Morgunblaðið - 05.12.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2012
Signý Gunnarsdóttir
signy@mbl.is
H
ann er ærslafullur
hvolpur sem er fær
um hinar ýmsu
hundakúnstir og á sér
bæli hjá Styrkt-
arfélagi lamaðra og fatlaðra. Hann
heitir Hvati og er hugarsmíð Evu
Þengilsdóttur. Fyrir fjórum árum
síðan fékk Eva teiknarann Kára
Gunnarsson til liðs við sig til að gefa
Hvata útlit. Það varð úr og Hvati
lifnaði við á blaði og varð síðan að
handbrúðu sem seld var í Hag-
kaupum til styrktar Styrktarfélagi
lamaðra og fatlaðra. Brúðan seldist
upp um tíma en er nú aftur fáanleg. Í
gegnum vinnu
sína hjá Styrkt-
arfélaginu og
móðurhlutverkið
hefur Eva fundið
hjá sér þörf að
koma á markað
efni sem ýtir und-
ir hreyfingu
barna. Hún hefur
nú samið bók um hvolpinn Hvata og
vini hans, Gerðu eins og ég, en með
þeirri bók hvetur hún börnin til að
hreyfa sig um leið og bókin er lesin.
„Mig langaði að skrifa ævintýri um
Hvata sem leyfði við lestur að barnið
stæði upp og hreyfði sig og hreinlega
hoppaði og skoppaði. Æfingarnar
eru frá mér komnar en ég fékk Æf-
ingastöðina og Áslaugu Guðmunds-
dóttur yfirsjúkraþjálfara þar á bæ til
að fara yfir þær og leggja blessun
sína yfir. Það skipti mig miklu máli
að vinna bókina með fagaðilum sem
ég tel vera þá fremstu á sínu sviði.“
Hvati varð til í kvöldsögu
Hvati varð ekki til á einni nóttu
heldur þróaðist hann upp úr kvöld-
sögum sem Eva sagði börnunum sín-
um. „Krakkarnir mínir báðu mig oft
Fluttist úr
kvöldsögum í bók
Eva Þengilsdóttir vill með nýútkominni bók sinni Gerðu eins og ég – Hvati og dýr-
in hvetja leikskólabörn til hreyfingar.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hvatning Eva Þengilsdóttir vill hvetja leikskólabörn til að hreyfa sig meira.
Á aðventunni fer marga að klæja í
puttana og langa til að föndra eitt-
hvað fallegt. Kannski eitthvað kósí
fyrir heimilið eða þá fallegan hlut í
jólapakkann. Vefsíðan mommy-
bydaycrafterbynight.com er tilvalin
til að sækja sér innblástur fyrir
svona nokkuð. Þar bloggar hin
bandaríska Ashley sem töfrar fram
ýmiskonar föndur á meðan börnin
hennar sofa. Nýjasta nýtt á síðunni
hennar Ashley er fallegt jóla-
bútasaumsteppi sem hún útskýrir
fyrir lesendum sínum skref fyrir
skref hvernig eigi að búa til. Á vef-
síðunni sýnir Ashleylíka hvernig
hægt er að búa til tösku úr fallegu
efni fyrir bleyjur og annað slíkt
sem fylgir litlum ungum. Skemmti-
leg og persónuleg gjöf handa verð-
andi foreldrum. Á vefsíðunni
mommybydaycrafterbynight.com er
að finna margar góðar hugmyndir
sem tilvalið er að framkvæma nú í
skammdeginu.
Vefsíðan www.mommybydaycrafterbynight.com
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bútasaumsteppi Persónuleg gjöf sem gera má úr efnisafgöngum æskunnar.
Heimatilbúnar gjafahugmyndir
Syng barnahjörð kallast jólatónleikar
sem haldnir verða í Bústaðakirkju í
kvöld, miðvikudagskvöldið 5. desem-
ber kl. 20.00. Á tónleikunum mun
Kór Bústaðakirkju undir stjórn Jón-
asar Þóris syngja ásamt Kammerkór
unglinga og Barnakór Bústaðakirkju.
Kórarnir eru undir stjórn Svövu Krist-
ínar Ingólfsdóttur en einsöngvarar úr
kór eru: Anna Sigga Helgadóttir,
Edda Austmann, Gréta Hergils, Hörn
Hrafnsdóttir, Jóhann Friðgeir Valdi-
marsson, Rósalind Gísladóttir, Svan-
ur Valgeirsson, Svava Kristín Ingólfs-
dóttir og Sæberg Sigurðsson. Á
efnisskránni eru þekkt jólalög frá
ýmsum löndum, lög helguð heilagri
guðsmóður af nýútkomnum diski
Grétu Hergils, jólagospel í anda Ma-
halia Jackson og fleira. Miðaverð er
2.500 kr. og fer miðasala fram í Bú-
staðakirkju og hjá kórfélögum.
Endilega…
…hlýðið á Syng barnahjörð
Morgunblaðið/Kristinn
Bústaðakirkja Jólatónleikar í kvöld.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.