Morgunblaðið - 28.11.2012, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012
Tilkynnt hefur verið hvaða fjórir
listamenn eru tilnefndir til
Deutsche Börse-ljósmyndaverð-
launanna árið 2013, einhverra virt-
ustu verðlauna sem veitt eru ár-
lega fyrir verk í
ljósmyndamiðlinum. Tilnefnt er
fyrir tiltekin verkefni, bók eða
sýningu, sem sett hafa verið fram
á árinu sem er að líða. Suðurafr-
ísku samstarfsmennirnir Adam
Broomberg & Oliver Chanarin eru
tilnefndir fyrir bókina War Primer
2, Bretinn Mishka Henner fyrir
sýninguna No Man’s Land, landi
hans Chris Killip fyrir sýninguna
What Happened Great Britain
1970-1990, og hin spænska
Cristina De Middel fyrir bókina
The Afronauts.
Verk hinna tilnefndu verða sýnd
í Photographers’ Gallery í London
áður en tilkynnt er hver hlýtur
verðlaunin og verðlaunaféð, sem
nemur um sex milljónum króna.
Tilnefndur Úr verki Killips „What
Happened, Great Britain 1970-90.“
Tilnefnd fyrir
ljósmyndir
Söngkonan Ragnheiður Gröndal
ásamt hljómsveit leikur í Múlanum í
Norræna húsinu í kvöld. Á efnis-
skránni eru sígræn djasslög úr
ýmsum áttum sem Ragnheiður hef-
ur sungið og þróað í sínum flutningi
frá unga aldri. „Á leiðinni er daðr-
að við hinar ýmsu stefnur og
strauma eins og popp, þjóðlaga- og
heimstónlist, blús og jafnvel rev-
íutónlist,“ segir m.a. í tilkynningu.
Hljómsveit kvöldsins skipa þeir
Guðmundur Pétursson á gítar,
Þórður Högnason á bassa og Birgir
Baldursson á trommur.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og
er 1.500 króna aðgangseyrir, en
1.000 kr. fyrir nemendur.
Djass Ragnheiður Gröndal kemur
fram ásamt hljómsveit.
Ragnheiður
í Múlanum
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Jólamyndir, í huga þess sem hér
skrifar, eiga að vera ævintýralegar,
með fallegum boðskap og höfða til
breiðs aldurshóps. Eflaust eru marg-
ir ósammála þeirri skoðun, Die Hard
var t.a.m. frumsýnd á jólum og er hún
jafnan talin til jólamynda, þó að blóð-
ug sé og ofbeldisfull. Þó fallast allir í
faðma að lokum og það er vissulega í
anda jólanna. En höldum okkur við
þær ævintýralegu fyrir alla fjölskyld-
una. Nokkrar slíkar verða frum-
sýndar fyrir og á jólum og verða hér
reifaðar.
Sýningar á teiknimyndinni Niko 2
eru þegar hafnar. Niko 2 segir af
hreindýrskálfi sem lendir í ýmsum
ævintýrum en í fyrstu myndinni hélt
hann að hann væri eitt af hreindýrum
jólasveinsins. Hann gat því miður
ekki flogið eins og þau en fann lausn á
því vandamáli. Börnin hafa gaman af
krúttlegum hreindýrum.
Life of Pi verður frumsýnd 21. des-
ember og bíða eflaust margir spennt-
ir eftir henni. Myndin er byggð á
samnefndri skáldsögu Yanns Mar-
tels. Í myndinni rekur indverski
blaðamaðurinn Piscine ævintýralega
ævisögu sína. Þegar hann var dreng-
ur ákváðu foreldrar hans að flytja til
Kanada og hefja þar nýtt líf. Þau áttu
dýragarð og fluttu dýrin með sér á
skipi en skipið sökk og menn og dýr
um borð létu lífið. Piscine náði hins
vegar að komast í björgunarbát
ásamt órangútanapa, hýenu, sebra-
hesti og tígrisdýrinu Richard Parker.
Segir myndin m.a. af samskiptum
Piscine við dýrin og hvernig honum
tekst að lifa af samvistir við tígris-
dýrið. Leikstjórinn er ekki af verri
endanum, Ang Lee, sá hinn sami og
gerði Brokeback Mountain og
Crouching Tiger, Hidden Dragon.
Hobbitinn, eða Hobbit: An Unexpec-
ted Journey, verður frumsýnd annan í
jólum. Söguna af Hobbitanum þarf
vart að kynna fyrir áhugamönnum
um ævintýri en hún er byggð á sam-
nefndri skáldsögu J.R.R. Tolkiens og
er forsaga Hringadróttinssögu sama
höfundar. Í Hobbitanum segir af æv-
intýrum hobbitans Bilbós Bagga en
galdramaðurinn Gandálfur knýr einn
dag dyra með þrettán dvergum og
gjörbreytir lífi hans. Við tekur mikill
leiðangur, leit að fjársjóði sem óg-
urlegur dreki að nafni Smeyginn stal
frá dvergunum fyrir löngu. Leikstjóri
myndarinnar er enginn annar en Pet-
er Jackson, sá hinn sami og gerði þrí-
leikinn upp úr Hringadróttinssögu og
í aðalhlutverkum eru Andy Serkis,
Ian McKellen, Martin Freeman og
Richard Armitage. Aðdáendur Tolki-
ens verða varla sviknir.
Rise of the Guardians verður frum-
sýnd 7. desember, teiknimynd frá
Dreamworks fyrirtækinu. Í henni
segir af því er illa innrættur andi,
Ótti, ætlar sér að gera árás á Jörðina
og koma hinir sk. Verndarar henni til
bjargar. Í þeim hópi eru jólasveinn-
inn, tannálfurinn, páskakanínan og
Jack Frost, eða Jökull Frosta sem er
bandarískum börnum kunnugri en ís-
lenskum.
Ein íslensk mynd verður frumsýnd
á nýju ári, 1. janúar, XL eftir leikstjór-
ann Martein Þórsson. Í henni fer
Ólafur Darri Ólafsson með hlutverk
drykkfellds þingmanns með allt niður
um sig. Ekki svo jólalegt en hver veit
nema jólalegan boðskap verði að
finna í henni líkt og Die Hard hér
forðum.
Jólamyndirnar 2012
Hobbitinn og Life of Pi eru meðal jólamynda í ár Ævintýri fyrir alla fjöl-
skylduna, bæði leiknar myndir og teiknaðar Íslensk mynd frumsýnd 1. janúar
Verndarar Úr Rise of the Guardians, teiknimynd sem er ein jólamynda bíóhúsanna í ár.
Forsagan Úr Hobbitanum, sívinsælli sögu Tolkiens. Bilbo Baggins með nokkrum dvergum.
Lífsbarátta Úr Life of Pi, maður og tígrisdýr þurfa að læra að lifa í sátt.
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Sérsmíðaðar innréttingar
Hjá GKS færð þú faglega ráðgjöf er varðar
sérsmíði á innréttingum.
Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði
alla leið inn á þitt heimili.