Morgunblaðið - 28.11.2012, Page 32

Morgunblaðið - 28.11.2012, Page 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012 Sýning á úrvali verka Errós frá fyrri hluta ferils hans stendur nú yfir á Bryggen, menningarmiðstöðinni Norðurbryggju í Kaupmannahöfn. Í ítarlegri umfjöllun um sýninguna í dagblaðinu Politiken segir að Erró sé einn hinna stóru alþjóðlegu myndlistarmanna Norður- landanna og að þetta fyrsta tímabil ferils hans sé ekki síst merkilegt og frumlegt á annars löngum og mik- ilvirkum ferli. Rýnirinn segir verkin glæsileg í ofhlæði sínu, og einnig afar skemmtileg skoðunar, en finnur helst að því að sýningin hefði átt að vera sett upp í stærra safni. Fjallar um ofhlæði nútímalífs Morgunblaðið/Árni Sæberg Erró Sýning á verkum hans vekur athygli í Kaupmannahöfn. Tónleikaröðin „Jólin allsstaðar“ hefst í Ólafsvíkurkirkju í kvöld, með tónleikum klukkan 21. Flytjendur munu á næstu dögum færa sig frá einum bæ til annars og koma alls fram í nítján kirkjum í þessari viða- miklu tónleikaröð. Þeir lofa ljúfum tónleikum þar sem mestmegnis verða flutt gamalkunnug jólalög. Söngvararnir Regína Ósk, Guð- rún Árný, Guðrún Gunnars og Jógv- an verða í fararbroddi flytjenda, ásamt fjórum hljóðfæraleikurum, og svo bætist í hópinn barnakór frá hverjum stað þar sem sungið er. Hópurinn ferðast saman allan hring- inn á sannkallaðri jólarútu, hann vonast til að koma með jólin með sér og markmiðið er að glens, gleði og hátíðleiki fari saman í stund fyrir alla fjölskylduna. Diskur með jólalögunum Í tilefni af tónleikaröðinni gefur hópurinn út geisladiskinn „Jólin alls- staðar“, með flestum lögunum sem þau flytja, og kemur hann út í dag. Næstu tónleikar hópsins eru í Tálknafjarðarkirkju á morgun, fimmtudag klukkan 21, miðnæt- urtónleikar eru á föstudagskvöldið í Stykkishólmskirkju og svo eru tón- leikar í Grindavíkurkirkju klukkan 15 á laugardag, í Keflavíkurkirkju klukkan 20 þá um kvöldið, og á sunnudagskvöld klukkan 21 verða tónleikar í Landakirkju í Vest- mannaeyjum. Lokatónleikar hópsins verða í Grafarvogskirkju 20. desember. Halda jólatónleika í nítján kirkjum  Barnakórar syngja alls staðar með Jólastemning Meðal flytjenda eru nokkrir landskunnir söngvarar. Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur tónlist úr Star Wars-myndunum á tónleikum í Hörpu í kvöld og ann- að kvöld kl. 19.30. Í tilkynningu frá hljómsveitinni kemur fram að John Williams sé einn þekktasti og farsælasti tónsmiður í sögu Banda- ríkjanna. Hann hafi t.a.m. verið tilnefndur til Óskarsverðlaunanna alls fjörutíu sinnum og hreppt þau í fimm skipti. Stjórnandi á tónleikunum er Lu- cas Richman en hann hefur stjórn- að hljómsveitum víða um heim, m.a. Fílharmóníusveitum New York-borgar, Los Angeles og í Fíladelfíu. Richman hefur unnið með mörgum kvikmynda- tónskáldum og árið 2010 bauð John Williams honum að stjórna tónlistinni við Stjörnustríðsmynd- irnar