Morgunblaðið - 28.11.2012, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.11.2012, Blaðsíða 27
2009-2010 og var framkvæmda- stjóri Nordic-Baltic-kórahátíðar í Reykjavík í ágúst 2010 þar sem voru 1.800 þátttakendur frá 10 löndum. Margrét hefur setið í ýmsum stjórnum og ráðum tengdum list- um. Hún var formaður Félags ís- lenskra tónlistarmanna frá 1999 til 2008 og formaður Íslensku tónlist- arverðlaunanna frá 2001 til 2007. Hún var formaður Þjóðhátíðar- sjóðs og sat í stjórn Listahátíðar 2006-2012. Hún er nú í stjórn listamannalauna og í styrktarsjóði Samtaka um tónlistarhús. Sjá sjóður sér um styrki til tónleika- halds í Hörpu. Rekur fatahönnunarfyrirtæki Margrét rekur fatahönnunar- fyrirtæki ásamt syni sínum, Bóasi. Það ber heitið 8045 ehf. Þau stefna á að kynna fyrirtæki sitt í fyrsta sinn á alþjóðlegum markaði í jan- úar 2013. Þau ætla að sýna fata- línu fyrirtækisins á tískuvikunum í Mílanó, París og New York. Fatalínan er alhliða karlmanna- fatnaður úr vistvænum efnum, t.d. mjólk, bambus, íslensku leðri og roði. Vörur fyrirtækisins eru nú til sölu í Kraumi, Atmo og hjá Sævari Karli. Kórstjóri kvennakórs Margrét hefur ekki sagt skilið við tónlistina. Hún heldur ennþá tónleika, m.a. með Chalumeaux- tríóinu, og er stjórnandi Kvenna- kórs Háskóla Íslands. „Kórinn var sameiginleg hug- mynd söngelskra stúdenta og var stofnaður m.a. í tilefni þess að fyrsti kvenrektor Háskóla Íslands var kjörinn,“ segir Margrét. Hún hefur verið stjórnandi kórsins frá upphafi, árið 2006, en hefur komið fram á ýmsum viðburðum háskól- ans og einnig haldið eigin tónleika. Kórinn kemur næst fram á svo- kölluðum doktoradegi sem haldinn verður 1. desember. Doktoradag- urinn var fyrst haldinn hátíðlegur í fyrra í tilefni af 100 ára afmæli háskólans en þá taka útskrifaðir doktorar skólans á liðnu ári við heiðursmerki skólans ásamt við- urkenningu. Fjölskylda Eiginmaður Margrétar er Krist- ján Valur Ingólfsson, f. 28.10. 1947, prestur og vígslubiskup í Skálholti. Þau giftu sig 12. júní 1971. Kristján var vígður vígslubiskup í fyrra og fluttu þau þá í Skálholt. „Hér er dásamlegt að vera,“ segir Margrét. Hún segir ferða- menn koma og skoða Skálholt allt árið um kring. „Hér eru ferða- menn hvern einasta dag.“ Margrét og Kristján Valur eiga tvo syni: Bóas, f. 16.2. 1982, fata- hönnuð og Benedikt, 23.9. 1987, söngnemanda í Berlín. Margrét er einmitt stödd í Berl- ín og mun fara þar á frumsýningu 1. desember á barnaóperu sem Benedikt, sonur hennar, syngur titilhlutverkið í. Skraddarinn hug- prúði heitir óperan sem byggð er á samnefndu Grimmsævintýri. „Á afmælisdaginn förum við út að borða á uppáhaldsveitinga- staðnum okkar í Berlín, La Mira- bella. Við höfum oft komið til Berl- ínar og þetta er frábær borg.“ Friðrik Eiríksson bóndi í Skriðdal Friðrik Eiríksson bóndi í Skriðdal Úr frændgarði Margrétar Bóasdóttur Margrét Bóasdóttir Hallgrímur Pétursson bóndi í Vogum Ólöf Valgerður Jónasdóttir húsfreyja Sigfús Hallgrímsson bóndi og organisti frá Vogum Sólveig Stefánsdóttir húsfreyja frá Öndólfs- stöðum í Reykjadal Kristín Sigfúsdóttir húsfreyja frá Vogum í Mývatnssveit Stefán Jónsson bóndi á Öndólfsstöðum Guðfinna Kristín Sigurðardóttir húsfreyja frá Arnarvatni Sigrún Jónsdóttir húsfreyja Friðrik Eiríksson bóndi í Skriðdal Margrét S. Friðriksdóttir húsfreyja Gunnar Bóasson útgerðarmaður á Reyðarfirði Bóas Gunnarsson sjómaður frá Stuðlum í Reyðarfirði Sigurbjörg Halldórsdóttir húsfreyja frá Grenjaðarstað Bóas Bóasson bóndi á Stuðlum í Reyðarfirði Afmælisbarnið Margrét Bóasdóttir. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012 GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA Ármúla 32 · Sími 568 1888 · parketoggolf.is · Þú finnur okkur líka á Facebook Jón Pálmason þingmaður fædd-ist 28. nóvember 1888 á Ytri-Löngumýri í Blöndudal. For- eldrar hans voru Pálmi Jónsson og Ingibjörg Eggertsdóttir bændur á Ytri-Löngumýri. Jón kvæntist Jónínu Valgerði Ólafsdóttur og eignuðust þau börnin: Ingibjörgu, f. 1917, Eggert Jóhann, f. 1919, Margréti Ólafíu, f. 1921, Sal- ome, f. 1926, og Pálma, f. 1929. Jón lauk búfræðiprófi frá Hólum árið 1909 og var við verklegt nám í gróðrarstöðinni á Akureyri vorið 1909. Jón var bóndi, sinnti þing- mennsku, sveitarstjórnarstörfum og sat í hinum ýmsu nefndum og ráðum. Hann bjó á Ytri-Löngumýri og á Mörk í Laxárdal en lengst af á Akri við Húnavatn frá 1923 og til æviloka. Jón sat í hreppsnefnd Bólstað- arhlíðarhrepps í rúmt ár, þá var hann oddviti Svínavatnshrepps í fjögur ár eða til ársins 1923. Jón var þingmað- ur fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 1933- 1959, í Austur-Húnvatnssýslu. Hann var skipaður landbúnaðarráherra 6. desember árið 1949 og gegndi því embætti í ár. Hann var settur sem yfirskoð- unarmaður ríkisreikninganna frá 1937-1963. Hann var kosinn 1942 í raforkumálanefnd og sat í nýbýla- stjórn 1947-1970. Hann sat í banka- ráði Landsbankans í þrjú ár, þar til hann tók sæti í bankaráði Bún- aðarbankans frá 1956-1968. Jón Pálmason var tíu sinnum kos- inn forseti sameinaðs Alþingis, næst- ur á eftir Jóni Sigurðssyni, forseta, sem hefur setið oftast. Eftir Jón liggur ein ljóðabók; Ljóð- mæli, sem kom út 1965. Í henni er að finna safn af hefðbundnum ljóðum. Þóra frá Kirkjubæ ritar formála um alþýðukveðskap almennt og segir frá kvæðum Jóns. Í fréttatilkynningu bókarinnar segir að Jón sé þekktur hagyrðingur. Rituð var bók um Jón á Akri og kom út árið 1978. Hersteinn Pálsson bjó til prentunar, í ritröðinni Man ég þann mann; bókaflokkur um mæta menn. Jón lést 1. febrúar árið 1973. Merkir Íslendingar Jón