Morgunblaðið - 01.08.2013, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Garðsláttur
Láttu okkur sjá um
sláttinn í sumar
Hvernig verða söfn fram-tíðarinnar? Þeir semvelt hafa slíku fyrir sér,ættu að líta inn á sýn-
ingu Andreu Maack og Hugins
Þórs Arasonar, „Kaflaskipti“, í A-
sal í Hafnarhússins. Þar er að sjá
tillögu að framtíðarsafni sem við
fyrstu sýn leiðir hugann að tísku-
húsi með sýningarpöllum og fág-
uðum söluvarningi – en óvíst er
hvað þar er til sýnis, nema ef vera
skyldi áhorfandinn sjálfur. Raunar
er sem hlutverki safngestsins og
sýningarhlutarins sé snúið við:
pappaskúlptúrum, sem líkjast öskj-
um eða vönduðum innkaupapokum,
hefur verið stillt upp á bekkjum
líkt og væru þeir áhorfendaskari
sem beinir athyglinni að (flóð-
lýstum) sýningargestinum er hann
gengur inn í salinn.
Hér er snúið skemmtilega upp á
hugmyndir um „upplifun áhorfand-
ans“, hugmyndir sem verið hafa
áberandi á myndlistarvettvangi hin
síðari ár. Í víðara samhengi hefur
sjónum mjög verið beint að safn-
gestinum og hvernig unnt sé að
höfða til hans og gera hann að virk-
um þátttakanda í merkingarsköpun
safna. Innsetningar í listasöfnum
ganga þannig út á að áhorfandinn
skynji sig sem hluta af verkinu. Á
sýningu Andreu og Hugins „horfa“
hlutirnir, eða skúlptúrarnir, til
baka á áhorfandann sem getur þá
speglað sig í verkunum. En hvers
konar spegilmynd er það sem fólg-
in er í áferðarfallegum en stöðl-
uðum og tómum öskjum? Í framtíð-
arsýn Andreu og Hugins eru
áhorfendur framleiddir og listin
virðist hafa sogast algjörlega inn í
innihaldslausan heim tísku, útlits-
hönnunar og lífsstíls, í safni dæg-
urflugna og hverfulleika – eins
mótsagnakennt og það kann nú að
hljóma.
Á hinn bóginn segja sumir að
framtíðarhlutverk safna sé einmitt
fólgið í því að vera fyrst og fremst
varðveislustaðir minninga (fremur
en hluta) þar sem merking er sett
fram á skynrænan hátt. Skynjun
sýningargestsins er vissulega við-
fangsefni listamannanna og þeim
tekst að láta A-salinn vinna með sér
á áhrifaríkan hátt í snjallri og fal-
lega útfærðri innsetningunni. Sval-
ur glæsileiki einkennir yfirbragð
sýningarinnar – og ilmurinn í and-
rúmsloftinu (sem byggist á fram-
leiðslu ilmvatnsfyrirtækja í Frakk-
landi) setur punktinn yfir i-ið og
lokkar „áhorfandann“ inn í skyn-
rænan könnunarleiðangur. