Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.3. 2013
Sú ákvörðun hóps áhrifamanna innanVinstri grænna að ganga úr flokknumog stofna til nýs framboðs undir yfir-
skriftinni Regnboginn breytir landslaginu á
vinstri jaðrinum. Rótin að því er ályktun
landsfundar VG á nýliðnum landsfundi að
ljúka eigi aðildarviðræðum við Evrópusam-
bandið. Það segir sína sögu um hversu um-
deilt málið var, að 83 voru því fylgjandi, en 72
vildu samþykkja fyrri álykt-
un um að leggja í dóm þjóð-
arinnar hvort framhald yrði
á viðræðunum.
Eftir landsfundinn komu
„villikettirnir“ saman, hópur
sem dregur nafn sitt af yfir-
lýsingu Jóhönnu Sigurðar-
dóttur forsætisráðherra um
að of langan tíma tæki að ná saman meiri-
hluta á Alþingi – það væri eins og að smala
köttum. Í hópnum voru Atli Gíslason, Anna
Ólafsdóttir Björnsson, Bjarni Harðarson og
Jón Bjarnason, sem öll hafa setið á þingi,
Guðmundur Brynjólfsson rithöfundur af
Vatnsleysuströnd og Baldvin H. Sigurðsson í
Flugkaffinu á Akureyri sem var bæjarfulltrúi
VG á Akureyri.
„Þú sérð í hendi þér að þetta er framboð
vinnandi manna, því þarna eru tveir kaffibar-
þjónar,“ segir Bjarni sem rekur bókakaffihús
á Selfossi. „Þú kemst ekki nær hinni vinnandi
stétt, því hafnarverkamenn eru orðnir mjög
fágætir.“
Framsóknarkommar
Fullveldismálin eru aflvaki í framboðinu, að
sögn Bjarna. „En einnig spilar inn í skoð-
anakönnun í Sunnlenska fréttablaðinu á Sel-
fossi, sem ég rak í gamla daga en á ekki leng-
ur, en þar kom fram sterk áskorun á mig að
fara í framboð. Sambærilegar áskoranir hefur
félagi minn, Jón Bjarnason, fengið í sínu kjör-
dæmi.“
En ekki var dustað rykið af hugmyndum
um framboð fyrr en stefnu flokksins var snúið
við á landsfundi Vinstri grænna. „Þó að reynt
sé að láta líta út fyrir að ekkert hafi hafi
gerst, þá var hægfara breyting á stefnu
flokksins endanlega staðfest þarna. Það getur
enginn flokkur haft það á stefnuskrá sinni að
klára aðildarferli að ESB nema sá sem hefur
ESB á sinni stefnuskrá.“
Bjarni segir að framboðsvinnan hafi gengið
hratt og sé enn að skýrast. „Framboð í öllum
kjördæmum er ekki í hendi fyrr en við getum
kynnt oddvita til leiks og við höfum væntingar
um að það gangi eftir. En þegar er ljóst að
við bjóðum fram í landsbyggðarkjördæmunum
þremur. Það er liður í okkar stefnu. Það eru
ekki bara þeir sem minna mega sín í sam-
félaginu sem hafa farið illa út úr samdrætt-
inum, heldur einnig byggðirnar sem minna
mega sín. Þeim hefur blætt mikið og gengið
hefur verið freklega í að skera af þeim op-
inbera þjónustu.“
Bjarni segir ljóst að hluti kjósenda sem vilji
stöðva aðlögunarferlið að ESB eigi sér ekki
raunhæfan farveg í þeirri flóru sem fyrir ligg-
ur. „Það er misjafnlega heil brú yfir til gömlu
ríkisstjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknar,“ segir hann. „Ég hef sagt fyrir
mig, þó að það sé ekki heiti sem allir tileinka
sér, að við vorum stundum kallaðir framsókn-
arkommar, en eigum ekkert alltof greiða leið
inn í Framsókn eins hægri sinnuð og hún er
orðin núna.“
En fleiri hafa gengið til liðs við hreyf-
inguna, að sögn Bjarna, bæði róttækt vinstri
fólk og fólk sem er ekkert endilega til vinstri
en aðhyllist sömu gildi. „Margt er óunnið í
málefnum þeirra sem verst fóru út úr
hruninu. Mér finnst gleymast í þeirri umræðu
að sú lífskjaraskerðing sem hérna varð fól í
sér alvarlegan forsendubrest fyrir þá lægst
launuðu og stóra hópa sem eru með annars-
konar tekjur, örorku eða ellilífeyri, og hafa
ekki lengur möguleika á að framfleyta sér.
