Morgunblaðið - 06.12.2012, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2012
VIÐSKIPTABLAÐ
Kröfuhafar óttast
lagabreytingar sem
gætu verið í
farvatninu.
Tilbúnir að slá
af kröfum sínum
6-7
Annasamasti tími
ársins hjá dýrasnyrti-
stofunni
Dekurdýrum
Snyrtir og fínir
jólahundar
10
Eigendur og stjórn-
endur Kabúl-banka
tóku sér 900
milljónir dollara.
Eigendurnir
rændu bankann
4
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Bandarískir eigendur Íslenskrar erfðagrein-
ingar hafa komið með meira en 5,5 milljarða
króna í gegnum fjárfestingaleið Seðlabankans
það sem af er ári til að fjármagna innlendan
rekstur og fjárfestingar fyrirtækisins.
Í upphafi síðasta mánaðar samþykkti
stjórn ÍE að gefa út tæplega 413 milljóna
króna skuldabréf til að fjármagna rekstur fé-
lagsins. Skuldabréfið, sem ber enga vexti og
höfuðstólinn á að greiða í heilu lagi tíu árum
síðar, var selt til bandarískra fjárfesta sem
keyptu fyrirtækið 2010 eftir að móðurfélagið
DeCode fór í greiðslustöðvun.
Þetta er í annað skipti á þessu ári sem
hluthafar ÍE nýta sér fjárfestingaleið Seðla-
bankans. Frá því var greint í Viðskiptablaði
Morgunblaðsins í septembermánuði síðast-
liðnum að þeir hefðu fjármagnað 5,1 milljarðs
skuldabréfaútgáfu ÍE með sama hætti í febr-
úar á þessu ári.
Fjárfestingaleið Seðlabankans gengur út
á að fjárfestar komi með gjaldeyri til landsins
og skipti honum fyrir krónur og fjárfesti hér
til lengri tíma. Gulrótin fyrir fjármagnseig-
endur er að þeir fá 20% afslátt af krónunum.
Fram kom í Viðskiptablaðinu í síðustu
viku að rekstrarfé ÍE væri að ganga til þurrð-
ar. Var í því sambandi vísað til ársreiknings ÍE
fyrir árið 2011 þar sem segir að félagið hafi
tryggt rekstrarfé fram á fyrsta fjórðung næsta
árs. Eigið fé ÍE var neikvætt um sex milljarða
í árslok 2011, en Kári Stefánsson hefur látið
hafa það eftir sér í fjölmiðlum að skuld við
hluthafa skýri þá neikvæðu eiginfjárstöðu.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, vildi ekki tjá sig um málið í
samtali við Morgunblaðið, en á honum mátti
skilja að tíðinda væri líklega að vænta af félag-
inu í næstu viku.
Íslensk erfðagreining fer
aftur fjárfestingaleiðina
Gaf út 413 milljóna króna
skuldabréf í síðasta mánuði
Erlendir eigendur ÍE komið með
meira en 5,5 milljarða á árinu
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Fjármögnun Kári Stefánsson, forstjóri ÍE. Félagið hefur sótt sér 5,5 milljarða á árinu.
Hagsmunirnir sem eru í húfi fyrir alla ís-
lensku þjóðina í núinu og framtíðinni eru
slíkir, þegar horft er til þeirra eigna sem er-
lendu vogunarsjóðirnir, hrægammarnir sem
eru stærstu eigendur Arion banka og Ís-
landsbanka, reyna nú að knýja út úr Seðla-
banka í evrum, að lífsnauðsynlegt er að
menn standi í lappirnar – bæði í Seðlabank-
anum og ekki síður þeir 63 sem karpa gjarn-
an við Austurvöll.
Þetta kemur skýrt fram í fréttaskýringu
Harðar Ægissonar, hér í miðopnu Við-
skiptablaðs Morgunblaðsins, í dag.
Ýmsar fróðlegar upplýsingar koma fram í
fréttaskýringu Harðar, svo sem þær að er-
lendu kröfuhafarnir eru orðnir verulega
áhyggjufullir yfir því að væntur ofsagróði
þeirra verði kannski ekki svo mikill þegar
upp verður staðið og þeir því reiðubúnir til
þess að slá verulega af sínum ýtrustu kröf-
um.
Jafnframt koma fram upplýsingar í þá veru
að hugmyndum um fulla hörku í viðræðum
við erlendu kröfuhafana hefur vaxið fylgi
innan Seðlabankans undanfarnar vikur. Nú
reynir á samstöðu Alþingis og Seðlabanka.
Skoðun
Samráð og
samstaða
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Oft var þörf en nú
er nauðsyn á víð-
tækri samstöðu
Sími 511 1234 • www.gudjono.is
Hraði!
Skilvirkni!
Sveigjanleiki!
1
2
-2
0
7
4
-
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA