Morgunblaðið - 06.12.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.12.2012, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ Karl Blöndal kbl@mbl.is Stærsta einkabankanum í Afganistan var bjargað frá hruni fyrir rúmum tveimur árum. Í liðinni viku kom út skýrsla þar sem fram kemur hvað gerðist í bankanum og það er ekki fög- ur lesning. Samkvæmt henni náði lítill hópur stjórnenda og hluthafa und- irtökum í Kabúl-banka og þeir mok- uðu úr sjóðum hans í eigin vasa. Björgun Kabúl-banka kostaði 5-6% af landsframleiðslu Afganistans og er þetta því eitt umfangsmesta hrun banka, sem um getur, miðað við stærð hagkerfis viðkomandi lands. Í skýrsl- unni kemur fram að hópurinn notaði innlán bankans til að veita sjálfum sér og félögum sínum lán undir fölskum nöfnum og með fölsuðum skjölum. Ljóst er að miklu fé var komið úr landi. Í skýrslunni kemur fram að flugmönnum flugfélagsins Pamir Air- ways voru greiddir 320 þúsund doll- arar, sem þykir einstaklega „grun- samlegt þar sem Kabúl-banki er grunaður um að hafa notað Kabúl- flugvöll til peningaþvættis“. Hermt er að peningarnir hafi verið faldir í mat- arbökkum. Þegar bankinn varð gjaldþrota kom í ljós að 90% útistandandi lána eða 861 milljón dollara (107 milljarðar króna) höfðu farið til 12 einstaklinga og fyr- irtækja þeirra. Skýrsluna gerði óháð eftirlitsnefnd að undirlagi Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins og tók Eva Joly þátt í rannsókn- inni að baki henni. Áfall fyrir fjármálastarfsemi í Kabúl Hneykslið vegna Kabúl-banka er áfall fyrir fjármálastarfsemi í landinu. „Ka- búl-banki var stofnun, sem naut trausts, og milljónir Afgana reiddu sig á til að taka við launum þeirra og halda utan um sparnað,“ segir í skýrslunni. „Hrun bankans leiddi til víðtækrar skelfingar og borgaralegs glundroða til skamms tíma, en afleiðingarnar til lengri tíma eru jafnvel enn skaðlegri.“ Til þess er tekið að hagvöxtur og þró- un fjármálalífs haldist í hendur og fjár- málakreppa sé dragbítur bæði á fram- leiðni og velferð almennings. Kostnaðurinn lendi á ríkinu, sem hafi fyrir vikið minna á milli handanna til að halda uppi mikilvægri þjónustu. Þá hafi málið skaðað trúna á fjár- málakerfið, sem var veikt fyrir. Þetta mál ber því hins vegar ekki aðeins vitni hversu veikt fjár- málakerfið í Afganistan er. Það er einnig áfellisdómur á alþjóðlegt fjár- málakerfi og eftirlit með veikburða efnhagslífi í stríðshrjáðu landi þar sem glæpamönnum tekst að koma undan fé að vild án þess að gripið sé í taumana fyrr en allt er komið í kaldakol. Klíka í Kabúl-banka sópaði til sín sparifé milljóna Afgana AFP Stórkostlegt hrun Helstu hluthafar og stjórnendur Kabúl-banka hreinsuðu út innstæður almennings og komu und- an. Peningarnir fóru í fasteignir í Dúbaí og til tólf landa að auki, þ. á m. Bretlands, Kína, Sviss og Bandaríkjanna.  Björgun stærsta einkabanka Afganistans kostaði 5-6% af landsframleiðslu  Drógu sér 900 milljónir dollara MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2012 4 VIÐSKIPTI Í nóvember sl. lækkaði raun- gengi íslensku krónunnar um 1,3% frá fyrri mánuði á mæli- kvarða hlutfalls- legs verðlags. Er þetta þriðji mán- uðurinn í röð sem þróunin á raungengi krónunnar er í þessa átt og hefur það lækkað um 7,0% frá því í ágúst sl. Síðustu þrjá mánuði má rekja þessa lækkun á raungengi krónunnar að öllu leyti til lækk- unar á nafngengi krónunnar, sam- kvæmt Morgunkorni Greiningar Ís- landsbanka. Krónan hefur lækkað um 7% Þorsteinn Ásgrímsson Helgi Vífill Júlíusson „Ég hef ekki miklar áhyggjur af lágu fjárfestingahlutfalli á næstu tveimur árum,“ segir Lars Chris- tensen, forstöðumaður hjá grein- ingardeild Danske Bank, í samtali við mbl.is. „Það sem ég legg þó áherslu á er að óvissan um fjár- magnshöftin hefur áhrif til langs tíma á erlenda fjárfestingu. Ég tel það gott fyrir efnahaginn að aflétta þeim eins hratt og mögulegt er til að tryggja fjárfestingu.