á þriggja mánaða löngu tón- leikaferðalagi. Miðasala er á sin- fonia.is og harpa.is Kvikmyndatónlist Ekki er víst hvort Richman stjórnandi skipti tónsprot- anum út fyrir geislasverð, eins og beitt er í Stjörnustríðskvikmyndunum. Stjörnustríð hjá Sinfó Fornbókabúðin Bókin efnir þessa dagana til uppboðs á vefnum www.uppbod.is í sam- starfi við Gallerí Fold. Boðnar eru upp 148 bækur og lýkur uppboðinu 2. desember. Ýmis forvitnileg rit eru boð- in upp. Til að mynda er ágætt úrval ljóðabóka, þar á meðal fyrsta bók Steinunnar Sigurð- ardóttur, nokkrar af fágætari ljóðabókum Dags Sigurð- arsonar og Nei eftir Ara Jós- epsson. Gott úrval listaverka- bóka er á uppboðinu, bækur Þorvalds Thoroddsen og bæk- ur Benedikts Gröndal. Þá eru boðin upp rit frá gömlu ís- lensku prentstöðunum, Hólum, Leirárgörðum og Viðey. Bæk- urnar verða til sýnis í verslun Bókarinnar ehf. Klapparstíg 25-27, dagana 28. nóv- ember - 1. desember Fjölbreytilegt úrval fágætra rita á bókauppboði Ferðabók Mynd úr Ferðabók Hookers frá 1809 sem boðin er upp. Lífið er litríkt Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150 60 ára reynsla á Íslandi Útsölustaðir: Verslanir Húsasmiðjunnar, Verslanir ELKO, Byggt og Búið, Verslanir Ormsson, BYKO Akureyri, Þristur, Hljómsýn, Geisli, Skipavík, Kaupfélag Skagfirðinga og Johann Rönning. J. A. Ó. - MBL SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS ÍSLENSKT TAL NÁNAR Á MIÐI.IS T.V. - KVIKMYNDIR.IS SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 8 - 10.40 12 HERE COMES THE BOOM KL. 5.40 - 8 - 10.20 7 NIKO 2 KL. 4 - 6 L PITCH PERFECT KL. 5.30 - 8 12 HOTEL TRANSYLVANIA ÍSL. TEXTI KL. 3.30 7 SKYFALL KL. 5 - 8 - 10.30 12 SKYFALL LÚXUS KL. 5 - 8 12 TEDDI LANDKÖNNUÐUR KL. 3.30 L SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 6 - 8 - 10.40 12 SNABBA CASH 2 KL. 8 - 10.15 16 CLOUD ATLAS KL. 5.30 - 9 16 SKYFALL KL. 9 12 DJÚPIÐ KL. 5.50 10 THE DEEP ENSKUR TEXTI KL. 5.50 10 HERE COMES THE BOOM KL. 8 7 SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.50 - 8 12 SNABBA CASH 2 KL. 10.15 16 PITCH PERFECT KL. 5.50 12 SKYFALL KL. 10 12 –ROLLING STONE -T.V. SÉÐ OG HEYRT VIKAN 91% FRESH ROTTENTOMATOES 8.2 IMDB THE TWILIGHT SAGA - PART 2 Sýndkl.10:25 SILVER LININGS PLAYBOOK Sýndkl.8-10:25 NIKO 2: BRÆÐURNIR FLJÚGANDI Sýndkl.6 SKYFALL Sýndkl.10 PITCH PERFECT Sýndkl.5:50-8 WRECK-IT RALPH 3D Sýndkl.5:40 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar 8,2 - IMDB 91% FRESH - Rottentomatoes 80/100 ,,Skilar því sem óþreyjufullir aðdáendur voru að bíða eftir.” The Hollywood reporter Boxoffice Magazine 80/100 Variety -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is 12 12 12 12 L L ,,Sú besta í allri seríunni” T.V - Kvikmyndir.is ,,Fyrsta flokks 007” J.A.Ó - MBL ,,Þrælspennandi og skemmtileg frá upphafi til enda” H.V.A - FBL Þ.Þ - FBL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.