Morgunblaðið - 28.11.2012, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 28.11.2012, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012 ✝ Þuríður Gunn-arsdóttir (Þura) fæddist í Breiðu- torfu, Svínafelli í Öræfum 29. sept- ember 1926. Hún lést á Landspít- alanum 17. nóv- ember 2012. Foreldrar hennar voru Gunnar Jóns- son, f. 31.1. 1891, d. 14.12. 1967, og Sól- veig Pálsdóttir, f. 20.8. 1897, d. 28.10. 2006. Systkini Þuru eru Guðlaugur, f. 17.9. 1924, Pálína Guðrún, f. 23.11. 1929, Jón Ólafur, f. 6.1. 1934, Halla Þuríður, f. 26.5. 1935, Jóhanna, f. 10.9. 1936, og Kjartan, f. 17.1. 1940. Dóttir Þuru er Guðrún Sólveig Sigurgrímsdóttir, f. 29.2. 1968, eiginmaður Páll Ágúst Jónsson. Börn Guðrúnar af fyrra hjóna- bandi eru: Þuríður Erla Helga- dóttir, f. 30.7. 1991, unnusti Árni Þórður Randversson, f. 8.5. 1991, Sigurjón Páll Helga- son, f. 16.12. 1993, og Lilja Lind Helga- dóttir, f. 31.8. 1996. Sonur Guðrúnar og Páls er Veigar Jó- hann Pálsson, f. 24.11. 2006. Páll á fyrir Jón Hólm Páls- son, f. 16.7. 1993. Þura fæddist og ólst upp í Breiðu- torfu, Svínafelli í Öræfum. 18 ára fór hún í vist í Vík í Mýrdal í tvo vetur og eftir það fluttist hún til Reykjavíkur og vann m.a. í Iðnó í mörg ár. Vann í Mjólkurbúð í Sólheimum í Reykja- vík, Hrafnistu Reykjavík og síðan í yfir 10 ár í Þvottahúsinu Fönn. Eftir það, á eldriborgaraárunum, var það líf hennar og yndi að að- stoða með barnabörnin. Útför Þuríðar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 28. nóv- ember 2012, og hefst athöfnin kl. 13. Elsku móðir mín er dáin. Veikindin síðan í sumar yfir- buguðu þig en ég veit að nú ertu komin á betri stað í góðra manna hóp. Og ert eflaust hætt að nota hækjurnar. Takk fyrir öll árin okkar sam- an. Það hefur ekki verið auðvelt verk að vera verkakona að ala ein upp barn, þar sem þú varst líka komin á besta aldur þegar þú átt- ir mig, ég man eftir að oftar en einu sinni var talið að þú værir amma mín. Oft kom ég til þín í vinnuna í Fönn og beið þar þang- að til þú varst búin að vinna. Stundum var það fram á kvöld þegar þú fékkst aukavinnu og oft fékkstu aukavinnu fyrir páskana þegar strauja þurfti fermingar- kyrtlana. Þú leyfðir okkur alveg að heyra það þegar þér fannst barnabörnin vera að fá ofmikið, og sagðir okkur frá því að þegar ég var lítil langaði mig einhver ósköp í íspinna og hafi ég þá stað- ið organdi á gangstéttinni og ætl- aði ekki heim, ég vildi í búðina, en þú bara áttir ekki pening til að gefa mér hann. Og oft fékk ég að heyra það að ég hefði nú bara átt tvennar buxur til skiptanna, þeg- ar mínir krakkar voru að fá föt, sem þau líklega þurftu ekkert endilega. Þú hjálpaðir okkur óendanlega mikið. Bakaðir fyrir afmæli, alltaf hina víðfrægu púð- ursykursköku, perutertu o.fl., passaðir og prjónaðir. Gerðir slátur á hverju ári, ég var meira að segja búin að kaupa slátur til að gera núna, núna reynir á mig. Þú varst alltaf með á hreinu hvenær krakkarnir voru í sundi eða íþróttum og gættir þess að ég tæki til sundfötin og íþróttafötin til handa þeim og já passaðir að þau fengju nesti ef með þurfti. Þú varst alltaf dugleg að heim- sækja ömmu og fórum við á hverju ári austur í Öræfi. Öll æskuárin mín eyddir þú þínum sumarfríum í sveitinni og örugg- lega líka áður en ég kom til. Alltaf frá því Skeiðarárbrú kom fórstu með mig í rútunni