Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Blaðsíða 40
Svokallaðar Pipa-
sokkabuxur.
Aðdáendur Marimekko gleðjast eflaust yfirnýjustu tíðindunum en hátískufatnaðurfinnska hönnunarrisans er aftur fáanlegurá Íslandi.
Það er finnska hönnunarbúðin Suomi Design á
Laugavegi sem hefur tekið bæði fatnað og fylgi-
hluti, töskur og hálsmen upp á sína arma. Satu
Rämo, annar eigandi Suomi PRKL! Design, segir að
ákveðið hafi verið að taka upp úr fyrstu kössunum
í tilefni af Hönnunarmars. Auk Satu á Maarit Kaip-
painen verslunina.
Marimekko-fatalínan hefur ekki fengist á Íslandi
um nokkurt skeið en nýja vor- og sumarlína þeirra
er sérstaklega litaglöð og falleg og sniðin kvenleg.
Auk þess verða klassísku Mari-randabolirnir til
sölu, fyrir konur og karla.
Marimekko var stofnað af Armi Ratia árið 1962
og varð strax að menningarlegu fyrirbæri sem
flestir þekkja. Þess má geta að töluvert verður um
að finnsk hönnun skjóti upp kollinum á Hönn-
unarmars.
HÖNNUNARMARS
Marimekko
aftur á Íslandi
Kjólar úr
vor- og
sumarlínu
Marimekko.
ÁÐUR EN VIÐ VITUM AF VERÐUR ORÐIÐ
NÓGU HEITT Í VEÐRI FYRIR BLÚSSUR, VESTI,
ERMALAUST OG TOPPA.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
F
allegar blússur eru áberandi á vormánuðum. Um
leið og við finnum að það er komið peysuveður má
fara að huga að þynnri flíkum fyrir efri part lík-
amans. Fallegar, dömulegar blússur eru móðins í
vor, sérstaklega þær ermalausu. Þá eru töffaralegar
skyrtur og blússur, eins og Noomi Rapace og Kate
Middleton klæðast gjarnan, áberandi. Ekki skemmir að
hafa þær einlitar, annaðhvort úr hreinni þykkri bómull
eins og Rapace klæðist gjarnan eða einhverju loft-
kenndara og léttara efni eins og hertogaynjan myndi
velja sér.
Efnin eru sum þó nokkuð gagnsæ, siffon og silki, púff-
ermar dúkka upp og á litaspjaldinu eru til að mynda antík-
blár, antíkbleikur, svartur og hvítur. Þá er ekki verra að
rekast á vesti og blússur sem eru hnepptar að framan.
Allra helst að nota belti með glansandi fínum blússum á há-
tíðlegum kvöldum.
Gullfalleg og
óvenjuleg lita-
samsetning frá
danska tískuhús-
inu Edith & Ella.
Julien Fournie notaði mikið af siffoni og skemmtilegum léttum
efnum í vorlínuna sína. Sérstaklega fallegt snið yfir axlirnar.
Frönsk hönnun; meira púff og falleg rykking
sem tekin er saman í veglega slaufu.
Kate Middleton
í antíkblárri
blússu.
TÍMI LÉTTRA FLÍKA
Franski hönnuðurinn Alexis Mabille vill hafa blússurnar
léttar í vor. Bundnar, með slaufum og eilítið gegnsæjar.
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.3. 2013
Föt og fylgihlutir
Noomi Rapace er auðvitað slíkur töffari að hún
fer frekar í sterkar bómullarskyrtur en róm-
antískar blúndur. Það má líka.
Blússandi sigling