Morgunblaðið - 03.04.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2013
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru margverðlaunuð fyrir
hönnun, myndgæði, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika.
• Buyers Laboratory (BLI) er sjálfstætt starfandi ráðgjafafyrirtæki
á prentmarkaði og viðurkennir árlega þá framleiðendur sem
skarað hafa fram úr. Tólf af fimmtán A3 fjölnotatækjum Konica
Minolta voru útnefndar bestu vélar í sínum flokki árið 2012, fleiri
en frá nokkrum öðrum framleiðanda. Þessi árangur er ástæða
þess að BLI hefur nú veitt Konica Minolta viðurkenninguna
A3 MFP Line of the Year, þriðja árið í röð.
• Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga
og alhliða prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og
prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um
gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á prentlausnum
af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
• BLI A3 MFP Line of the Year 2013
• BLI A3 MFP Line of the Year 2012
• BLI A3 MFP Line of the Year 2011
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
Stuttar fréttir ...
verður upp á í útboðum fjórðungsins,
og má búast við að þeir muni verða at-
kvæðamiklir í útboðum á þeim flokk-
um fram á mitt ár.
Alls er fyrirhugað að gefa út ríkis-
bréf fyrir 90 ma.kr. á yfirstandandi
ári. Sakir þess hversu RIKB13-gjald-
daginn í maí er stór má gera ráð fyrir
að útgáfan á öðrum fjórðungi verði
nær efri mörkum áætlunar Lána-
mála,“ segir orðrétt í Morgunkorni.
Ríkisbréf fyrir
15-30 milljarða kr.
Svipuð útgáfa ríkisbréfa áætluð og á fyrsta fjórðungi
Morgunblaðið/Ómar
Ríkisbréf Líklega verður útgáfa ríkisbréfa á öðrum ársfjórðungi svipuð og
þeim fyrsta, um 30 milljarðar króna, samkvæmt greiningu Íslandsbanka.
Útgáfa ríkisbréfa á öðrum ársfjórð-
ungi verður með sambærilegum
hætti og var á fyrsta fjórðungi ársins,
og gæti vel farið svo að tveir þriðju
hlutar útgáfu ársins líti dagsins ljós
fyrir júnílok, samkvæmt því sem seg-
ir í Morgunkorni greiningar Íslands-
banka í gær.
Þar kemur fram að þetta megi ráða
af ársfjórðungsáætlun Lánamála rík-
isins fyrir annan ársfjórðung. Sam-
kvæmt henni sé áætlað að gefa út rík-
isbréf fyrir 15-30 ma.kr. á tímabilinu.
Þegar hafa verið gefin út ríkisbréf
fyrir 31,3 ma.kr. að nafnverði það sem
af er ári. Þar af voru gefin út óverð-
tryggð ríkisbréf fyrir 30 ma.kr. í al-
mennum útboðum og í gjaldeyrisút-
boðum voru seld verðtryggð
RIKS33-bréf fyrir 1,3 ma.kr.
„Á öðrum ársfjórðungi verður
haldið áfram að byggja upp RIKB15-
flokkinn sem hleypt var af stokkunum
í marsmánuði. Einnig er ráðgert að
gefa út í löngu ríkisbréfaflokkunum
RIKB22 og RIKB31. Er það einnig
framhald á útgáfu fyrsta fjórðungs,
en þá voru gefin út bréf fyrir 9,7
ma.kr. í fyrrnefnda flokknum og fyrir
10,2 ma.kr. í þeim síðarnefnda. Líkt
og fyrri daginn má eiga von á að er-
lendir aðilar verði atkvæðamiklir í
kaupum á stutta flokknum, þ.e.
RIKB15, ef ekki í útboðum þá á eft-
irmarkaði. Erlendir fjárfestar áttu í
febrúarlok þrjá fjórðu hluta af
RIKB13-flokknum sem er á gjald-
daga í maí næstkomandi, en líklega
verður eigendum slíkra bréfa boðið
upp á að skipta þeim fyrir ný ríkisbréf
í útboðum fjórðungsins. Hins vegar
eru lífeyrissjóðir langstærstu eigend-
ur lengri flokkanna tveggja sem boðið
Atvinnuleysi
mælist nú 12% á
evrusvæðinu og
hefur aldrei ver-
ið meira frá
stofnun mynt-
bandalags Evr-
ópu árið 1999.
Það þýðir að yfir
19 milljónir íbúa
í ríkjunum 17 eru
án atvinnu.
Innan Evrópu-
sambandsins
mældist atvinnu-
leysið 10,9% í febrúar en var 10,8%
í janúar. Það þýðir að 26,34 millj-
ónir íbúa ríkjanna 27 eru án at-
vinnu.
Atvinnuleysið var mest á Spáni
eða 26,2% í febrúar og 17,5% í ná-
grannaríkinu Portúgal. Atvinnu-
leysið var minnst í Austurríki, 4,8%
og 5,4% í Þýskalandi.
Atvinnuleysi er gríðarlega mikið
meðal ungs fólks í Evrópu en sam-
kvæmt upplýsingum frá Eurostat,
hagstofu Evrópusambandsins, var
það 23,9% meðal fólks yngri en 25
ára á evrusvæðinu en 23,5% innan
ESB. Á Spáni er atvinnuleysi meðal
ungs fólks 55,7%, 38,2% í Portúgal
og 37,8% á Ítalíu. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Grikklandi voru 58,4%
ungmenna án atvinnu í desember.
Mesta at-
vinnuleysi
frá 1999
Spánn Mótmælt í
Madríd.
Verst á Spáni
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.+/
+01.,
+,+.2+
,+.,
,+.+3,
+0.40/
+-5.+2
+.-+42
+03.0+
+20.5/
+,-.32
+01.//
+,+.01
,+.,/,
,+.,53
+4.53,
+-5.2+
+.-,-3
+02.-/
+20.2
,+1.,--2
+,-.13
+00.+,
+,,.,-
,+.-,3
,+.,//
+4.540
+-5.01
+.-,1-
+02.4+
+20.43
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Útlán þriggja stærstu bankanna -
Landsbankans, Arion banka og Íslands-
banka - til viðskiptavina jukust um
1,4% á síðasta ári. Yfir sama tímabil
hækkaði vísitala neysluverðs um 4,2%
og hagvöxtur á liðnu ári mældist 1,6%
samkvæmt bráðabirgðamælingu Hag-
stofunnar. Hvort sem leiðrétt er fyrir
verðlagsáhrifum eða vexti hagkerfisins
þá drógust útlán bankanna saman að
raunvirði. Þetta kemur fram í greiningu
Arion banka, en samdrátturinn mældist
3% þegar leiðrétt er fyrir verðbólgu.
Þá kemur fram að heildarútlán í árs-
lok 2012 mældust 105% af vergri
landsframleiðslu þess árs. Til sam-
anburðar voru útlán bankanna í lok árs
2011 samtals 108% af landsframleiðslu.
Útlán banka á raunvirði
minnka milli ára