Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.3. 2013
H
elga Thorberg er
ein þeirra fjöl-
mörgu Íslendinga
sem flutt hafa til
Noregs en þar
hefur hún búið frá árinu 2011. Í
mörg ár rak Helga blómabúðina
Blómálfinn við Vesturgötu og
margir muna einnig eftir henni
úr útvarpsþáttunum Á tali ásamt
Eddu Björgvinsdóttur, en Helga
er menntuð leikkona.
Síðustu ár í lífi Helgu hafa ein-
kennst af miklum breytingum.
Árið 2009 hætti hún rekstri
blómabúðarinnar og fór til Dóm-
iníska lýðveldsins þar sem hún
bjó í níu mánuði. Þar kynntist
hún manni sínum, Cesar Zapata
Garcia, og skrifaði bókina Loks-
ins sexbomba á sextugsaldri um
dvöl sína í landinu. Helga er
komin aftur til blómanna og nú í
Osló þar sem hún vinnur í fram-
leiðsludeild í blómabúðinni Stor-
gatans Blomsterhandel sem er
virtasta blómabúð Noregs. „Þetta
er blómabúð sem er þekkt fyrir
gæði og þar ríkir mikil fag-
mennska og blómaþekking enda
vinna þar meistarar í faginu,“
segir Helga. „Sem lítill blómálfur
frá Íslandi er það mikill heiður
fyrir mig að vinna með svo miklu
fagfólki. Það er ákaflega gaman á
mínum efri árum að enda á
toppnum í toppbúð.“
Í sjálfskipaðri útlegð
Af hverju ákvaðst þú að setjast
að í Noregi?
„Ég hef verið hér í Noregi síð-
an 2011 en áður en það gerðist
stóð til að setjast að á Spáni.
Ég, sem hef alltaf verið bjartsýn
og til í allt, lét eldri son minn
tala mig inn á það að reka veit-
ingastað í litlu sætu þorpi á
Spáni. Ég sagði við hann: Finndu
staðinn og mamma kemur. Hann
fann staðinn og hóf reksturinn og
svo kom mamma, nýgift með
manninn. Eins og allir vita er
eitt aðalatriði í veitingahúsa-
rekstri að vera með góðan kokk.
Við bjuggum ekki að því láni.
Það var einfaldlega ekki hægt að
tjónka við kokkinn sem tók
reglubundin æðisköst í eldhúsinu.
Ég var aðstoðarkonan í eldhúsinu
og taldi mig beinlínis vera í
hættu í hvert sinn sem kokkurinn
fór að henda pottum í vaskinn.
Hann átti líka til að leggjast í
gólfið meðan gestirnir biðu eftir
matnum. Hann var stöðugt að
hóta því að fara og svo fór að
við hjálpuðum honum út. Við
keyptum síðan far undir kokk frá
London og honum var skilað dag-
inn eftir. Næsti vildi breyta
staðnum í ítalskt veitingahús. Þar
sem enginn kokkur fannst var
ekkert annað að gera en að loka
staðnum og horfa í aðra átt.
Þá hugsaði ég með mér: Konan
sem vann hjá mér í blómabúðinni
fór til Noregs. Er Noregur ekki
bara málið? Ég fékk strax vinnu
í blómabúð. Svo ég pakkaði ofan
í ferðatösku og við hjónin fórum
til Bergen sem ég hafði heyrt að
væri fallegur staður. Ég komst
fljótlega að því að það er ekki
hægt að búa í Bergen því þar er
stöðug rigning. Við fluttum því til
Oslóar.“
Hvernig kanntu við þig í Nor-
egi?
„Ef mig langaði heim þá væri
ég heima. Ég er í sjálfskipaðri
útlegð. Það var ekki valkostur að
lifa á Íslandi. Það er búið að fara
ömurlega með íslenska þjóð og
ég læt ekki fara illa með mig.
Skuldir heimilanna eru að sliga
landsmenn en stjórnmálamenn
láta eins og ekkert sé. Eins og
ástandið er þá er ekkert heim að
sækja. Ætli það taki ekki tíu ár
frá hruni þar til ástandið heima
lagast. Þá verð ég komin á eft-
irlaun og fer kannski heim en
mun örugglega ekki setjast í
ruggustól.“
Osló er dýr borg. Geturðu lifað
góðu lífi þar?
„Verðlagið er þannig að maður
veit ekki hvort maður á að hlæja
eða gráta, hakan fer niður og
maður gapir. Til að lifa þarf
maður að hafa góðar tekjur og
launakjör eru talsvert betri hér
en heima. Maðurinn minn er að
læra norsku og fær smálaun við
það. Ég reyni að hjálpa honum
eftir bestu getu en það flækir
málið að hann talar spænsku sem
ég er ekki altalandi á. Meðan
maðurinn minn hefur ekki fulla
vinnu fæ ég skattafslátt vegna
hans sem er 20.000 krónur ís-
lenskar. Ekki er það nú mikill
peningur. Þegar sú tíð kemur að
hann fær vinnu þá munum við
hafa það ágætt því hér er vinna
vel launuð.“
Ást við fyrstu sýn
Þú ert lærð leikkona og þið
Edda Björgvinsdóttir slóguð ræki-
lega í gegn á sínum tíma með
útvarpsþáttunum Á tali og þið
skrifuðuð handritið að sjónvarps-
þáttunum Fastir liðir. Af hverju
tókstu blómin fram yfir leik- og
handritsferil?