austur, svo þeg- ar ég eignaðist bíl, keyrði ég þig í sveitina til að heimsækja ömmu. Þú gafst mér svo mikið. Ég sakna þín, en ég veit líka að þú ert núna á góðum stað þar sem þér líður vel. Ég elska þig, mamma. Ég bið Guð að gæta mín, góða anda að hugga mig. Sama ósk er eins til þín: Almættið það sjái um þig. (Leifur Eiríksson) Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Guðrún Sólveig Sigurgrímsdóttir. Elsku Þura amma mín. Ég vona svo innilega að þú sért komin á betri stað, að þú sért núna með langömmu, langafa og fleiri ást- vinum þínum sem hafa líka kvatt þennan heim. Ég veit að þú varst farin að bíða eftir því að kveðja undir það síð- asta. Ég sakna þín svo sárt en veit að þér líður vel núna. Ég á þér svo margt að þakka elsku amma mín. Þú átt mjög stór- an þátt í því hver ég er í dag. Nán- ast allt mitt líf bjóst þú undir sama þaki og ég, ég umgekkst þig á hverjum degi og þess vegna eru viðbrigðin mikil nú þegar þú ert farin. Þú hafðir alltaf verið mjög heilsuhraust og ég man þau árin þegar þú bjóst í Gullsmáranum og gekkst á hverjum morgni með- fram sjónum alla leið heim til okk- ar í Vesturbæ Kópavogs til að sækja okkur systkinin í skólann og vera hjá okkur yfir daginn á meðan mamma og pabbi voru í vinnunni. Það hefur ekki verið létt verk að sjá um þrjá krakkagrisl- inga, fæða, klæða og þvo. Það er mér minnisstætt þegar einn daginn Snælda, kötturinn okkar, kom inn með laskaðan fugl. Þú varst ekki lengi að taka fuglinn hálstaki og létta þjáningar hans. Ég man hvað ég var lengi í sjokki eftir þetta en skildi seinna að þú hefðir brugðist rétt við. Þegar ég hugsa um þig er það fyrsta sem kemur upp í hugann hversu góðhjörtuð þú varst. Þau voru ekki ófá skiptin sem þú gladdir okkur systkinin með pönnukökum og ég man hvað við suðuðum um að fá að hjálpa þér að gera þær og þá skiptumst við á að hræra. Ég man líka eftir því þegar þú gerðir slátur, ég kom niður til þín og þá var blóð í bala á eldhúsborð- inu og þú varst að sauma fyrir slátrið. Það var svo gaman að fylgjast með þessu. Mér þykir slátur og svið herramannsmatur, þökk sé þér, og ég ætla svo sann- arlega að halda þessari hefð uppi og hafa slátur og svið nokkrum sinnum á ári. Mér hefur alltaf fundist magn- að að þú lærðir ekki að keyra bíl, hjóla, né synda og hafðir aldrei farið út fyrir landsteinana. Við reyndum nokkrum sinnum að fá þig með okkur í sólarlandaferð en þú harðneitaðir. Þegar við komum heim úr fríunum leist þú samt allt- af út fyrir að hafa verið á Spáni frekar en við. Ég þakka fyrir það að þú skyld- ir hafa höfuðið í lagi allt fram til seinasta dags. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig að í 21 ár. Takk fyrir allt elsku amma mín. Ég mun alltaf elska þig. Kveðja, þín nafna og barna- barn, Þuríður (Þurí). Ég á margar minningar um Þuru mágkonu mína og allar eru þær góðar. Sem elsta systirin í stórum systkinahópi var heimili hennar lengi vel miðstöð þeirra yngri þegar þau fóru að vinna fyr- ir sér fyrir sunnan. Fljótlega eftir að við Kjartan fórum að vera sam- an fór ég með honum í heimsókn til hennar í Mosgerðið þar sem hún bjó þá, alltaf vorum við vel- komin og oftast lumaði hún á kök- um í boxi sem okkur fannst nú ekki verra. Margar uppskriftir fékk ég hjá henni sem okkur finnst enn ómissandi í jólabakstr- inum. Fyrir jólin kom sending austan