Morgunblaðið - 01.08.2013, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013
Stjórnvöld á Bretlandi hyggjast kanna áhrif svokallaðra
„núll klukkustunda-samninga“ og hversu algengir þeir
eru en meðal þeirra sem vinna samkvæmt slíkum samn-
ingum eru 20 þúsund starfsmenn sportvöruverslanna
Sports Direct og 350 hlutastarfsmenn Buckingham-
hallar.
Nick Clegg aðstoðarforsætisráðherra lýsti í gær yfir
áhyggjum af því óöryggi sem slíkir samningar hefðu í för
með sér, en þeir fela m.a. í sér að viðkomandi starfsmaður
getur ekki gengið að einni einustu vinnustund vísri. Sam-
kvæmt starfssamningi Buckingham-hallar, sem breska
dagblaðið Guardian komst yfir, er starfsfólki í hlutastarfi
enn fremur meinað, samkvæmt samningnum, að vinna
annars staðar án skriflegs leyfis yfirmanns.
Samningunum er ætlað að halda launakostnaði í lág-
marki. Breska hagstofan áætlar að um 200 þúsund ein-
staklingar starfi samkvæmt núll stunda-samningum í
Bretlandi en sérfræðingar segja töluna mun hærri.
Skoða umdeilda samninga
AFP
Samningar 350 sumarstarfsmenn Buckingham-hallar
eru á svokölluðum núll klukkustunda-samningum.
Geta ekki gengið að
einni einustu vinnustund vísri
Almennum borgurum sem létu lífið
eða særðust í stríðinu í Afganistan
fjölgaði um 23% á fyrri hluta þessa
árs, samkvæmt UNAMA, sendi-
nefnd Sameinuðu þjóðanna í landinu.
Þróunina má rekja til árása talíbana
og aukinna átaka milli uppreisnar-
manna og stjórnarhersins.
Alls létu 1.319 almennir borgarar
lífið vegna átaka á tímabilinu frá 1.
janúar til 30. júní og 2.533 slösuðust.
Dauðsföllum og meiðslum fækkaði
í fyrra en viðsnúningurinn í ár vekur
spurningar um getu afganska herafl-
ans til að standa vörð um íbúa þegar
erlendar hersveitir hverfa á braut.
Sameinuðu þjóðirnar sögðu í gær
að uppreisnarmenn hefðu verið vald-
ir að 74% allra dauðsfalla og meiðsla
en talíbanar svöruðu í tilkynningu að
skýrsla UNAMA væri aðeins áróður,
birtur eftir pöntun frá Bandaríkjun-
um.
Dauðsföllum og meiðsl-
um fjölgar í Afganistan
AFP
Dauði A.m.k. 51 lést í tveimur
sprengjuárásum á markað í júlí.
Fæst einnig í veFverslun stoðar
31ár
1982-2013
Trönuhrauni 8 | 220Hafnarfirði | Sími 565 2885
Opið kl. 8 - 16 virka daga | stod@stod.is | www.stod.is
Þar sem
sérFræðingar
aðstoðaÞig
viðvalá
hlíFum
Við styðjum þig
STOÐ
P
O
R
T
hö
nn
un
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Við unnum orrustuna, nú verðum
við að vinna stríðið,“ sagði David
Coombs, verjandi Bradley Mann-
ings, eftir að dómur hafði verið kveð-
inn upp yfir skjólstæðingi hans á
þriðjudag. Manning var sýknaður af
alvarlegasta ákæruliðnum, að hafa
„aðstoðað óvininn“, en fundinn sekur
um tuttugu aðra ákæruliði, þeirra á
meðal njósnir, og bæði lið fögnuðu
sigri.
„Réttlætinu hefur verið fullnægt í
dag. Óbreyttur Manning skaðaði
þjóðaröryggi okkar, brást trausti al-
mennings og hefur nú verið sakfelld-
ur fyrir fjölda alvarlegra glæpa,“
sagði í tilkynningu frá repúblikanan-
um Mike Rogers og demókratanum
C.A. Dutch Ruppersberger í leyni-
þjónustunefnd neðri deildar banda-
ríska þingsins.
Coombs sagði þó of snemmt að
gleðjast þar sem allt snérist þetta um
hvaða refsingu Manning yrði gert að
sæta. Málflutningur vegna ákvörðun-
ar refsingar hófst í gær en gert er ráð
fyrir að um tuttugu vitni verði kölluð
til og að niðurstaða liggi ekki fyrir
fyrr en að nokkrum vikum liðnum.
Dómar afplánaðir samtímis?
Við réttarhöldin yfir Manning, sem
stóðu í um tvo mánuði, meinaði dóm-
arinn, ofurstinn Denise Lind, báðum
hliðum að leggja fram sönnunargögn
varðandi það hvort uppljóstranir her-
mannsins hefðu ógnað þjóðaröryggi.
