex.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.