Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Page 8
Þrátt fyrir að stjórnarskrármálið hafi veriðáberandi í pólitískri umræðu undanfariðveit almenningur hversu óskynsamlegt
er að reyna að klára slíkt mál á síðustu dögum
þessa þings og þessarar ríkisstjórnar. Fyrir
stóran hluta þingheims virðist þetta þó vera
brýnasta viðfangsefnið. Svo brýnt að margir
þingmenn hafa með mikilli tilfinningu lýst því
hvernig þetta mál hefur tekið á og í síðustu
viku sögðu einstaka þingmenn að vegna þess
fyndu þau fyrir mikilli sorg í hjarta.
Nú ber auðvitað að harma sorg þessara þing-
manna. En fyrir þá sem ekki sitja í sölum hins
háa Alþingis en takast á við viðfangsefni hins
daglega lífs á öðrum vígstöðvum, stafar sorgin
í hjartanu af öðrum ástæðum. Margar þeirra
geta stjórnvöld auðvitað ekki leyst en með því
að einbeita sér að því sem helst brennur á al-
menningi geta þau samt klárlega minnkað
sorgir margra.
Það er brýnt að forgangsraða öðruvísi en
gert hefur verið. Bætt afkoma almennings er
aðalatriðið og í þágu hans verður að forgangs-
raða á næstu árum.
Komandi kosningar snúast fyrst og fremst
um það að hér verði hægt að búast við meiru
en að komast af frá degi til dags, frá mánuði til
mánaðar. Þessar kosningar snúast þannig um
algjör grundvallaratriði og einmitt þess vegna
eru þær svo mikilvægar.
Að undanförnu hef ég átt þess kost að hitta
margt fólk um allt land til að ræða stjórnmál.
Þau samtöl hafa styrkt mig í þeirri trú að
lausnir komandi kjörtímabils snúist einkum um
þrennt. Í fyrsta lagi að hefja markvissar
skattalækkanir með áherslu á að þær gagnist
sem best launþegum og auki ráðstöfunartekjur
fjölskyldna. Í öðru lagi þarf að viðurkenna
þann forsendubrest sem varð með hruni bank-
anna og bregðast með raunhæfum hætti við
slæmri skuldastöðu of margra heimila. Og í
þriðja lagi þarf að sækja fram á öllum sviðum
atvinnulífs, með afnámi gjaldeyrishafta, einka-
framtaki, rýmri löggjöf um erlendar fjárfest-
ingar, nýsköpun og því að draga úr ríkisaf-
skiptum og miðstýringu.
Þetta eru brýnustu viðfangsefnin. Þau
verða best leyst af stjórnmálamönnum sem
trúa á fólkið og af fólki sem trúir á framtíð-
ina, landið og tækifærin. Lausnirnar munu
tryggja að færri finna fyrir sorg í hjarta og
þingmenn munu ekki kvarta undan slíkri til-
finningu – nema vegna brýnna viðfangsefna
sem raunverulega kalla á sorg fólksins í land-
inu.
Með sorg í hjarta
* Það er brýnt að for-gangsraða öðruvísi engert hefur verið. Bætt afkoma
almennings er aðalatriðið
og í þágu hans verður að
forgangsraða á næstu árum.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
hanna.birna.kristjansdottir@reykjavik.is
Magnús Hall-
dórsson frétta-
maður sagðist á
Facebook ekki
hættur á Stöð 2,
heldur ætlaði að
vinna til 1. júní. „1. júní er það hálf-
maraþon við Mývatn klukkan 13:00
og síðan Völsungur – Þróttur á
Húsavíkurvelli klukkan 16:00. Ég
verð að ná tímamarkmiðinu upp á
1:50 til þess að geta náð leiknum.
