Morgunblaðið - 01.08.2013, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013
Sérsmíðaðar baðlausnir
Speglar • Gler • Hert gler
Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar
Sandblástur • Álprófílar
Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað
okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á
baðherbergi.
Við bjóðum upp á
sérsmíðaða spegla,
sturtuklefa og sturtu-skilrúm.
Þá erum við komnir með nýja
útgáfu af ljósaspeglunum
okkar vinsælu.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit yfir
það sem er í boði. Auk þess
bjóðum við alla velkomna
í Vatnagarða 12 þar sem
fagfólk veitir góða þjónustu
og allar þær upplýsingar sem
þarf.
Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nýttu þér samskiptahæfileika þína til
hins ýtrasta. Leitaðu ráða til að verja sjálfan
þig og sinntu aðeins þeim sem hugur þinn
stendur til.
20. apríl - 20. maí
Naut Skilaboð sem þér berast kunna að
reynast áhrifamikil ef þú ákveður að fara eftir
þeim. Reyndu að skapa sjálfum þér olnboga-
rými.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það ber mikið á þér í dag, og þú ert
því líklegt fórnarlamb þeirra sem þurfa að slá
lán eða fá nýja vinnu. Vertu móttækileg(ur)
fyrir nýjum upplifunum og aðferðum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur unnið vel að undanförnu og
átt nú skilið að geta um frjálst höfuð strokið.
Gleymdu samt ekki sjálfum þér því þú átt líka
við þín vandamál að stríða.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér gæti tekist að leysa úr erfiðu fjár-
hagslegu vandamáli í dag. Þér ætti að vera
sama þó að þú þurfi að fara eftir rútínu þessa
dagana.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Færni sem þú tileinkar þér, gerir þér
auðveldara að auka tekjurnar fyrr en síðar.
Gakktu eins og þú vitir hvert þú ert að fara.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú gætir hitt óvenjulegan einstakling í
dag sem hefur allt annan bakgrunn en þú.
Borgaðu þá reikninga sem þú getur og
reyndu að ná yfirsýn yfir það sem upp á vant-
ar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sporðdrekinn myndi gera hvað
sem er fyrir ástvin sinn, vaða eld, glíma við
björn o.fl. Samræður við vini einkennast af
bjartsýni og hressileika.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú munt skilja hvenær þú ert að
gera rétt af viðbrögðunum sem þú færð.
Hafðu ekki áhyggjur af peningaeyðslu, eftir
allt ferðu ekki með auðinn í gröfina.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú getur lært margt um sjálfa/n
þig með því að skoða hvernig þú talar við
aðra og bregst við því sem þeir segja. Leitaðu
leiða til að breyta þessu með hjálp góðra
manna.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Allir hlutir þurfa sinn undirbúning
og því er flas ekki til fagnaðar. Gættu þess
bara að halda utan um þína nánustu eins og
þeir gera um þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Fiskurinn er alltaf að fá hugmyndir um
nýja tekjumöguleika núna. Kannski ertu að
eyða tíma í eitthvað sem þér er sama um.
Pétur Stefánsson skrifarskemmtilegt og fróðlegt bréf á
Leirinn, póstlista hagyrðinga:
„Kristján Árnason smiður og skáld
frá Skálá í Sléttuhlíð var mikill
heimilisvinur frændfólks míns á
Tjörnum í sömu sveit um árabil.
Hann hafði spurnir af vísnahneigð
minni og hafði samband við mig. Fór
vel á með okkur og fljótlega fórum
við að kveðast á og senda hvor öðr-
um vísur og fyrriparta til að botna.
Við vorum oft í símasambandi og
spjölluðum um daginn og veginn.
Hann leit oft við hjá mér þegar hann
var læknaerindum í borginni, fékk
sér kaffibolla og þáði stundum mat-
arboð okkar hjóna. Kristján þótti
mér góður og skemmtilegur maður.
Skrýtið að hann skuli hafa tekið ein-
hverskonar vísnaástfóstri við mig
sem var tiltölulega nýbyrjaður að
feta mig á hagyrðingabrautinni og
kunni lítið og var stirðbusalegur í
öllum yrkingum. Ég stend í þakk-
arskuld við hann fyrir það.“
Pétur tíndi til nokkrar vísur, þar
sem hann orti sjálfur fyrripartinn
og Kristján botnaði. Hér er sýn-
ishorn af þeim:
Nú skal leggja á ljóðagand,
láta hneggja gripinn.