Þá reisti hún einnig skorður við sönn-
unargögnum varðandi það hvað hon-
um gekk til með afhjúpunum sínum.
Þessi tvö atriði, hvað Manning
gekk til þegar hann lak leynilegum
upplýsingum og hvaða skaða hann
olli, verða í brennidepli við ákvörðun
refsingar, segir Lisa Windsor, ofursti
og fyrrverandi lögfræðiráðgjafi hjá
bandaríska hernum.
„Þú vegur það til að ákveða hvað er
viðeigandi refsing. Mér finnst líklegt
að hann verði í fangelsi í langan
tíma,“ sagði hún í samtali við Associa-
ted Press.
Manning, sem játaði sök í tíu
ákæruliðum, gæti þurft að sæta fang-
elsisrefsingu sem hljóðar upp á mest
136 ár. Lögmenn hans hafa hins veg-
ar farið fram á að tveir ákæruliðir er
varða njósnir og tveir ákæruliðir er
varða þjófnað verði sameinaðir en þá
lækkar hámarksrefsingin í 116 ár.
Ýmsir lögspekingar segja mögu-
legt að dómarinn ákveði að Manning
skuli afplána dóma fyrir áþekk brot á
sama tíma, sem gæti stytt fangelsis-
vist hans umtalsvert. Hins vegar
þykir flestum líklegt að hann muni
verja stórum hluta fullorðinsáranna á
bak við lás og slá.
Það verða áfram lekar
Aðgerðasinnar og mannréttinda-
og blaðamannasamtök hafa lýst yfir
alvarlegum áhyggjum af því fordæmi
sem sett var með sakfellingu Mann-
ing.
Liza Goiten, framkvæmdastjóri
hjá Brennan miðstöðinni fyrir rétt-
læti, sagði í samtali við Guardian að
dómurinn fældi fólk frá því að koma
upp um spillingu og misgjörðir.
Þungur dómur yfir uppljóstraranum
unga myndi hins vegar ekki stöðva
eina tegund leka: leka frá stjórnvöld-
um sjálfum. Þeir myndu hins vegar í
auknum mæli samræmast hagsmun-
um stjórnvalda.
Á yfir höfði sér 136 ára fangelsi
Orrustan unnin en ekki stríðið, segir lögmaður Mannings Réttlætinu fullnægt, segja bandarískir
þingmenn Refsingin ákvörðuð út frá því hvað hermanninum gekk til og þeim skaða sem hann olli
Bradley Manning sakfelldur fyrir njósnir
Var sakfelldur fyrir 20 af 22
ákæruliðum fyrir að leka:
Stuðningsmenn hans
Vörn Manning
Aldur: 25 ára
250.000 sendiráðs-
póstum
(sem voru birtir
að hluta í fimm
stærstu dagblöðum heims)
500.000
hernaðar-
skýrslum
Myndbands-
upptökum
af vafa-
sömum
starfsháttum hersins
í Írak og Afganistan
Gögnum
um einstaklinga
í haldi í Guantanamó
komið áfram
til WikiLeaks,
stjórnað af
Julian
Assange
Á yfir höfði
sér 136 ára
fangelsisdóm
Manning er
„bandarísk hetja“,
handtekin fyrir
að varpa ljósi á
myrkar hliðar
stríðsreksturs
Bandaríkjamanna
Vann við greina
leynilegar upplýsingar
í Írak frá nóvember
2009 þar til hann var
handtekinn í maí 2010
Vildi koma af
stað umræðum
í samfélaginu
Viðurkennir að hafa
vísvitandi sent út umdeildar
myndbandsupptökur af
bandarískum hermönnum
Aðrar ákærur
til FBI af
tölvuþrjótnum
Adrian
Lamo
Athafnir
tilkynntar
DEF
ENC
E
SEC
RET
S
Hermaðurinn bandaríski var fundinn sekur um njósnir á þriðjudag fyrir að hafa lekið leyndarmálum
Bandaríkjastjórnar en var sýknaður af alvarlegustu ákærunni, að hafa „aðstoðað óvininn“
Julian Ass-
ange, stofn-
andi Wiki-
leaks, sagði á
þriðjudag að
með sakfell-
ingu Mannings
hefði hættu-
legt fordæmi
verið sett og
að hann væri dæmi um þjóðarör-
yggisöfgar Obama-stjórnarinnar.
Hann kallaði Manning hetju og
sagðist telja líklegt að hermað-
urinn myndi áfrýja dómnum.
Assange sakaði Obama um
svik vegna meðferðar hans á
uppljóstrurum og benti á að
fórnarlömb glæpa Mannings
væru engin utan særðs stolts
Bandaríkjastjórnar. Hann sagði
árásir stjórnarinnar á Manning
fremur vott um veikleika en
styrk.
Árásir vottur
um veikleika
WIKILEAKS
Julian Assange