Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Side 50
Ég er ekki
meðvirk
HÚN ER FREMSTA FAGMANNESKJA ÞJÓÐARINNAR Í TÍSKU.
SUMIR HRÆÐAST LINDU BJÖRG ÁRNADÓTTUR OG FLESTIR
LEGGJAVIÐ HLUSTIR ÞEGAR HÚN LJÁIR MÁLS Á EINHVERJU.
HVORT SEM ÞAÐ ERU KJÓLAR Í EUROVISION, LOPAPEYSA Á
ALÞINGI EÐA KYNÞOKKI KVENNA SEM HÚN SEGIRVALDATÆKI.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Þ
að að ég sé hreinskilin og orði hlutina eins og þeir
eru var mikils metinn kostur hjá vinnuveitendum
mínum í Frakklandi. Þegar ég kom heim til Ís-
lands fann ég fljótt að fólki fannst þessi hreinskilni
ekki í lagi. En meðvirkni funkerar ekki í neinu
fagi, engum viðskiptum né samskiptum. Sagan um nýju fötin
keisarans er frægasta sagan um þetta efni,“ segir Linda Björg
Árnadóttir, fata- og textílhönnuður. Þótt fagfólk og fagurkerar
hafi fyrir löngu spottað Lindu sem mikilsháttar hönnuð gerði
Linda nokkuð skemmtilegt árið 2010. Hún fangaði athygli
þeirra sem jafnan velta ekki fyrir sér þeim heimi.
Til upprifjunar er Linda konan sem setti allt á hliðina þegar
hún sendi Evu Maríu Jónsdóttur sjónvarpskonu bréf eftir úr-
slitakvöld Söngvakeppni sjónvarpsins. Í bréfinu sagði Linda að
kjólar kynnanna; Evu Maríu Jónsdóttur og Ragnhildar Stein-
unnar, væru þeir ljótustu sem hún hefði séð séð í sjónvarpinu.
Bréfið rataði í fjölmiðla og þar eftir hefur ekki aðeins verið
fylgst með því sem Linda skapar heldur jafnframt öllu því sem
hún færir opinberlega í tal.
Í framhaldi bréfsins sagði Linda í viðtölum að RÚV bæri þá
ábyrgð gagnvart íslenskum sjónlistum að það yrði að sýna það
besta sem væri í gangi hverju sinni. Þann dag heimsóttu um
10.000 manns hennar persónulegu heimasíðu og ljóst var að í
Lindu bjó stórskemmtilegur og óbanginn þjóðfélagsrýnir.
Þetta óvenjulega mál náði svo langt að komast í aprílgabb
Fréttablaðsins og Spaugstofuna. En þetta sagði ýmislegt um
hvernig Linda fer sjaldnast eins og köttur í kringum heitan
graut. Enda segir hún það ekkert nema virðingarleysi ef fag-
mennska sé ekki álitin mikilvæg þótt efnið heiti „tíska“.
Áður en við ræðum lopapeysumálið mikla á Alþingi, Evr-
óvisjón, kennsluaðferðir Lindu og fleira skemmtilegt ætlum við
rétt lauslega að renna yfir ferilinn sem er flottur. Hún hefur
bæði menntað sig í fatahönnun og textílhönnun. Útskrifaðist
árið 1995 úr textílhönnunardeild MHÍ með hæstu einkunn fyr-
ir lokaverkefni. Tveimur árum síðar útskrifaðist hún sem fata-
hönnuður úr Parísarskólanum Studio Bercot. Hún var snemma
farin að vinna til verðlauna. Fyrstu verðlaun í SIFA, Smirnoff
fashion awards tvö ár í röð. Búningahönnun fyrir leikhús er
meðal verkefna og hún hefur skapað línur undir eigin hönn-
unarmerki, meðal annars hið vinsæla merki SVO og síðar
Scintilla þar sem hún hefur unnið mikið með textíl í heim-
ilisvörum. Hún hefur unnið fyrir franska hönnuðinn Martine
Sitbon, snyrtivörufyrirtækið Shiseido, unnið í verkefnum fyrir
Jil Sendor, Hugo Boss og Sergio Rossi svo eitthvað sé nefnt.
