Morgunblaðið - 03.04.2013, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.04.2013, Blaðsíða 26
Dögun, stjórnmálasamtök heimil- anna er sameining minni framboða Þessa dagana kalla margir eftir því að litlu framboðin sameinist. Það upplýsist hér með að það hefur verið gert. Dögun, stjórnmála- samtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði er einmitt sameining ým- issa framboða. Byggt er á grunni Borgarahreyf- ingarinnar. Þar ofan á koma Hreyfingin og Frjálslyndi flokkurinn. Auk þess ýmsir aðilar sem koma inn í Dögun sem ein- staklingar. Tveir fyrrverandi for- menn í Hagsmunasamtökum heim- ilanna, stjórnlagaráðsfulltrúi og fleira fólk sem hefur sýnt vilja sinn í verki fyrir betra Íslandi. Í þessu samvinnuferli hefur verið rætt um samstarf við flest þessi svokölluðu litlu framboð og þeim boðið að vera samferða. Fleiri hafa ekki gengið til sam- starfs. Segjast verður eins og er að halda mætti að mörg þeirra framboða sem nú spretta upp eins og gorkúlur hafi ein- faldlega ljósritað ein- hver skjöl úr stefnu Dögunar. Það er gott eitt um það að segja að sótt sé í smiðju Dögunar en það skil- ur eftir spurninguna, hvers vegna hinir sömu gátu ekki bara verið með. Dögun hefur lokið við framboðs- lista sem eru fullmannaðir og til- búnir. Samvinna við önnur framboð verður því hér eftir aðeins möguleg með annarskonar kosninga- bandalagi og Dögun heldur þeim möguleika opnum sem áður. Að halda því fram að sameining framboða eigi sér ekki stað er því ekki rétt og að viljinn sé ekki til staðar stenst ekki heldur. Sú stað- hæfing er afsönnuð með þeirri staðreynd að Dögun, stjórnmála- samtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði er samvinnumiðað stjórn- málaafl sem hefur einmitt sameinað minni flokka og er stundum er kall- að: Dögun, stjórnmálasamtök heim- ilanna. Eftir Baldvin Björgvinsson Baldvin Björgvinsson »Dögun er sameining ýmissa framboða. Byggt er á grunni Borg- arahreyfingarinnar. Þar ofan á koma Hreyfingin og Frjálslyndi flokk- urinn og fleiri. Höfundur situr í framkvæmdaráði Dögunar og skipar 4. sæti í Suðvest- urkjördæmi. 26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2013 Vor og sumar 2013 Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 551 6646 Laura Ashley á Íslandi • Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga 11-15 Slæmt ástand í sam- göngumálum Vestfirð- inga er ekki í fréttum á hverjum degi. Ákvörðun sem tekin var undir pólitísku yf- irskini án samráðs við heimamenn á sunnan- verðum Vestfjörðum um að færa Austur- og Vestur-Barðastrand- arsýslur undir emb- ættið á Ísafirði vekur spurningar um hvort það hefði strax í upphafi átt að setja fyr- irhuguð Dýrafjarðargöng í fyrsta áfanga með jarðgöngunum milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar sem Alþingi samþykkti í febrúar 1999. Skammarlegt er að Einar K Guðfinnsson skuli alltaf setja sig upp á móti Dýrafjarðargöngum sem ákveðið er að ráðast í að lokn- um framkvæmdum við Norðfjarð- argöng. Á fundi sem haldinn var á Flat- eyri sumarið 1999 spurði grein- arhöfundur fyrrverandi þingmenn Vestfirðinga hvort til greina kæmi að flýta undirbúningsrannsóknum á jarðgangagerð milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar vegna slysahætt- unnar í Súðavíkurhlíð. Þá létu þess- ir landsbyggðarþingmenn sem þeir heyrðu ekki spurninguna og vísuðu henni norður og niður. Nýju jarð- göngin milli Hnífsdals og Bolung- arvíkur sem tekin voru í notkun 11 árum síðar