Morgunblaðið - 03.04.2013, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2013
FRJÁLSI
LÍFEYRISSJÓÐURINN
Ársfundur
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn 24. apríl
nk. kl. 17.15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
8
3
7
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hentar þeim sem hafa frjálst val um
í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða skyldulífeyrissparnað sinn
og er opinn öllum sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.
Hafðu samband við okkur í síma 444 7000, sendu tölvupóst
á lifeyristhjonusta@arionbanki.is eða komdu við í næsta útibúi.
Meginniðurstöður ársreiknings
(í millj. króna)
LÍFEYRISSKULDBINDINGAR SKV. NIÐURSTÖÐU
TRYGGINGAFRÆÐINGS 31.12.2012
Eignir umfram áfallnar skuldbindingar
Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum
Eignir umfram heildarskuldbindingar
Í hlutfalli af heildarskuldbindingum
-459
-1,6%
-243
-0,3%
KENNITÖLUR
Eignir í íslenskum krónum
Eignir í erlendum myntum
¹Fjöldi virkra sjóðfélaga
Fjöldi sjóðfélaga í árslok
² Fjöldi lífeyrisþega
79,8%
20,2%
12.478
45.926
1.717
¹ Meðaltal fjölda sjóðfélaga sem greiddi iðgjald á árinu.2
Meðaltal lífeyrisþega sem fengu greiddan lífeyri á árinu.
7.913
-2.696
12.161
-285
-140
16.953
99.715
116.668
YFIRLIT UM BREYTINGAR Á HREINNI EIGN
TIL GREIÐSLU LÍFEYRIS FYRIR ÁRIÐ 2012
Iðgjöld
Lífeyrir
Fjárfestingartekjur
Fjárfestingargjöld
Rekstrarkostnaður
Hækkun á hreinni eign á árinu
Hrein eign frá fyrra ári
Hrein eign til greiðslu lífeyris
EFNAHAGSREIKNINGUR 31.12. 2012
EIGNIR
Verðbréf með breytilegum tekjum
Verðbréf með föstum tekjum
Veðlán
Verðtryggð innlán
Aðrar fjárfestingar
Fjárfestingar alls
Kröfur
Aðrar eignir
Eignir samtals
Skuldir
Hrein eign til greiðslu lífeyris
44.050
65.598
1.616
2.500
15
113.780
707
3.005
117.492
-824
116.668
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Kynning ársreiknings
3. Tryggingafræðileg athugun
4. Fjárfestingarstefna sjóðsins
5. Kosning stjórnar og varamanna
6. Kjör endurskoðanda
7. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
8. Laun stjórnarmanna
9. Önnur mál
Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins verða birtar
á frjalsilif.is og verða aðgengilegar í höfuðstöðvum Arion
banka tveimur vikum fyrir ársfund.
Á fundinum verður kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja
ára og tvo varamenn til eins árs. Framboð til stjórnar þarf
að liggja fyrir eigi síðar en sjö dögum fyrir ársfund og ber
að tilkynna framboð til stjórnar með sannanlegum hætti.
Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.
Tryggingadeild*
10,5%
5%
10%
15%
Frjálsi 1
14,1%
Frjálsi Áhætta
9,8%
8,1%8,2%
10,5%
12,5%
5,6%
NAFNÁVÖXTUN
FRJÁLSA LÍFEYRISSJÓÐSINS
Frjálsi 3
5,4%
Nafnávöxtun 2012
5 ára meðalnafnávöxtun tímabilið 31.12.2007 – 31.12.2012
Ávöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um ávöxtun í framtíð. 5 ára ávöxtun er mismunandi á milli ára.
Frekari upplýsingar um ávöxtun hvers árs má nálgast á frjalsilif.is.
Frjálsi 2
8,8%
*Skuldabréf eru gerð upp á kaupkröfu.
„Það sem stendur upp úr á sýning-
unni er mikil breidd hrossanna. Það
er til rosalega mikið af góðum hest-
um, hvort sem um er að ræða klár-
hesta eða alhliða hesta. Gæðin í
tölti og brokki hjá alhliða hestum
eru orðin á pari við bestu klár-
hesta,“ segir Óðinn Örn Jóhanns-
son, blaðamaður á Eiðfaxa, um
Stóðhestaveisluna sem haldin var í
Ölfushöllinni sl. laugardag.