úr Öræfum þegar búið var að reykja hangikjötið. Í pakkan- um leyndist líka heimastrokkað smjör og fleira. Þá bauð Þura systkinum sínum til sín og það var haldin veisla. Kjartani fannst þetta besti matur sem hann fékk, þetta var almennilegt bragð, mér fannst bragðið öðruvísi en ég var vön, það var miklu sterkara og bragðmeira. Seinna lærði ég að það var ekki bara maturinn úr sveitinni sem var kjarnmikill, fólk- ið var það líka. Það var gott að geta leitað til Þuru eftir að við fór- um að búa, stundum birtist hún með eitthvað sem hún vissi að kæmi sér vel, t.d. eru eldhúsáhöld enn í notkun sem hún gaf okkur. Oft fengu eldri börnin okkar að gista hjá henni og minnast þess enn að annað þeirra svaf í tveimur stofustólum sem settir voru sam- an en hitt á dýnu á gólfinu, þetta fannst þeim spennandi. Það var Þuru mikil gleði þegar hún eign- aðist Guðrúnu Sólveigu, ég held það megi segja að hún hafi helgað henni líf sitt og seinna barnabörn- unum sem veittu henni mikla gleði. Að lokum langar mig að minn- ast Þuru með síðustu ljóðlínunum úr ljóði Ómars Ragnarssonar Ís- lenska konan: Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla’ á fold. Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöld- ur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. En sólin, hún sígur, – og sólin, hún rís, – og sjá: Þér við hlið er þín hamingjudís, sem ávallt er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf: Það er íslenska konan, – tákn trúar og vonar, sem ann þér og þér helgar sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Elsku Guðrún Sólveig, Palli og fjölskylda, innilegar samúðar- kveðjur til ykkar allra. Anna María Einarsdóttir. Í dag 28. nóvember kveðjum við hana Þuru frænku okkar en hún andaðist á Landspítalanum hinn 17. nóvember síðastliðinn. Þura fæddist í Breiðutorfu í Svínafelli í Öræfum, elst af systr- um pabba okkar, Guðlaugs í Svínafelli. Þura flutti ung að heim- an og fór að vinna í Reykjavík. Frá því við munum eftir okkur kom Þura frænka austur í Svínafell á hverju ári að heimsækja ömmu og þar eyddi hún sumarfríinu sínu flest sumur. Hún kom iðulega með alls kyns kökur og góðgæti með sér og hlökkuðum við alltaf mikið til þegar von var á Þuru og ekki minnkaði eftirvæntingin þegar Guðrún Sólveig fór að koma með. Þeir sem búa úti á landi vita að það er gott að eiga góða frænku í Reykjavík sem hægt er að leita til og það var hún Þura okkar svo sannarlega, hjá henni áttum við alltaf öruggt skjól þegar við þurft- um á að halda og börnunum okkar var hún sem besta amma bæði í Reykjavík og eins á sumrin í Svínafelli. Lengst af bjó Þura í Gnoðarvoginum og á sunnudögum var oft rennt við í pönnukökur og setið að spjalli en þar hitti maður oft fleira frændfólk því margir áttu leið til Þuru. Við kveðjum þig með söknuði, elsku Þura okkar, og þökkum samfylgdina. Guðrúnu Sólveigu og fjölskyldu vottum við okkar dýpstu samúð. Sólveig og Hólmfríður Guðlaugsdætur. Í hjarta og huga okkar allra í fjölskyldunni er mikill söknuður eftir fráfall Þuru okkar. Hún var fastur punktur í tilveru okkar á svo marga vegu. Þær systurnar voru alla tíð miklar vinkonur og töluðu saman í síma nánast hvern einasta dag síðustu ár. Þegar við fjölskyldan vorum í bænum var alltaf hægt að kíkja til Þuru til að spjalla og hvíla sig frá amstrinu sem fylgdi snúningum í borginni. Þura var mér sem móðir og Guð- rún sem systir, enda kölluðu börn- in mín hana alltaf Þuru ömmu og segir það allt sem segja þarf um hug þeirra, því er söknuður okkar mikill. Guð varðveiti Guðrúnu Sól- veigu og fjölskyldu hennar og styrki þau í gegnum sorg sína. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (Vald. Briem) Halla Þuríður Gunnarsdóttir, Halldóra Guðlaug Helgadótt- ir og fjölskylda. Þuríður Gunnarsdóttir ✝ Okkar ástkæri HALLDÓR JÓNSSON frá Garpsdal, Sólvangsvegi 2, Hafnarfirði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi miðvikudaginn 21. nóvember, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 30. nóvember kl. 11.00. Jóhann Magnús Hafliðason, Sigrún Kristinsdóttir, Guðrún Hafliðadóttir, Snorri Rafn Jóhannesson, Guðmundur Hafliðason, Guðrún Magnúsdóttir, Sigríður Friðgerður Hafliðadóttir, Kristján Kristjánsson, Hjálmfríður Hafliðadóttir, Guðbrandur Ingi Hermannsson, Einar Valgeir Hafliðason, Svandís Reynisdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar systur okkar, mágkonu og frænku, GUÐFINNU HENNÝJAR JÓNSDÓTTUR, Fögrukinn 13, Hafnarfirði. Alveg sérstakar þakkir sendum við starfsfólki 2. hæðar Sólvangs, sem með einstakri hlýju og virðingu annaðist hana síðustu tvö árin. Sólveig Jónsdóttir, Sævar Gunnarsson, Jenný Jónsdóttir, Jón Auðunn Jónsson, Ólafía Sigríður Guðjónsdóttir, börn og barnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, RAGNHEIÐUR HILDUR HILMARSDÓTTIR Eskihvammi 2, Kópavogi, lést föstudaginn 16. nóvember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til allra þeirra sem veittu henni aðhlynningu í veikindum hennar. Jóhannes Viggósson, Logi Jóhannesson, Rebekka Jóhannesdóttir, Páll Sigurðsson. Rakel Ósk. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BOLLI ÞÓRODDSSON vélstjóri, Boðahlein 10, andaðist þriðjudaginn 13. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Svanhvít Hjartardóttir og fjölskylda. ✝ Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG ÓLADÓTTIR, lést á Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, sunnudaginn 18. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Álfdís Gunnarsdóttir, Þorsteinn Ingimundarson, Gunnar Hjörtur Gunnarsson, Jónína I. Melsteð, Óli Gunnarsson, Ingibjörg S. Gísladóttir, Bjarni Einar Gunnarsson, Valgerður Olga Lárusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elsku frænka okkar og vinur, MARÍA RAGNARSDÓTTIR frá Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri laugardaginn 24. nóvember. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 3. desember og hefst hún kl. 13.30. Ættingjar og vinir hinnar látnu. ✝ Okkar kæri frændi og vinur, BJARNI ERIK EINARSSON, síðast til heimilis á Hjúkrunarheimilinu Klausturhólum, Kirkjubæjarklaustri, andaðist sunnudaginn 25. nóvember. Fyrir hönd aðstandenda, systrabörn. ✝ Útför elsku móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, HELGU GUÐRÚNAR KARLSDÓTTUR SCHIÖTH, Deddu frá Hrísey, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 21. nóvember, fer fram í Kópavogskirkju föstudaginn 30. nóvember kl. 11.00. Rafn Halldór Gíslason, Alda Hallgrímsdóttir, Gísli Hinrik Sigurðsson, Jónína Sigríður Lárusdóttir, Sigurjóna Sigurðardóttir, Halldór Ásgrímsson, Ásta Sigurðardóttir Schiöth, Ellert Jón Þorgeirsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.