kærðu þeir sig ekkert um þegar öllum mínum spurn- ingum var svarað með hroka og út- úrsnúningi án þess að öryggi íbú- anna á Ísafjarðarsvæðinu væri haft í huga. Það er óþolandi og engum bjóðandi að allar leiðir til og frá höfuðstað Vestfjarða skuli lokast dögum saman vegna snjóþyngsla, snjóflóða- og grjóthruns sem eng- inn sér fyrir. Helsta samgönguæð íbúa sex þéttbýlisstaða norðan Hrafnseyr- arheiðar yfir vetrarmánuðina er vegurinn um Kirkjubólshlíð, Súða- víkurhlíð, inn Djúpið og um Stein- grímsfjarðarheiði. Í Morgunblaðinu 26. janúar sl. ítrekaði Ólína Þor- varðardóttir að á þessari leið væru 22 snjóflóðagil, sem er alltof mikið. Ekki er útilokað að þessi tala geti verið ennþá hærri án þess að þing- menn Norðvesturkjördæmis og all- ir íbúar fjórðungsins séu meðvit- aðir um það. Á þessari leið féllu 20 snjóflóð í áramótaveðrinu. Með veggöngum sem stytta vegalengd- irnar til og frá Ísafirði hefði verið fljótlegra að koma raforkumálum Vestfirðinga í lag. Þá hefði rafmagn ekki þurft að fara af fjöl- mörgum byggðum allt frá nokkrum klukku- stundum upp í fleiri daga. Með tilkomu vegganga sem hér eru nefnd hefði hættu- ástandið orðið mun minna ef rétt hefði verið brugðist við. En því miður tók raf- magnsleysið sinn toll. Í kjölfarið var von- laust fyrir viðgerð- armenn að komast á milli staða þegar vegir lokuðust vegna snjó- flóða. Tímabært er að allir þingmenn Norðvesturkjördæmis flytji á Al- þingi tillögu um að Súðavíkurgöng verði sett hið snarasta inn á teikni- borðið og samgönguáætlun á með- an Norðfjarðargöng verða í vinnslu næstu þrjú til fjögur árin. Brýnt er að ákvörðun um útboð Dýrafjarð- arganga liggi fyrir löngu áður en framkvæmdum við Norðfjarð- argöng lýkur. Í beinu framhaldi af göngunum mili Dýrafjarðar og Arnarfjarðar þarf líka að skoða möguleika á jarðgöngum sem rjúfa einangrun byggðanna norðan Hrafnseyrarheiðar við sunn- anverða Vestfirði. Á meðan biðlist- ar eftir jarðgöngum lengjast skipt- ir öllu máli að að komið verði upp snjóflóðavörnum í Kirkjubólshlíð til þess að öryggi Ísafjarðarflugvallar sé tryggt vegna sjúkraflugsins. Fyrsta skrefið til að bregðast við þessu vandamáli er að allir þing- menn Norðvesturkjördæmis setjist niður og komi sér saman um hvern- ing öllum þeim jarðgöngum sem eru á samgönguáætlun verði for- gangsraðað. Greinarhöfundur sendir Ólínu Þorvarðardóttur skýr skilaboð um að 3 km löng veggöng í hlíðinni norðan Súðavíkur sem kæmu út á snjóflóðasvæði í Arn- ardal breyta engu. Fram kemur í jarðgangaáætlun Vegagerðarinnar að utan gangamunnans sé snjó- flóðahætta á þremur stöðum í daln- um milli Kirkjubólshlíðar og Súða- víkurhlíðar. Þar getur hún leynst á enn fleiri stöðum en talið er. Nú skal Ólína Þorvarðardóttir flytja á Alþingi tillögu um að Súðavík- urgöng komist inn á samgöngu- áætlun hið snarasta. Fyrir löngu hefði Ólína átt að fá í lið með sér meira en 13 meðflutningsmenn til að þessi samgöngubót verði að veruleika. Setjum Súðavíkurgöng á teikniborðið. Flýtum fram- kvæmdum við Dýrafjarðargöng. Súðavíkurgöng strax á teikniborðið Eftir Guðmund Karl Jónsson » Á þessari leið féllu 20 snjóflóð í ára- mótaveðrinu. Með veg- göngum sem stytta vegalengdirnar til og frá Ísafirði hefði verið fljótlegra að koma raf- orkumálum Vestfirð- inga í lag. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður. Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Nú geta allir fengið iPad-áskrift

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.