„Hugans eggja brugðinn brand
þó blási hregg í svipinn.“
Skyldi bráðum dagur dóms
dynja á þjáðum heimi,
„og veröld gráðug hraða og hjóms
hverfa smáð úr geimi?“
Flesta daga hug minn hefur
heillað Skagafjörðurinn.
„Græna haga gróður vefur,
glymur bragarómurinn.“
Hans er lundin greypt í grjót,
geðið sundurslitið.
„Hefur undra argan þrjót
óður hundur bitið?“
Hér skal aftur hefja ferð
um hugartún og engi,
„ef að pumpan endurgerð
endist nógu lengi.“
Kristján var þá nýlega kominn úr
hjartaaðgerð.
Það er ljúft að leysa vind
og lina iðra þrautir,
„er geysa undir þandri þind
þyrilstraumar blautir.“
Það er lífsins launabót,
lesa og yrkja kvæði,
„rækta hlyn af hugans rót
og hafa til þess næði.“
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Pétri og Kristjáni,
fyrripörtum og botnum
Í klípu
ÞANGAÐ SEM MAMMA ÞÍN FÓR MEÐ ÞIG.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„DOLLARINN HEFUR VERIÐ AÐ VEIKJAST
ALLA VIKUNA. ERTU MEÐ HAMAR?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sýna áhuga í
verslunarferðunum.
VARÚÐ
H
ÉG ER AÐ FARA Í BARDAGA
VIÐ ATTILA HÚNA OG BLÓÐ-
ÞYRSTU ÓÞOKKANA HANS.
… ÞAÐ MUN FARA Í
SÖGUBÆKURNAR!
EN ÉG HUGSA AÐ ÉG
STOPPI VIÐ Á KNÆPUNNI
OG FÁI MÉR EINN BJÓR
EÐA TVO OG KANNSKI
HARÐSOÐIÐ EGG!
ÞAÐ MUN ALLTAF VAXA AFTUR
ÓDÝR HÁRGREIÐSLUSTOFA
OH, ROSA
FYNDIÐ!Víkverji er ekkert sérlega tækni-fælinn. Hann á til dæmis ráp-
síma, ráptölvu og spjaldtölvu, bíl,
eldavél og sjónvarp. Hann er hins
vegar enn ekki kominn inn í heim
þeirra, sem sækja sér bíómyndir og
sjónvarpsefni út í óáþreifanlega
sýndarheima, þótt það hljómi óneit-
anlega þægilega. Víkverja er farið
að líða eins og þessi staðreynd geri
hann að tímaskekkju. Hann man þá
tíð að svokallaðar vídeóleigur voru á
hverju horni og lifðu iðulega tvö-
földu lífi sem sjoppur líka. Vídeó-
leigunum hefur fækkað smám sam-
an. Ein stóð á horni Bræðraborgar-
stígs og Holtsgötu. Nú er þar íbúð.
Önnur var á Hofsvallagötunni og
hefur ugglaust dregið viðskiptavini
að úr ýmsum hverfum borgarinnar
vegna þess að miðar með réttum
lottótölum höfðu grunsamlega oft
verið keyptir þar. Nú er þar íbúð.
Fyrst hélt Víkverji að þetta væri
vegna þess að keðjur væru að taka
völdin, en nú eru þær líka horfnar.
Víkverji hugðist nýlega fara í eina
slíka, sem kenndi sig við höll. Í
glugganum mátti sjá leifar af göml-
um útstillingum. Reyndar kom í ljós
að henni hafði verið lokað í fyrra
þannig að ekki var Víkverji alveg
með á nótunum.
x x x
Vídeóleigan hefur þó ekki alvegsungið sitt síðasta. Á Dalbraut
er Laugarásvídeó, mögnuð leiga þar
sem finna má allt milli himins og
jarðar. Galdurinn við leiguna er sá
að þar eru ekki bara nýjustu mynd-
irnar beint af vinsældalistunum.
Þar má finna Hitchcock og Kuro-
sawa, Fellini og Woody Allen, Berg-
mann og Fassbinder, gamalt og
nýtt. Þar er harðhausahorn og
gamanmyndarekki, myndir flokk-
aðar eftir leikurum eða leikstjórum.
x x x
Þá mun Aðalvídeóleigan viðKlapparstíg enn vera við góða
heilsu, þótt nokkuð sé síðan Vík-
verji lagði leið sína þangað. Víd-
eóleigur á borð við þessar eru mikið
þing. Þar er hægt að leigja gömul
gullkorn og dusta rykið af minn-
ingum um gott bíó, þótt reyndar
séu sumar myndir þannig að þær
eru best geymdar í minningunni.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Drottinn er ber byrðar vor-
ar dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort.
(Sálmarnir 68:20.)