Af ungum og upprennandi hest-
um nefndi Óðinn tvo Stálasyni sem
vöktu athygli; þá Vála frá Efra-
Langholti og Árla frá Laugasteini.
Þá þótti Bikar frá Syðri-Reykjum,
sem Helga Una Björnsdóttir sýndi,
mjög lofandi. Af eldri graðhestum
komu fram sigurvegarar í A- og B-
flokki síðasta landsmóts, þeir
Glóðafeykir frá Halakoti og Fróði
frá Staðartungu.
Sýningin var saman sett af atrið-
um með klárhestum, alhliða hest-
um, afkvæmasýningum og ein-
staklingssýningum. thorunn@mbl.is
Nýjar
stjörnur
stigu fram
Stóðhestaveislan
stóð undir nafni
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Fákar Helga á Bikar frá Syðri-
Reykjum og Kári á Presti frá Hæli.
„Við erum að minna á tilvist hests-
ins á höfuðborgarsvæðinu. Það er
alltaf gaman að fá nýtt fólk inn í
hestamennskuna, jafnt börn sem
fullorðna. Saga hestsins er sam-
tvinnuð okkar sögu en hlutverk
hans hefur breyst síðustu ár.
Hestamennskan er ákveðinn lífs-
stíll,“ segir Hilda Karen Garðars-
dóttir, verkefnastjóri hjá Lands-
sambandi hestamannafélaga (LH),
um hátíðina Hestadaga í Reykjavík,
sem hefst á morgun. Borgarstjóri
Reykjavíkur setur hátíðina þar sem
honum er ekið í hestvagni að Ráð-
húsinu. Hestadagar í Reykjavík
standa fram á sunnudag.
Á föstudaginn munu hesta-
mannafélögin á höfuðborgarsvæð-
inu bjóða í heimsókn og hægt verð-
ur að fara á hestbak í reiðhöllum
félaganna.
Á laugardaginn verður skrúðreið
um 150 hesta frá BSÍ um miðborg-
ina. Þá verður frítt inn í Húsdýra-
garðinn þar sem hægt verður að
fara á hestbak og fræðast um hest-
inn. Um kvöldið verður ístölt í
skautahöllinni í Laugardal.
Sýningin Æskan og hesturinn
verður á sunnudeginum, þar leika
knapar framtíðarinnar listir sínar.
Hátíðin er samvinnuverkefni LH
og Höfuðborgarstofu. Dagskrána
má nálgast á vefsíðunni lhhestar.is.
thorunn@mbl.is
Minna á hestinn í borginni
Ljósmynd/LH
Skrúðreið John Kristinn Sigurjónsson og Hrefna María Ómarsdóttir í söðli.
Hestadagar í Reykjavík settir á morgun Borgarstjóra
ekið í hestvagni Vilja fá nýtt fólk í hestamennskuna
Opinn fundur á vegum Alþjóða-
málastofnunar Háskóla Íslands í
samvinnu við franska sendiráðið og
Evrópustofu verður haldinn í dag kl.
12-13 í fundarsal Norræna hússins.
Vivien Pertusot, forstöðumaður
Ifri-hugveitunnar í Brussel, fjallar
þar um hugmyndir um breytilegan
og mismikinn samruna í Evrópu-
sambandinu. Umræður af þessu tagi
eru ekki nýjar af nálinni en eru nú
háværari en áður, segir í fundarboði.
Vivien Pertusot er forstöðumaður
frönsku Ifri-hugveitunnar í Brussel,
en hún er leiðandi á sviði alþjóða-
mála. Hann vann áður hjá NATO
and Carnegie Europe og kenndi
einnig stjórnmálafræði í háskól-
anum Lille 2. Skrif hans hafa birst í
fjölmiðlum víða um heim.
Fundarstjóri verður Alyson Bail-
es, stjórnarformaður Alþjóða-
málastofnunar Háskóla Íslands.
Fundurinn fer fram á ensku.
Ræðir um
samruna
innan ESB