Nánast ómannleg pressa.“
Andri Snær
Magnason rit-
höfundur segir að
Lagarfljót hafi ekki
verið eyðilagt
óvart, „heldur vís-
vitandi af spilltum stjórnmála-
mönnum sem virtu ekki leikreglur
samfélagsins, virtu ekki faglega ferla
og þoldu ekki upplýsta umræðu“.
Andri Snær óttast að það sama
kunni að gerast í lífríki Mývatns og
spyr: „Hvernig haga menn sér
nærri slíkri perlu – er von á næstu
dánartilkynningu eftir 10 ár: Mý-
vatn er dautt?“
Höskuldur Þór-
hallsson alþing-
ismaður nefnir að
um daginn hafi
hann sagt við sin
sinn að ár og dagar
væru síðan hann
fékk flensu. „Eins
og við manninn mælt var ég kom-
inn með pest daginn eftir. Jafnaði
mig á u.þ.b. viku. Eftir stutta ferð til
útlanda hefur mér nú slegið niður
og er kominn með lungnabólgu.
Þurfti að kalla inn varamann sem
mun án efa standa sig vel. Og svo
hrundi tölvan líka. Set hana einnig á
sýklalyf.“
Vilhelm Anton
Jónsson, Villi naglbít-
ur, hugsar heim til
Akureyrar þegar
hann skrifaði á Fa-
cebook: Er Kristjáns
bakarí ekki á facebook? það þarf
MJÚKAR kringlur til Rvk.
Sveinn Andri
Sveinsson hæsta-
réttarlögmaður
veltir vöngum:
Hinn argentíski
Lionel Messi gerði
út um vonir Ítala að
vinna meist-
aradeildina og argentískur páfi
heldur messu á Péturstorgi í Róm.
Tilviljun? Já.
AF NETINU
Íslandsvinirnir í Iron Maiden syrgja nú fyrr-
verandi trymbil þessa ástsæla breska málm-
bands, Clive Burr, sem sálaðist í svefni í vik-
unni. Burr, sem var 56 ára, hafði glímt við
MS-sjúkdóminn um langt skeið. Burr gekk til
liðs við Iron Maiden árið 1979 og lék inn á
fyrstu þrjár breiðskífur sveitarinnar, Iron
Maiden, Killers og The Number of the Beast,
áður en Nicko McBrain leysti hann af hólmi.
„Þetta eru hörmuleg tíðindi. Clive var gam-
all vinur okkar allra, drengur góður og stór-
brotinn trymbill sem var betri en enginn þegar
við vorum að stíga okkar fyrstu skref,“ sagði
Steve Harris, leiðtogi Iron Maiden.
Clive heitinn Burr, annar frá hægri, á góðri stund með gömlu félögunum í Iron Maiden.
Iron Maiden syrgir trymbil
Gleðin er mikil hjá lands-
liðsmarkvörðunum í hand-
og fótbolta. Hannes Þ.
Halldórsson, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu,
og Björgvin Páll Gústavsson,
landsliðsmarkvörður í hand-
bolta, brosa út að eyrum þessa
dagana, enda barnalán hjá
báðum.
Unnusta Hannesar, Halla
Jónsdóttir, ól þeim stúlku sem
var 53 sentimetrar og vó 4,1
kíló eða rúmar 16 merkur.
Þegar íþróttaunnendur voru
búnir að gleðjast af þeim frétt-
um bárust gleðifréttir af lands-
liðsmarkverðinum í handbolta en Björgvin og Karen Einarsdóttir
kona hans eiga von á barni í ágústmánuði. Þau munu flytja búferlum
í sumar því hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við þýska
félagið Bergischer og fer þangað frá Magdeburg að þessu tímabili
loknu. Það er því gleði hjá landsliðinu bæði í hand- og fótbolta.
Hannes Þ. Halldórsson eignaðist
sitt fyrsta barn í vikunni.
Morgunblaðið/Golli
Vettvangur
Landsliðsbörn
Björgvin Páll á
von á sínu fyrsta
barni í ágúst.
Morgunblaðið/Golli
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.3. 2013