Morgunblaðið - 28.11.2012, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012
Olíumálverk af Heklu frá árinu 1906,
eftir Þórarin B. Þorláksson, var
slegið hæstbjóðanda á listmunaupp-
boði Gallerís Foldar á mánudags-
kvöldið á tvær milljónir króna. Við
verð við hamarshögg leggst upp-
boðsgjald og höfundarréttargjald,
samtals rúmlega tuttugu prósent,
þannig að fullt verð verksins var
hátt í tvær og hálf milljón króna,
sem var við efri mörk matsverðs
þess. Meðal annarra dýrra verka
sem seldust á uppboðinu má nefna
málverk Jóhannesar Kjarvals af
systkinum, 35 x 47 cm, sem seldist
vel yfir matsverðinu, sem var 1 til
1,2 milljónir en verkið var slegið
hæstbjóðanda á 1,7 milljónir, auk
gjalda. Þá seldist stórt abstrakverk
eftir Þorvald Skúlason frá 1956 á 1,6
milljónir og verk eftir Gunnlaug
Blöndal sem sýnir dreng borða
morgungraut á 1,15 milljónir; tvö ol-
íumálverk eftir Jóhann Briem voru
seld, á 1,25 milljónir og 950 þúsund
krónur.
Athygli vakti hve ákaft var boðið í
fallega en frekar litla mynd Stefáns
„Stórvals“ Jónssonar af Herðubreið.
Var hún slegin hæstbjóðanda á 290
þúsund, samtals rúmlega 360 þús-
und kr., sem er með því hærra sem
heyrst hefur um fjallaverk Stórvals
á uppboði en hinsvegar hafa myndir
hans af hestum og hrútum selst á
talsvert hærra verði á markaði.
Vel lukkað styrktaruppboð
Á sunnudagskvöld var haldið á
Hótel Borg uppboð á ljósmyndum til
styrktar Ingólfi Júlíussyni ljós-
myndara sem glímir við bráðahvít-
blæði. Jóhann Ágúst Hansen hjá
Galleríi Fold annaðist uppboðið og
segir hann öll verkin, sem ljósmynd-
arar gáfu auk málverks eftir Tolla,
hafa selst, fyrir samtals um 2,3 millj-
ónir króna.
„Verkin fóru flest á viðunandi
verði, um 20 til 40 þúsund krónur.
Dýrasta myndin var slegin á 120
þúsund, en hún sýnir Bjarna Bene-
diktsson og Steingrím J. Sigfússon í
sjómanni,“ segir Jóhann. efi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Slegið Tryggvi P. Friðriksson slær hæstbjóðanda verkið Systur eftir Kjar-
val á 1,7 milljónir króna, auk gjalda. Var það næsta hæsta verð sem fékkst.
Verk Þórarins B.
dýrast á uppboði
Tekist á um Herðubreið Stórvals
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Meira fjör er undirtitill á öðru
bindinu af Skagfirskum skemmtisög-
um sem nýverið kom út. Í bókinni er
að finna 237 gamansögur af Skag-
firðingum, gestum þeirra og góð-
kunningjum sem blaðamaðurinn
Björn Jóhann Björnsson hefur tekið
saman. Hann tók einnig saman fyrra
bindið af Skagfirskum skemmtisög-
um sem út kom í fyrra og innihélt ríf-
lega 200 gamansögur.
En hvernig kom það til að þú fórst
að safna þessum sögum upphaflega?
„Guðjón Ingi Eiríksson hjá Bóka-
útgáfunni Hólum hafði samband við
mig, en hann hafði í nokkur ár reynt
að fá einhvern til verksins. Eftir smá
umhugsun ákvað ég að slá til og sé
ekkert eftir því, þetta hefur verið
skemmtilegt og maður hefur kynnst
mörgu góðu og að sjálfsögðu bráð-
fyndnu fólki.“
Sagnamenn á ýmsum aldri
Hvernig safnar þú sögunum?
„Ég hef leitað fanga í ýmsum
skriflegum heimildum en ekki hvað
síst munnlegum frásögnum frá
Skagfirðingum. Sagnamenn eru á
öllum aldri og koma úr ýmsum áttum
og flestum hreppum Skagafjarðar,
bæði burtfluttir og heimamenn. Þar
er af nægu að taka, margir sem
kunna sögur og segja vel frá. Þeirra
er ekki getið sérstaklega í heim-
ildaskrá en kunnugir geta í mörgum
tilvikum lesið á milli línanna. Sögu-
menn eru yfirleitt fúsari til frásagnar
vitandi það að þeirra sé ekki getið
sem heimildarmanna. Ég gæti þess
að alls velsæmis sé gætt þannig að
sögurnar særi engan, markmiðið er
fyrst og fremst að geta skemmt fólki
og halda um leið sögunum til haga.
Þær mega ekki glatast.“
Nú er þetta önnur bókin með
skagfirskum skemmtisögum. Mega
lesendur eiga von á fleiri bókum?
„Já, fyrra bindið kom út fyrir síð-
ustu jól og var almennt vel tekið, eig-
inlega betur en ég átti von á. Ég á all-
nokkrar sögur í handraðanum og
veit um miklu fleiri þarna úti, einnig
eru nokkrir sagnamenn sem mér
hefur ekki tekist enn að hitta á. Það
er alltaf að bætast á listann, þannig
að í stöðunni er ekki ólíklegt að
þriðja bindið líti dagsins ljós. Eru trí-
lógíur ekki vinsælar í dag?“
Hvað er svona skemmtilegt við
Skagfirðinga?
