Morgunblaðið - 03.04.2013, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2013
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
B
erglind Björgúlfsdóttir
leyfir sköpunargleði
barnanna að njóta sín í
námskeiði þar sem for-
eldrar og börn koma
saman í leik, dansi og söng. Berglind
heldur nú í apríl námskeiðið Tónlist
og skapandi hreyfing, íslenskt fjöru-
og fuglaævintýri en námskeiðið fer
að hluta til fram í Gróttu.
Foreldrar fá að vera með
Berglind segir börnin hafa
gaman af því að vera frjáls og fá út-
rás í gegnum leik, söng og dans. Hún
vilji ekki kenna þeim þannig að allir
sitji í hring og hlusti heldur frekar
að þau fái að vera skapandi og tjái
sig í leik.
„Það skiptir mestu máli að
börnin hafi gaman af þessu og
kennslan sé skemmtileg. Svo vildi ég
endilega að foreldrar kæmu með því
oft er leiðinlegt þegar þeir eru sífellt
að keyra börnin fram og til baka og
bíða síðan eftir þeim. Eftir nám-
skeiðið geta foreldrar líka haldið
áfram að örva börnin í gegnum leik,
söng og dans,“ segir Berglind en
námskeiðið er fyrir þriggja ára börn
og miðað við að eitt foreldri komi
með hverju barni.
Auk tónlistar og skapandi
hreyfingar er náttúran einnig tvinn-
uð inn í námskeiðið og læra börnin
um íslenska fugla og fjöruna í gegn-
um söng, dans, markvissa hlustun og
hljóðfæraslátt (bjöllur, trommur,
hristur, prik o.fl. skemmtilegt). Þá
verður náttúruperlan Grótta heim-
sótt en þar er fjölbreytt fuglalíf og
verður innblástur sóttur í náttúruna.
Sköpunargáfan fær
að leika lausum hala
Tónlist, hreyfing og innblástur úr náttúrunni blandast saman á námskeiði fyrir
börn og foreldra þeirra. Þar munu börnin fá að skapa og tjá sig í frjálslegum leik
og er einblínt á sköpunargáfu þeirra. Kennari á námskeiðinu er Berglind Björg-
úlfsdóttir sem lengi hefur unnið með börnum í skapandi starfi.
Morgunblaðið/Kristinn
Kennari Berglind Björgúlfsdóttir vinur skapandi starf með börnum.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Grótta Innblástur úr náttúrunni getur orðið kveikjan að lagi eða dansi.
Andreas Eenfeldt heldur úti góðri
vefsíðu um samsetningu fæðu sem
inniheldur lítið kolvetni en mikla fitu,
eða það sem skammstafað er LCHF.
Andreas þessi er sænskur læknir sem
leggur metnað sinn í að breiða út
boðskapinn. Hann segir það hafa ver-
ið mistök undangengin ár að leggja
áherslu á að hvetja fólk til að borða
sem minnst af fitu og einnig hafi það
verið mistök að draga úr neyslu á
mettaðri fitu. Hann segir vefsíðuna
sína dietdoctor.com, vera blogg þar
sem fólk geti fræðst ókeypis um allt
sem viðkemur LCHF (lítið kolvetni,
mikil fita). Þar er hægt að fá ýmsar
ráðleggingar og leiðbeiningar um
hvernig hægt er að setja saman góm-
sæta máltíð sem inniheldur lítið af
kolvetnum en mikið af fitu. Hann seg-
ir slíka fæðu ekki aðeins vera heilsu-
bætandi, heldur einnig leið til að létt-
ast.
Vefsíðan www.dietdoctor.com
Morgunblaðið/Ómar
Hollusta Lax er matur sem Andreas mælir með. Nóg er af honum á Íslandi.
Hollur og góður matur er málið
Söngfélag Skaftfell-
inga er fjörutíu ára
um þessar mundir og
af því tilefni verða
haldnir afmælistón-
leikar í Seltjarnarnes-
kirkju á morgun,
fimmtudag, kl. 20.
Einsöng syngur Jóna
G. Kolbrúnardóttir
sópran og einnig leika
með kórnum þeir
Vignir Þór Stefánsson
á píanó, Jón Rafnsson á kontrabassa og Matthías Stefánsson á fiðlu. Á efnis-
skránni verða m.a. lög sem Erla Stefánsdóttir, Þuríður Sigurðardóttir, Hljóm-
sveit Ingimars Eydals, Tólfti september, Sigfús Halldórsson og Theódór Einars-
son revíuskáld frá Akranesi gerðu fræg á sínum tíma. Í bígerð er diskur með
ýmsum lögum úr lagasafni kórsins og fara upptökur fram nú í apríl.
Endilega …
… farið á afmælistónleika
Í kvöld kl. 20 mun Bjargey Ingólfs-
dóttir kenna fólki að búa til kóngulær
úr vír og perlum á handverkskaffi
Gerðubergs. Hún segir ástæðu þess
að hún tók sig til og bjó til kóngulær
þá að hún var illa haldin af kónguló-
arfælni, en með því að búa þær til og
fræðast um þær fjaraði fælnin út og í
dag skreyta kóngulær heimili hennar
og vinnustofu.
Bjargey fæddist á Akureyri 1959,
en hún ólst upp í frjóu umhverfi þar
sem sköpunarkraftur og hugmynda-
auðgi fékk notið sín. Hún útskrifaðist
sem iðjuþjálfi frá Ergoterapihögskol-
en í Þrándheimi 1984 og hefur síðan
bætt við sig myndlistaráföngum í
Fjölbrautarskól-
anum í Breiðholti
og hönnunar-
áföngum í Iðn-
skólanum í Hafn-
arfirði.
Árið 2006
stofnaði hún
hönnunarfyrir-
tækið BARA með
áherslu á heilsu-
og stuðnings-
vörur sem bæta líðan og auka lífs-
gæði fólks. Hún var einn af frum-
kvöðlunum að stofnun Grósku, félags
myndlistarfólks í Garðabæ og Álfta-
nesi, árið 2010.
Víraðar kóngulær
Kónguló kónguló vísaðu
mér á handverkskaffi í kvöld
List Sumir óttast kóngulær en sigrast má á slíkum ótta með því að búa þær til.
Bjargey
Ingólfsdóttir
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.