Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Side 23
17.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Þ
etta ráðleggur alltént breska dag-
blaðið The Guardian lesendum sín-
um í grein á dögunum. Af tíu ráð-
um til að lengja lífið er þetta efst
á blaði, að flytja til Japan.
Að sögn blaðsins lifa Japanir lengur en
annað fólk og það sem meira er, þeir eru
upp til hópa eldhressir alveg fram í andlát-
ið. Japanskar konur verða ekki bara allra
kerlinga elstar, heldur halda þær heilsunni
lengur en aðrar konur, í 75,5 ár að með-
altali. Japanskir karlar eru sprækir fram
yfir sjötíu ára afmælið, meðan breskir karl-
ar geta gert ráð fyrir að tapa heilsunni við
67 ára markið. Raunar kemur fram í grein-
inni að heilsa Breta sé verri en gengur og
gerist í flestum öðrum Evrópulöndum og
lífslíkurnar minni.
Í greininni er vitnað til orða Kenji
Shibuya prófessors í Lancet, þar sem hann
segir langlífi og góða heilsu landa sinna
snúast um hugarfar. Japanir hugsi almennt
vel um sig, borði skynsamlega og fari
reglulega í læknisskoðun.
Annað ráðið sem The Guardian gefur
lesendum sínum hafi þeir löngun til að
bæta heilsu sína og lífslíkur er að láta
mæla blóðþrýstinginn. Fjölmargir þættir
hafi áhrif á hann, svo sem erfðir, stress,
ofþyngd, hreyfingarleysi, reykingar, drykkja
og Guð má vita hvað. Hár blóðþrýstingur
mun vera helsta skýringin á því að Evr-
ópubúar falla frá í blóma lífsins.
Meiri fræ, minna brennivín
Þriðja ráðið er að borða meira af fræjum
og hnetum, ekki er nóg af fylla belginn
bara af ávöxtum. Talið er ógerlegt að verða
of þungur á slíku mataræði.
Fjórða ráðið sem The Guardian gefur les-
endum sínum er að stilla áfengisdrykkju í
hóf. Óhófleg áfengisdrykkja hefur ekki bara
vond áhrif á lifrina heldur gerir fólk alls-
konar vitleysu undir áhrifum áfengis, hefur
til að mynda mun meiri tilhneigingu til að
valda sér skaða en þegar það er allsgáð.
Hnýtið á ykkur hlaupaskóna, segir blaðið
í fimmta lagi. Hver maður þarf að hreyfa
sig að lágmarki í hálfa þriðju klukkustund
á viku. Gott er að blanda æfingunum,
hlaupa, hjóla, synda, lyfta. Og auðvitað
spila fótbolta. Það er allra meina bót.
The Guardian hvetur fólk, í sjötta lagi,
til að drepa í sígarettunni. Það segir sig
svo sem sjálft, reykingar draga ekki aðeins
úr lífslíkum fólks heldur eru allar líkur á
því að þær komi til með að valda fólki
þjáningum áður en það deyr.
Í sjöunda lagi er fólk hvatt til að halda
sig fjarri spítölum. Hægt sé að næla í all-
an andskotann þar, auk þess sem auðvelt
sé að slasa sig á spítölum. Ekki er víst að
Íslendingar myndu skrifa upp á þetta.
Slakaðu á!
Slakaðu á! Þannig hljómar áttunda ráð The
Guardian til þeirra sem vilja lengja líf sitt
og vellíðan. Að dómi blaðsins eru Bretar
almennt of stressaðir og stress hefur aldrei
þótt gott fyrir heilsuna. Vísað er til rann-
sókna sem segja að stressið sé mun minna
á Spáni. Allir þangað! Þar er líka meiri
sól.
Í níunda lagi er lesendum The Guardian
ráðlagt að taka lestina. Öryggið sé mun
meira þar en í bíl. Þannig eru bílslys
fimmta stærsta skýringin á ótímabærum
andlátum í Bretlandi á eftir hjartasjúkdóm-
um, sjálfsvígum, skorpulifur og brjósta-
krabbameini. Fleiri Bretar deyja í bíl-
slysum en vegna fíkniefnaneyslu.
The Guardian lýkur umfjöllun sinni á
sama hátt og hún hófst, með því að hvetja
lesendur til að flytja búferlum. Að þessu
sinni lætur það nægja að eggja fólk til að
flytja frá Norður-Englandi og suður á bóg-
inn. Ástæðan er einföld: Þeir sem búa í
Norður-Englandi eru nefnilega 20% líklegri
til að hrökkva upp af fyrir 75 ára aldur en
íbúar Suður-Englands.
Hvernig má auka lífslíkurnar?
HVAÐ ÞARFT ÞÚ, LESANDI
GÓÐUR, AÐ GERA VILJIRÐU
LENGJA LÍF ÞITT? SVARIÐ ER
EINFALT: FLYTJA TIL JAPAN.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Mun öruggara er að ferðast með lest en bíl. Fleiri Bretar deyja í bílslysum en vegna fíkniefnaneyslu. Brýnt er að fylgjast vel með blóðþrýstingnum. Of hár blóðþrýstingur er rót alls kyns leiðinda.
Japanir hreyfa sig mikið og ekki er verra að vera í sérhönnuðum vélmennaklæðum ́á meðan.
AFP