Morgunblaðið - 28.11.2012, Síða 26

Morgunblaðið - 28.11.2012, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012                             !  " # $   % &            $   &               $   $%&               $   &      ! "         ## "   '  "          Þetta er síðasta vikan í kennslu áður en próf og verkefnaskilskella á og ég ætti því að nýta hverja stund sem gefst til lær-dóms. En ætli ég geri ekki eitthvað til tilbreytingar, maður á að fagna hverjum afmælisdegi ef maður getur,“ segir Hugrún Geirsdóttir, mastersnemi í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands, sem verður 27 ára í dag. Hugrún segist reikna með að eiga notalega stund með vinum sínum í kvöld og svo væri hún alveg til í að bregða sér á skauta ef hún fær einhvern með sér í það. „Það er nauðsynlegt að líta aðeins upp úr námsbókunum annað slagið.“ Hugrún lauk námi í stjórnmálafræði við HÍ vorið 2011 og skellti sér eftir það til Berlínar þar sem hún dvaldi í ár og drakk í sig menningu Þjóðverja á ýmsum sviðum. Með háskólanámi hefur Hugrún unnið á kaffihúsinu Mokka við Skólavörðustíg, segir það passa vel við bóklesturinn. „Þarna fær ég þjóðlífsstraumana beint í æð frá gestum okkar, sem margir koma daglega og ræða þar allt milli himins og jarðar. Þessar umræður okkar geta nýst manni mjög vel þegar í skólann er komið,“ segir Hugrún en hún byrjaði í mastersnáminu í haust. Aðspurð segir hún stjórnmálafræðina góðan grunn fyrir þetta nám, það sé þverfaglegt þar sem sjálfbær þróun og nýting auðlinda landsins kallist á við all- ar fræðigreinar. bjb@mbl.is Hugrún Geirsdóttir mastersnemi 27 ára Nemi Hugrún Geirsdóttir er í tveggja ára mastersnámi í umhverfis- og auðlindafræði og vinnur þess á milli á kaffihúsinu Mokka. Fagna ber hverj- um afmælisdegi Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Lilja Þórólfs- dóttir gaf Rauða kross- inum 2.734 kr. sem hún safn- aði með því að vinna fyrir fjöl- skyldu sína, einnig gaf afi hennar henni peninga. Söfnun Reykjavík Freyja Kirstine fæddist 1. ágúst kl. 15.14. Hún vó 4.705 g og var 54 cm löng. Foreldrar hennar eru Julie Björk Gunnarsdóttir og Jóhann Örn Ólafsson. Nýir borgarar Hellissandur Benedikt Rúnar fæddist 18. febrúar kl. 16.15. Hann vó 5.090 g og var 57 cm langur. Foreldrar hans eru Þórunn Káradóttir og Ólafur Fannar Guðbjörnsson. M argrét er Mývetn- ingur og ólst upp í Stuðlum þar í sveit. Hún lauk námi við Kenn- araskólann árið 1972 og tón- menntakennaraprófi og í einsöng árið 1975. Hún fór í framhaldsnám í Þýskalandi, í Heidelberg- Mannheim og Stuttgart, og lauk einsöngsnámi með áherslu á ljóða- og óratoríusöng 1983. Hún lauk síðan MBA-námi með áherslu á mannauðsstjórnun frá Háskóla Ís- lands árið 2006. Margrét hefur haldið tónleika á Íslandi, Þýskalandi, Ítalíu, Frakk- landi, Spáni, á Norðurlöndunum og í Bandaríkjunum. Hún starfaði víða um land við kórkennslu og sem söngkennari, en kenndi lengst í Söngskólanum í Reykjavík. Margrét var aðstoðarmaður þjóðleikhússtjóra 2008-2009, mannauðsstjóri Þjóðleikhússins Margrét Bóasdóttir, framkvæmdastjóri og söngstjóri – 60 ára Fjölskyldan Margrét og Kristján Valur ásamt sonum sínum, Bóasi og Benedikt, á ættarmóti við Eyjafjörð 2012. Rekur fatahönnunar- fyrirtæki með syni sínum Kvennakór Háskóla Íslands Jólasöngvar Háskólans í desember 2011. Sigríður Bene- diktsdóttir Eyjaholti 10a í Garði, verður níræð 1. desem- ber næstkom- andi. Í tilefni dagsins er opið hús fyrir vini og vandamenn á afmælisdaginn milli kl. 15 og 18 í Sam- komuhúsinu Garði. Árnað heilla 90 ára

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.