Pálmason 90 ára Judith Jónsson Magnús J. Jóhannsson Ólafur Guðlaugsson 80 ára Gunnar Steinsson Sigríður E. Sveinsdóttir 75 ára Ingólfur Ingólfsson Jóhanna Jóhannesdóttir Kristófer Jakobsson Sveinbjörn Helgason 70 ára Elín Heiðdal Elísabet Jónsdóttir Hinrik H. Hermannsson Kristinn M. Kjartansson Svava Axelsdóttir Þóra Kristín Arthursdóttir 60 ára Árni Sævar Ingimundarson Hulda Rósfr. Magnúsdóttir Ingunn Jóna Gunnarsdóttir Magnús S. Dómaldsson Margrét Bóasdóttir Oddný Sigsteinsdóttir Rebekka J. Ragnarsdóttir Steinunn Gísladóttir 50 ára Anna M. Guðmundsdóttir Atli Þór Þorvaldsson Berglind Óladóttir Bjarnfríður Jónudóttir Björn Indriðason Eiríkur Pétursson Guðjón Auðunsson Hrefna Björnsdóttir Jórunn Halldórsdóttir Kristján Aðalbj. Jónasson Margrét G. Valdimarsdóttir Sigurður Harðarson Sólveig Hauksdóttir Weiqiang Yao 40 ára Agnieszka Imgront Ásbjörn Ólafsson Benedikt Arnarson Björn Birgir Jensson Eyjólfur Gunnarsson Guðbjörg S. Guðbrandsd. Gyða Björk Guðjónsdóttir Helga G. Þorvarðardóttir Kateryna Sigmundsson Ragnhildur H. Jónsdóttir Reynir Þór Reynisson Snæbjörn Steingrímsson Xhavit Bajraktari Þorkatla Sigurðardóttir 30 ára Andrzej Maria Konarzewski Ása Jónsdóttir Áslaug Torfadóttir Erna Dís Ingólfsdóttir Ewa Ewelina Sapiegin Grzegorz Z. Dzierzchowski Hafliði Helgi Hafliðason Hjördís E. Valdimarsdóttir Ingibjörg Sigþórsdóttir Jóhanna S. Hannesdóttir Marcin Chojnowski Skarphéðinn A. Njálsson Tomasz Patryk Widomski Þórey Ösp Gunnarsdóttir Til hamingju með daginn 40 ára Snæbjörn er framkvæmdastjóri Sam- taka myndréttarhafa á Ís- landi og BA-nemi í lög- fræði við HR. Maki: Soffía Sigurjóns- dóttir, f. 1973, bókari. Börn: Steingrímur, 1995; Sara Sif, 1996; Bryndís Lóa, 2003; Hildur Björk, 2011. Foreldrar: Steingrímur Björnsson, 1954, læknir í Skotlandi, og Bryndís Hildur Snæbjörnsdóttir, 1955, prófessor við Gautaborgarháskóla. Snæbjörn Steingrímsson 50 ára Sigurður er með MBA-gráðu frá London Business School og er framkvæmdastjóri verð- bréfafyrirtækisins Centra. Maki: Helga Sigurðar- dóttir, 1962, MA-nemi í uppeldisfræðum, leik- skólakennari. Börn: Pálína, 1979; Pétur, 1982; Stefán Alexis, 1993; Daníel Emil, 1995. Foreldrar: Hörður Stef- ánsson, 1930, fv. hitaveitu- stjóri, og Halldóra Haralds- dóttir, 1931, fv. fræmeistari Garðyrkjufélags Íslands. Sigurður Harðarson 30 ára Hafliði fæddist í Reykjavík, ólst m.a. upp í Þorlákshöfn og í Garðabæ frá níu ára aldri. Býr í Kópavogi. Vinnur sem bif- vélavirki hjá Pústþjónustu BJB í Hafnarfirði. Var áður bílstjóri hjá Eimskipi. Var í keiluliðinu Flytjanda og æfði hjá hnefaleikafélag- inu Æsi. Maki: Ógiftur. Foreldrar: Hafliði Emils- son, 1964, verkstjóri hjá BJB, og Guðný Sigurðar- dóttir, 1963, bókari. Hafliði Helgi Hafliðason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.