„Það eru til gamansögur í hverju
héraði og ég læt öðrum eftir að
dæma hvort Skagfirðingar séu
skemmtilegir eða eitthvað fyndnari
en aðrir. Þeir hafa að minnsta kosti
húmor fyrir sjálfum sér, taka sig
ekkert alltof hátíðlega og hafa gam-
an af því að segja sögur, ekki síst af
nágrannanum. Sagnahefðin er rík í
Skagafirðinum og mikið verið gefið
út þar af bókum gegnum tíðina.
Svæðið hefur alið af sér marga
snjalla fræðimenn, rithöfunda og
ljóðskáld og í gamansögunum getur
verið stutt á milli skáldskapar og
raunveruleikans, þó að sögurnar séu
að sjálfsögðu allar dagsannar.“
„Þeir hafa húmor
fyrir sjálfum sér“
Fleiri gamansögur af Skagfirðingum og gestum þeirra
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Satt „Í gamansögum getur verið stutt á milli skáldskapar og raunveruleik-
ans, þó að sögurnar séu að sjálfsögðu allar dagsannar,“ segir Björn Jóhann.
Í einni kórferð karlakórsins Heimis milli landshluta var komið við í
ónefndri vegasjoppu og fengið sér að borða. Spurði Pétur á Hjaltastöðum
þá hvað væri á matseðlinum. „Ég er með snitsel,“ svaraði matseljan. Pét-
ur hugsaði sig um og sagði: „Nú, já, ég hef fengið bæði útsel og landsel,
en aldrei smakkað snitsel áður!“
Á Hólahátíð um árið var mættur fjöldi presta og kirkjan yfirfull af fólki
víða að af Norðurlandi. Einn af prestunum, líkast til úr Skagafirði, segir
þá við annan: ,,Fátt er hér af guðsbörnum – flestir Akureyringar.“
„Fátt er hér af guðsbörnum“
TVÆR SÖGUR ÚR BÓKINNI SKAGFIRSKAR SKEMMTISÖGUR 2
MBL
14 14
LOKAMYNDIN Í EINNI STÆRSTU KVIKMYNDASERÍU ALLRA TÍMA
Í 2D OG 3D MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Í 2D MEÐ ENSKU
TALI/ÍSL TEXTA
-VARIETY
-HOLLYWOOD REPORTER
BOXOFFICE MAGAZINE
12
80/100
VARIETY
80/100
SKILAR ÞVÍ SEM ÓÞREYJUFULLIR
AÐDÁENDUR VORU AÐ BÍÐA EFTIR.
THE HOLLYWOOD REPORTER
BOXOFFICE MAGAZINE
L
-FBL
-FRÉTTATÍMINN
12
7
ROGER EBERT CHICAGO SUN-TIMES
16
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
EKKI FYRIR VIÐKVÆMA
ALVÖRU HROLLVEKJA
EGILSHÖLL
L
L
14
12
712
ÁLFABAKKA
VIP
VIP
16
16
16
14
L
L
L
POSSESSION KL. 5:50 - 8 - 10:10
POSSESSION LUXUS VIP KL. 10:30
TWILIGHT: BREAKING DAWN 2 KL. 5:30 - 8 - 10:30
TWILIGHT : BREAKING DAWN 2 VIP KL. 5:30 - 8
WRECK IT RALPH ÍSL.TALI KL. 5:50
WRECK IT RALPH ENS.TALI KL. 8 - 10:10
ARGO KL. 5:30 - 8 - 10:30
HOPE SPRINGS KL. 5:50 - 8
END OF WATCH KL. 10:10
12
16
L
L
AKUREYRI
14
THE POSSESSION KL. 8 - 10:20
WRECK-IT RALPH ÍSL.TALI3D KL. 6
TWILIGHT: BREAKING DAWN 2 KL. 8
ARGO KL. 10:20
BRAVE HIN HUGRAKKA ÍSL.TALI KL. 6
KEFLAVÍK
7
L
16
16
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
12
12
12
POSSESSION KL. 8 - 11
TWILIGHT KL. 5:30 - 8 - 10:30
SKYFALL KL. 5 - 8 - 10:10
WRECK IT RALPH ÍSL.TALI KL. 5:5H0
TWILIGHT BREAKING KL. 10:20
THE POSSESSION KL. 8 - 10
HERE COMES THE BOOM KL. 8
TWILIGHT: BREAKING DAWN PART 2
KL. 5:30 - 8 - 10:30
HERE COMES BOOM 5:40 - 8 - 10:20
ARGO KL. 8 - 10:30
CLOUD ATLAS KL. 8
WRECK-IT RALPH ÍSL3D KL. 5:30
WRECK-IT RALPH ENSTALKL. 5:50
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
Lyftarar og staflarar í yfir 600 útgáfum
EINSTAKT - hillulyftari sem getur líka unnið úti
▪ Rafdrifnir brettatjakkar með eða án palls. Allt að 5.350 mm lyftihæð
og 3.000 kg lyftigeta
▪ Tínslu- og þrönggangalyftarar með allt að 14.250 mm lyftihæð
▪ Rafmagns- og dísellyftarar með allt að 9.000 kg lyftigetu
▪ Hillulyftarar með allt að 12.020 mm lyftihæð