“ Hann kynnti nýja greiningu bankans á íslensku efnahagslífi á fundi VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka. Þetta er þriðja greiningin sem Danske Bank vinn- ur um íslenskt efnahagslíf, sú fyrsta kom út árið 2006 og önnur árið 2011. Fyrsta skýrslan var svartsýn á þróun efnahagsmála hér og var harðlega gagnrýnd af mörg- um Íslendingum. Christensen var heldur bjartsýnni í fyrra. „Ég er nokkuð bjartsýnn núna þó við spáum ekki miklum hag- vexti, en hann er þó hærri en hjá flestum öðrum ríkjum, eins og Danmörku sem er í stöðnun,“ sagði Christensen á kynningarfundinum. Í nýju greiningunni kemur fram að versnandi efnahagsástand í viðskiptalöndum Íslands í Evrópu hefur haft áhrif á efnahagsbata landsins. Þrátt fyrir það muni hag- vöxtur hér á landi vera yfir með- allagi næstu árin. Danske Bank gerir ráð fyrir að hagvöxtur verði í kringum 2,2 til 2,9% á næstu þrem- ur árum. Atvinnuþátttaka, ekki atvinnuleysi Nokkur munur er á stöðu atvinnu- leysis nú og því sem var spáð þegar Daninn kom í fyrra. Christensen sagði þá að Íslendingar mættu búa sig undir að venjast háu atvinnu- leysisstigi, í kringum 8 til 9%. Í dag er atvinnuleysi í kringum 5%. Hann segir að þetta megi að miklu leyti skýra með því að margt fólk hafi farið af íslenska vinnumark- aðinum, fólk hafi ýmist flutt af landi brott eða hætt þátttöku á vinnumarkaði. „Það er nauðsynlegt að horfa á atvinnuþátttöku frekar en atvinnuleysi,“ segir hann. Að- spurður hvort hann sjái fram á breytingar á þessu sviði telur hann að fljótlega muni Íslendingar hætta að sjá svona mikinn brottflutning. Aftur á móti vill hann ekkert segja til um hvort umskipti verði og brottfluttir fari aftur að flytja til Íslands. Í greiningunni kemur fram að einkaneysla muni fara minnkandi. Hún aukist í kringum 3,8% á þessu ári en aukningin verði undir 3% á næstu árum. Þá er gert ráð fyrir að fjárfesting verði í 8 til 9% á þessu og næsta ári. Verðbólga haldi áfram að vera yfir viðmiðum Seðlabankans en gert er ráð fyrir að verðbólguþrýstingur fari minnk- andi. Greiningin spáir 3,7% verð- bólgu á næsta ári, 3,1% árið 2013 og 2,6% árið 2014. Höftin slæm Christensen segir að fjármagns- höftin muni hafa mjög neikvæð langtímaáhrif á fjárfestingar hér á landi og best sé að aflétta þeim eins hratt og mögulegt er. Spurður um það ferli sem sé í gangi núna varðandi afnámið segir hann að stjórnvöld einblíni of mikið á nei- kvæðu hliðarnar. „Ég hef trú á því að bæði ríkisstjórnin og Seðlabank- inn vilji losa sig við höftin, en rík- isstjórnin og Alþjóðagjaldeyr- issjóðurinn hugsa aðeins um neikvæðar hliðar afnámsins, í stað þess að horfa á langtímahag lands- ins.“ Hann talaði einnig fyrir nánari aðgerðaáætlun um afnámið, en tók jafnframt fram að hann teldi slíkt vera pólitíska ákvörðun frekar en á ábyrgð Seðlabankans. Aflétta höftum til að efla fjárfestingu  Lars Christensen, yfirmaður greiningardeildar Danske Bank, skrifaði greiningu árið 2006 þar sem hann var svartsýnn á íslenska efnahags- lífið  „Ég er nokkuð bjartsýnn núna þó við spáum ekki miklum hagvexti“  Efnahagsástand í Evrópu hefur haft áhrif á efnahagsbata landsins Morgunblaðið/Styrmir Kári VÍB-fundur Lars Christensen, forstöðumaður hjá greiningardeild Danske Bank. Danske Bank » Danske Bank gerir ráð fyrir að hagvöxtur verði í kring- um 2,2 til 2,9% á næstu þrem- ur árum. »Einkaneysla fer minnkandi - hún eykst um 3,8% á þessu ári en innan við 3% á næstu árum. » Fjárfesting verði í 8 til 9% á þessu og næsta ári. Og verð- bólgan 3,7% á næsta ári, 3,1% árið 2013 og 2,6% árið 2014. Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, netfang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á                                           !"# $% " &'( )* '$* +,-.// ,00.1 +,2.2/ ,+.324 ,,.+11 +3.324 +5-.,/ +.2+2+ +4+.3 +/5.04 +,-.4/ ,0+.+4 +,2.45 ,+.4,5 ,,.,-, +3.4+- +5-./- +.2+42 +4,.51 +/5.22 ,,-.-203 +,2.,/ ,0+./3 +,/.5 ,+.431 ,,.501 +3.4/4 +52.0, +.2,54 +4,.4- +/-.0+ Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í nóvember 2012 var 563. Heildarvelta nam 19,6 milljörðum króna og með- alupphæð á hvern kaupsamning var 34,7 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 11,2 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 4,9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,5 milljörðum króna. Kaupsamningum fjölgar um 2% milli nóvember og október og velta eykst um 19,3%. Veltuaukning var 19,3% Hrun Kabúl-banka hefur teygt sig inn í pólitíkina í Afganistan. Bróðir Hamids Karzais, forseta Afganist- ans, og bróðir Mohammads Qa- sims Fahims varaforseta voru báð- ir meðal eigenda bankans, þótt ekki séu þeir meðal þeirra 22 manna, sem ákærðir hafa verið fyrir svik. Karzai er ekki nefndur á nafn í skýrslunni, en þar segir að bankinn hafi „að hermt er látið milljónir dollara í kosningabaráttu að minnsta kosti eins forseta- frambjóðanda“. Fyrrverandi formaður stjórnar bankans sagði í vitnaleiðslu að bankinn hefði borgað 20 milljónir dollara í kosningasjóði Karzais. Það mun hafa verið þegar Karzai sóttist eftir endurkjöri 2009. Karzai kveðst ekki hafa vitað af þessu en málið verði rannsakað. Fékk milljónir í kosningasjóði SKAÐAR ÍMYND HAMIDS KARZAIS, FORSETA AFGANISTANS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.