Það er alvarlegasta pólitíska úrlausnarefnið
sem við þurfum að glíma við.“
Stórfurðuleg framkoma
Vænta má frekari tíðinda af framboðsmálum
Regnbogans á þriðjudag. Ljóst er að Bjarni
og Guðmundur leiða framboðið á Suðurlandi,
Jón í Norðvesturkjördæmi og Baldvin og Þor-
steinn í Norðausturkjördæmi. Áður dró Þor-
steinn sig út af lista Vinstri grænna. „Baldvin
hafði samband við mig og sagði mér frá þess-
um þreifingum,“ segir hann. „Ég hafði lengi
verið ansi óánægður, einkum með það hvernig
vinstri grænir afgreiddu Evrópumálin á síð-
asta fundi. Þegar Baldvin sagði mér hverjir
stæðu á bak við framboðið, sá ég að þetta
voru þeir menn sem ég hafði verið samstíga á
meðan þeir voru í VG. Mér fannst þetta því
rökrétt miðað við mína pólitísku afstöðu.“
Hann segir ágreininginn snúast um fleira
en Evrópumálin. „Ég var ósáttur við hvernig
tekið var á málefnum Sparisjóðs Keflavíkur
og Sjóvár, umhverfismálin á Bakka, olíu-
vinnsluna í Norður-Íshafi og að því hafi verið
gefið undir fótinn að leggja sæstreng. Það er
alls ekki í samræmi við stefnu flokksins og
stórfurðuleg framkoma. Og að sækja í Sam-
fylkinguna, sem ég treysti engan veginn. Ég
held það geti verið heillavænlegra fyrir að
starfa með Framsókn og jafnvel sjálfstæðis-
mönnum, ekki síst í ljósi Evrópustefnunnar.“
Morgunblaðið/Ómar
Upp úr sýður hjá Vinstri
grænum vegna ESB
Steingrímur J. Sigfússon afhenti Jóni Bjarnasyni lyklavöldin að ráðuneytum landbúnaðar- og sjávarútvegs í upphafi kjörtímabilsins og tók við lyklunum undir lok þess. Skyldu þeir hafa lyklaskipti á ný?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STEFNUBREYTING VINSTRI GRÆNNA Í EVRÓPUMÁLUM Á SÍÐASTA LANDSFUNDI FLOKKSINS VAR KORNIÐ SEM
FYLLTI MÆLINN. NÚ ERU KOMIN FRAM TVÖ KLOFNINGSFRAMBOÐ, REGNBOGINN OG ALÞÝÐUFYLKINGIN.
* „Þegar þessi lest er komin af stað veit maður ekki hvert hún fermeð okkur. Mér finnst því rétt að taka teinana í sundur strax.“Þorsteinn Bergsson um aðildarumsóknina að ESB. ÞjóðmálPÉTUR BLÖNDAL
pebl@mbl.is
„Við teljum það mikið þjóðþrifamál ef við get-
um félagsvætt fjármálakerfið og aðra innviði
samfélagsins,“ segir Vésteinn Valgarðsson,
varaformaður Alþýðufylkingarinnar. „Með fé-
lagsvæðingu meinum við andstæðuna við
markaðsvæðingu, að þetta sé rekið sem
opinber þjónusta.“
Vésteinn og Þorvaldur Þorvaldsson, sem er
formaður Alþýðufylkingarinnar, hafa sagt sig
úr Vinstri grænum og ætla að bjóða fram til
þings. Í stefnu flokksins felst að „félagsvæða“
fjármálakerfið.
„Við viljum að fólk og fyrirtæki geti fengið
slíka þjónustu án þess að borga okurvexti eða
borga oft fyrir heimili sín,“ segir Vésteinn.
„Einnig að mennta- og heilbrigðiskerfið séu
félagslegir innviðir samfélagsins og hið op-
inbera reki það sjálft, en ekki í samstarfi við
einkaaðila sem vilja taka gróða út úr kerfinu.“
Lagt er upp með að lífeyriskerfið verði eitt
opinbert gegnumstreymiskerfi. „Ef það safn-
ast upp sjóðir, þá þurfa þeir alltaf að vera í
formi okurvaxta á lánum ellegar arðráns í
gegnum fjárfestingar í fyrirtækjum. Og vegna
hinnar innbyggðu kreppu kapitalísks hag-
kerfis þá eru þessi sjóðir dæmdir til að tapast
að miklu leyti, því það koma allavega tvær
fjármálakreppur á hverri meðalstarfsævi.“
Alþýðufylkingin er andvíg aðild að ESB.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarmál vega þó
ekki þyngst, heldur að þar sé markaðshyggja
beinlínis stjórnarskrárbundin. Vésteinn segir
íslensku stjórnarskrána ekki hindra félags-
væðinguna. „Það má fara ýmsar leiðir, til
dæmis getur ríkið stofnað banka.“
Spurður hvort stofnendurnir eigi rætur í
marx-lenínisma, segir Vésteinn að það fari eft-
ir því hvernig skilja megi orðin. „Flokkurinn
lætur sig almannahagsmuni mestu varða.
Þetta er ekki marx-lenínískur flokkur og ekki
með slíka stefnuskrá,“ segir hann. „Ég get al-
veg kallað mig það, en það þýðir ekki að ég sé
fylgjandi vinnubúðasósíalisma eða endurreisn
Sovétríkjanna, heldur er ég marx-lenínisti í já-
kvæðri merkingu þess orðs. En ég myndi fyrst
og fremst kalla mig sósíalista.“
Þorvaldur Þorvaldsson Vésteinn Valgarðsson
Vilja félagsvæða
samfélagið
Þorsteinn Bergsson er annar á lista
Regnbogans í Norðausturkjördæmi.
Og víst er að hann mun setja svip á
þingveislurnar komist hann inn, því
þar er allt í bundnu máli. Þorvaldur
Þorvaldsson og Vésteinn Valgarðsson
eru raunar einnig hagyrðingar. Ný-
verið setti Þorsteinn saman brag eftir
kunnu lagi, Raunasögu úr sjávarþorpi,
en sneri honum upp á Evrópusam-
bandið. Viðlagið hljóðar svona:
Þar ríkja Þjóðverjar
þar fiska Spánverjar
þar kvarta Stórbretar
þar svindla Rúmenar
þeir kreista Hellena
og hunsa Pólverja
það tapa allir þar
og einnig við.
EVRÓPU-
SAMBANDSBRAGUR
Bjarni Harðarson