„Listamenn þurfa að vera
knúnir áfram af brennandi þörf.
Ég hafði ekki þessa brennandi
þörf þegar kom að leiklistinni.
Leiklistin var bara eitt af mörgu
sem ég vildi gera. Í fimmtán ár
hef ég unnið með blóm. Það er
fegurðin og sköpunin í blómunum
sem heillar mig. En blómin eru
harður húsbóndi.“
Þú rakst blómabúð í mörg ár
og nú vinnurðu í blómabúð. Sakn-
arðu þess að vera atvinnurek-
andi?
„Nei, þegar ég er búin að ein-
hverju þá er það eins og að loka
bók. Það er búið, hvort sem um
er að ræða hjónaband eða blóma-
búð.“
Já, talandi um hjónaband. Víkj-
um þá aðeins að einkalífi þínu.
„Í vinnunni var ég spurð hvort
ég væri gift og mér brá þegar
ég heyrði mig segja að ég væri
þrígift. Ég var nítján ára þegar
ég gifti mig fyrst og það hjóna-
band stóð ekki lengi. Ég gifti
mig reyndar í stuttum kjól vegna
þess að ég vissi að hjónabandið
myndi ekki endast. Hjónaband
númer tvö stóð nokkuð lengi. Ég
á tvo syni, hvorn úr sínu hjóna-
bandinu, fyrri og seinni heims-
styrjöld. Svo kom maður númer
þrjú frá Dóminíska lýðveldinu.“
Þú fórst til Dóminíska lýðveld-
isins. Það er kannski ekki stað-
urinn sem kemur fyrst upp í
hugann þegar maður íhugar að
fara burt.
„Ég fór þangað árið 2009. Ég
vissi að ég yrði að standa upp og
fara. Koma hreyfingu á kerl-
inguna. Blómabúðin gekk vel og
það hefði verið vandræðalaust að
halda þeim rekstri áfram. En
mér leiddist og fannst vanta
krydd í tilveruna. Ég fór til
Dóminíska lýðveldisins til að
finna út hvað ég vildi í lífinu og
hvað mig langaði til að gera. Þar
hitti ég manninn minn. Af minni
hálfu var það ást við fyrstu sýn.
Þegar hann heilsaði mér og ég
horfði í þessi brúnu augu fall-
eraðist ég. Ég varð óskaplega
hrifin af þessum manni og bað
englana mína um að gefa mér
hann. Ég trúi á engla. Hópur af
englum hefur alltaf passað mig
og verndað.“
Af hverju ekki að vera með
honum áfram í Dóminíska lýð-
veldinu?
„Það eru engin tækifæri í
Dóminíska lýðveldinu og ég skrif-
aði bókina Loksins sexbomba á
sextugsaldri vegna þess að ég
varð að finna mér eitthvað að
gera.“
Þetta var persónuleg bók um
þína eigin reynslu. Þú ert alveg
óhrædd við að deila reynslu
þinni.
„Ég hef alltaf gefið af sjálfri
mér og finnst sjálfsagt að deila
reynslu minni. Eftir að ég kynnt-
ist manninum mínum sem er frá
þessu fjarlæga landi finn ég að
fólki finnst ég lifa spennandi lífi,
það er fullt af forvitni og vill fá
að fylgjast með. En uppistaðan í
lífi mínu er nú samt, eins og hjá
flestum, ansi hversdagsleg; vinna,
borða og sofa.“
Eruð þið hjónin hamingjusöm?
„Ég játa að þetta hefur verið
brösótt. Fyrir það fyrsta er það
litarhátturinn. Ég er hvít og
hann er svartur. Ég get ekki
sagt að ég hafi fundið fyrir for-
Þægilegt
að búa í
ferðatösku
BLÓMÁLFURINN HELGA THORBERG FLUTTI TIL
NOREGS ÁRIÐ 2011 OG VINNUR NÚ Í ÞEKKTUSTU
BLÓMABÚÐINNI Í OSLÓ. Í VIÐTALI RÆÐIR HÚN
UM NÝTT LÍF, BREYTINGAR OG HJÓNABANDIÐ
MEÐ MANNI FRÁ DÓMINÍSKA LÝÐVELDINU.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
* „Ég er í sjálfskipaðri útlegð. Það varekki valkostur að lifa á Íslandi. Þaðer búið að fara ömurlega með íslenska
þjóð og ég læt ekki fara illa með mig.“
Svipmynd