Þá vann hún að umgjörð myndbanda fyrir Gus Gus-hópinn,
Björk og Sigur Rós. Með nýlegri verkefnum utan fagstjóra-
starfsins í LHÍ voru raunveruleikaþættirnir Hannað fyrir Ís-
land. Linda hefur útskrifað um 120 fatahönnuði. Mikil og víð-
feðm reynsla verður því ekki af henni skafin. Skiljanlega hefur
hún skoðanir á öllu því sem tengist hennar fagi.
„Ég vissi snemma að áhugi minn
lægi þarna. Heima var ég hvött til
að læra eitthvað praktískara svo
ég beið aðeins með að fara af stað.
Ég fór í Myndlista- og hand-
íðaskólann en ég get ekki sagt að á
þessum tímum hafi fólk verið
bjartsýnt á að hægt væri að hafa
lifibrauð af hönnun. Það hefur
ótrúlega margt breyst. Hluti af
viðhorfinu gagnavart fatahönnun
var að þetta væri ekki eiginlegt
fag. Að þetta snérist um persónu-
legan smekk og það væri ekki til neitt faglegt mat á hönnun.
Ég og við uppi í Listaháskóla höfum algerlega tekið þá stefnu
að tala aldrei þannig. Það er til faglegt mat á fagurfræði. Fólki
verður stundum heitt í hamsi þegar nefnt er að það sé til eitt-
hvað sem heitir góður smekkur og það sé fólk í tískubrans-
anum sem í raun og veru hafi mikla þekkingu og skilning á
því. Þetta fólk fær mjög góð störf út um allan heim. Fólk á
erfitt með að kyngja að sumir eru einfaldlega með betra auga
fyrir þessu en aðrir.“
Linda segir að þó hafi orðið stórkostleg breyting á orðræð-
unni um hönnun. „Fatahönnun getur búið til peninga – fjölda-
framleidda vöru – nýsköpun í iðnaði. Um leið og allir gera sér
grein fyrir þessu verður almennt farið að taka mark á þessum
heimi.“ Linda mælist til þess að fólk horfi til Frakklands. Þá
liggi þetta strax í augum uppi. Bara hjá samsteypunni sem á
Louis Vuitton, LVHM, starfi jafnmargir og 2/3 hlutar íslensku
þjóðarinnar, 200.000 manns. Það grínist enginn með þetta fag
þar. „Þetta er ekkert „kerlingarhobbí“ eins og gjarnan er talað
um þetta fag hér. Ég nota þetta orð og sumir fá áfall yfir því en
svona er þetta bara.“
Sumir hræðast Lindu
Hefurðu alltaf verið svona? Eða var það námið úti sem þjálfaði
þig í að viðra skoðanir þínar geiglaus? „Ég held að ég hafi allt-
af verið svona. Í dag er ég í þannig
stöðu að ég fæ að njóta þess. Fólki
er farið að finnast það skemmtilegt
að ég hafi skoðanir og vill heyra
hvað ég hef að segja. Ég upplifði
það reyndar fyrst úti, í skólanum og
í starfi mínu þar eftir námið. Það
var svo gaman. Allir vildu vita hvað
mér fyndist um eitthvað.“ Linda
segir það ekki gott fyrir greinina að
fólk sé jákvætt bara til að styggja
ekki eða særa. „Ef ég samþykki að
einhver flík sé falleg án þess að
innistæða sé fyrir því og hún fer í verslanir er það á endanum
þannig að hún selst ekki. Kennarar bresku listaháskólanna,
sem eru þeir bestu í heiminum, færa skoðanir sínar í búning
sem getur valdið hneykslun. Það kom hingað kennari frá Cent-
ral St. Martins að dæma lokaverkefni og hún sagði til dæmis
að flík hefði verið þannig að það mætti halda að einhver hefði
ælt á hana. En til að geta verið gagnrýninn þarftu líka að hafa
húmor. Það hafði mikil áhrif á mig að vera með kennara á
borð við þennan sem henti verkefnum stundum beint í ruslið.“
En eru krakkarnir í LHÍ þá ekkert hræddir við kennarann
Lindu? „Það koma árgangar sem eru pínu hræddari við mig
* „Mér finnst meðvirktfólk ofboðslega leið-inlegt. Ef fólk þarf endilega
alltaf að segja nákvæmlega
það sem ég held að það ætli
að segja þá þarf það ekki
einu sinni að segja það“
Viðtal
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.3. 2013