Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Page 39
17.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
V
enjuleg mánudagskvöld hjá húsmæðrum í 108 eru yfirleitt
með einföldu og fábrotnu sniði. Oftast eru þau notuð til að
næra andlega og líkamlega heilsu og sinna vísitölulífinu af
mikilli alúð. Sortera sokka og svona … Það sem svona hús-
mæður óttast þó mest í lífinu er að tilveran verði eins og í kvik-
myndinni Groundhog Day. Það var því þungu fargi af húsmóð-
urinni létt þegar hún frétti að henni stæði til boða að hitta
tískuhönnuðinn Marc Jacobs í Lundúnum. Hjartað tók nokkur auka-
slög, sem gerist nú ekki oft hjá svona yfirveguðum og prúðum mið-
aldra konum, og hugurinn reikaði með tryllingi aftur í tímann. Hús-
móðirin hefur nefnilega oft lent í þeirri djöfullegu stöðu að þurfa að
hugsa sig tvisvar um áður en hún rennir kortinu í gegn í verslunum
tískuhönnuðarins. Á slíkum augnablikum hefur hún spurt sig mjög
erfiðra spurninga á borð við hvort lífshamingja hennar myndi
raunverulega aukast um 27% ef hún eignaðist nýjan Marc Jacobs-
kjól eða hvort
þetta væru allt upp
til hópa hreinrækt-
aðar gerviþarfir. Á
einhverjum tíma-
punkti hefur
skrattinn á öxlinni,
sem segir húsmóð-
urinni reglulega að
lifa í núinu og að
lífið sé allt of stutt
fyrir ljóta og van-
sniðna kjóla, tekið
völdin. Þegar horft
er til baka er
alveg hægt að
færa rök fyrir
því að lífsham-
ingjan hafi auk-
ist, það er alla-
vega ennþá
verið að nota
góssið af 403
Bleecker
Street …
Þegar hjartað
var farið að slá
eðlilega á ný
jókst hjartslátt-
urinn aftur þeg-
ar hún áttaði
sig á því að hún
ætti náttúrlega
ekkert til að
fara í. Það væri
dálítið glatað að
hitta MJ og
klæðast kjól úr ódýrari línunni,
Marc by Marc Jacobs, frá 2009 eða
vera í einhverju afar ótískulegu,
óspennandi, ósjarmerandi og hrein-
lega hallærislegu.
Og svo rann mánudagskvöldið upp
og húsmóðirin hitti Marc Jacobs.
Hann var í náttfötum, en hún í
svörtum vönduðum kjól, lakkskóm
frá ítölsku tískuhúsi og með neon-
belti úr Lindex. Í boðinu voru
þekktir blaðamenn víðsvegar að úr heiminum, aðallega Norðurlönd-
unum og Bretlandi. Að labba inn í partíið var eins og að labba inn á
tískusýningu. Allar hafa blaðakonurnar ákveðið að vera í sínu fín-
asta pússi og varð því ekki þverfótað fyrir konum í jólafötum.
Sumar voru í pallíettum frá toppi til táar, aðrar í magabolum og enn
aðrar í samfestingum með fjaðraskrauti. Flestar áttu þær það sam-
eiginlegt að vera með lúxus-töskur frá þekktustu tískuhúsum heims.
Það virðist ekkert vera að breytast þótt töskuflotinn sé kannski að-
eins að eldast …
Það var dásamlegt að horfa yfir hópinn og sjá alla þessa tísku-
dýrð. Það er nefnilega fátt jafnsjarmerandi og konur sem eru
ánægðar með sig og vita að þær eru alveg með þetta. Konur sem
fíla sig vel, sama hvernig þær eru til fara, glóa eins og demantar og
sjálfstraustið eykst um 58% eða meira. Konur sem hafa sjálfstraust
eru líklegri til að láta drauma sína rætast og verða þar af leiðandi
hamingjusamari … martamaria@mbl.is
Sjálfstraustið og
hamingjan …
Þessi skart-
aði stórri
Prada-tösku.
MMJ og MJ í
Lundúnum.
Rauð Marc Ja-
cobs-taska og
tvílitar buxur,
hvítar að fram-
an og svartar
að aftan.
Vor og sumar 2013
Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 551 6646 Laura Ashley á Íslandi
Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga 11-15
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár