Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Blaðsíða 33
17.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
1 stk. hamborgarabrauð
1 stk. hamborgari
Aðferð: Hamborgarinn er steiktur á pönnu í nokkrar
mínútur og síðan skellt í brauðið og borðað án sósu.
Gott að skola honum niður með mjólk eða und-
anrennu. Á hátíðisdögum er ostsneið skellt ofan á
borgarann.
„Þetta reddast“- ham-
borgari
Morgunblaðið/Kristinn
Björn Thors kom
aðeins of seint.
Keyrði samt
gleðina í gang.
stjóri þegar maður er kvenmaður. Hvernig það líka breytist
með aldrinum, hvernig aflinu sé misjafnlega beitt eftir því á
hvaða aldri maður er.“
Börkur: „Og líka væntanlega með reynslunni. Það er allt
öðruvísi að gera bíómynd þegar þú ert þegar búinn að gera
eina en þegar þú ert að gera þína fyrstu bíómynd. Maður er
miklu grimmari þegar maður er ekki með neitt að baki en
getur verið ljúflingur þegar það vita allir hvað þú getur gert.
Þegar ég gerði mína fyrstu bíómynd var ég í ofanálag útlend-
ingur og þá er maður sérdeilis grimmur, því það treystir
manni enginn.“
Björn: „Þú ert ágætur.“
Jón Páll: „Ég er ekki viss,“ segir hann og glottir. „Um leið og
ég kom inn núna áðan byrjaði ég með svaka kaldhæðnislega
brandara og fór að fara yfir strikið, það bara byrjaði um leið
og ég sá Börk. Hann dregur þetta fram í mér.“
Maríanna: „Já, hann dregur það versta fram í fólki, er það
ekki Linda?“
Linda: „Algjörlega.“
Börkur: „Hey, sýnið miskunn!“
Innihald:
Spagettí
Ferskt chili
Aðferð: Spagettí soðið í átta mínútur.
Ferskt chili steikt á pönnu. Þessu er síð-
an skellt saman og borðað með bestu lyst.
„Þetta reddast“-
chili-spagettí
(uppskrift fyrir 5-6 manns)
4 kjúklingabringur, smátt skornar
1 græn paprika, smátt skorin
1 gul paprika, smátt skorin
2 gulrætur, smátt skornar
½ blaðlaukur, smátt skorinn
2 hvítlauksgeirar
1 laukur, smátt skorinn
½ rautt chili
2 msk olía
2 dós saxaðir tómatar
2 teningar af kjúklingakrafti
2-3 msk karrí
smá kjúklingakrydd
3 l vatn
1 peli rjómi
1 dós tómatpúrra
200 g philadelphia-rjómaostur með
sweet chili
salt og nýmalaður pipar
Borið fram með sýrðum rjóma, rifnum osti
og nachos-flögum.
Mexíkósk
kjúklingasúpa