Morgunblaðið - 06.12.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.12.2012, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2012 8 VIÐSKIPTI „Jólasalan fer ágætlega af stað. Nóg var að gera um helgina og greinilegt að margir vilja tryggja sér jólagjafirnar tímanlega frekar en að bíða fram á síðustu stundu,“ segir Frank M. Michelsen, framkvæmda- stjóri Michelsen úrsmiða á Laugavegi. „Hingað koma líka margir sem eiga erfitt með að finna réttu gjöfina. Vandað arm- bandsúr hittir alltaf í mark hjá makanum. Svo er líka öruggt að veðja t.d. á fallegu skartlínurnar frá Georg Jensen sem við selj- um hér í búðinni. Þrátt fyrir að efnahagslífið sé ekki upp á sitt besta er salan góð á dýrum svissneskum gæðaúrum. „Rolex-úrin hreyfast töluvert og ekki orðið neinn samdráttur mælt í seldum stykkjum. Þó hefur átt sér stað tilfærsla frá allra dýrustu úrunum og höfum við að svo stöddu hætt að hafa dýrari gerðir af Rolex úrum á lager, enda hefur gull hækkað mjög mikið í verði síðustu ár.“ Um þessar mundir arkar Vilborg Arna Gissurardóttir ein síns liðs á suðurpólinn með íslenskt „ofurúr“ um úlnliðinn í boði Michelsen úrsmiða. „Við vorum langt komn- ir með hönnun og prófun á nýju úri gerðu til að þola erfiðar íslenskar aðstæður. Í ágúst gaf Vilborg sig fram við okkur í leit að rétta úrinu fyrir ferðina á suðurpólinn og eftir sólarhring af hringingum hingað og þangað til Sviss og vandlegri skoðun á eig- inleikum úrsins ákváðum við að taka áskor- un Vilborgar og létum útbúa sérstaka pólf- araútgáfu af úrinu.“ Hefð hefur skapast fyrir því að framleið- endur vönduðustu úra og ævintýramenn vinni saman með þessum hætti allt frá því þeir Edmund Hillary og Tenzing Norgay klifu Everest með Rolex-úr á hendinni. Frank bendir á að venjuleg úr þoli ekki þau átök og öfgar í hita og kulda sem fylgja svaðilförum af þessum toga. „Eins og gefur að skilja er úrið mikið öryggistæki í svona ferðum og þarf að vera hægt að stóla á að það sýni réttan tíma. Rafhlöðuúr duga ekki við svona aðstæður og þarf að nota úr með hefðbundnu gangverki,“ útskýrir Frank. „Ekki aðeins þarf gangverkið að vera mjög vandað heldur þarf t.d að huga að smurn- ingu úrsins. Venjulegar olíur þykkna í ofsa- kulda svo að hægir á úrinu og þarf að sér velja olíur í úr af þessu tagi.“ ai@mbl.is Svipmynd Frank M. Michelsen Með íslenskt ofur- úr á suðurpólinn Morgunblaðið/Styrmir Kári Átök Frank við hliðina á nýju sterkbyggðu úrunum. Suðurpólsúrið hennar Vilborgar Örnu er sérútgáfa sem meðal annars notast við sérvalda olíu sem þykknar ekki í ofsakulda. UNICEF á Íslandi og lyfjafyrirtækið Alvogen hafa undirritað samstarfssamning sem tryggir UNICEF 30 milljónir króna á fjögurra ára tíma- bili. Í tilefni þess að dagur rauða nefsins er á morgun brá starfsfólk Alvogen á leik og skartaði rauðu nefi við undirritun samningsins. Fram- kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Stefán Ingi Stefánsson segir í fréttatilkynningu: „Stuðningur Alvogen mun gera UNICEF kleift að hafa áhrif á líf þúsunda barna. Við mun- um geta gefið þeim tækifæri sem þau annars hefðu ekki fengið.“ Vinnustaður UNICEF og Alvogen Í fyrri grein var fjallað um mik- ilvægi þess að lög- gjöf endurspegli forgangsröðun verkefna sem rúmast innan fjár- laga og kröfuna til ráðuneyta um trausta, opna og vandaða stjórn- sýslu.For- stöðumaðurinn er í miðri hringiðunni og skapar liðsheildina sem hefur hæfni, getu og vilja til að leysa verk- efnin betur í dag en í gær. Seinni 4 lyklarnir eru: Stefnan, gildin og framtíðarsýn er skýr. Starfsmenn taka virkan þátt. Lifandi stefna um mannauð, þjón- ustu, öryggi o.fl. Gildin virk. Hlut- verkið vel skilgreint, hver eru for- gangsverkefnin og hvert er stefnt til framtíðar og hvernig. Auðlindir rétt samsettar. Mann- auðurinn er dýrmætasta „eignin“. Með símenntun, samvinnu og þekk- ingarmiðlun er auðurinn aukinn. Með virkum samskiptum við viðskiptavini og hagsmunaaðila er verkefnum for- gangsraðað. Rétt samsetning á hæfni og tækni nýtt til að veita betri þjón- ustu. Nýsköpun og endurbætur. Skapa þarf umbótamenningu og samvinnu innan stofnana og milli stofnana/ ráðuneyta. Þar er stöðug leit að þekk- ingu, betri ferlum og nýrri tækni beitt til að leysa verkefnin á hagkvæmari hátt í dag en í gær. Opin, gagnsæ stjórnsýsla – gagn- virk samskipti við borgarana. Tryggja gott aðgengi að samræmdum upplýsingum um: meginverkefni, hvað kosta þau, hverjir vinna að þeim, hvað segja viðskiptavinir um þjón- ustuna og starfsmenn um stöðuna. Lögð er áhersla á að allar stofnanir birti samræmdar upplýsingar um meginverkefni, kostnað og árangur. Samspil allra lyklanna þarf að vera stöðugt og leiða til betri forgangsröð- unar verkefna. Traust, opin og skil- virk stjórnsýsla eykur lífsgæði og samkeppnishæfni Íslands. Höfundur er ráðgjafi, viðskiptafræð- ingur, MS í stjórnun- og stefnumótun. Stjórnarmaður í Stjórnvísi. Pistill frá Stjórnvísi Árangur í ríkisrekstri Þorvaldur Ingi Jónsson www.stjornvisi.is A World of Service Við erum í hádegismat Við bjóðum upp á hollan og góðan hádegisverð alla virka daga fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina. Þrjá daga vikunnar bjóðum við að auki upp á grænmetisrétt – til að mæta þörfum sem flestra. Skoðaðu matarmálin hjá þér og vertu í samband við veitingasvið ISS. www.iss.is - sími 5 800 600. ”Ég eldaði fyrir 890 manns í hádeginu” Mér finnst frábært að elda venjulegan heimilismat og heyra ”takk fyrir góðan mat”

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.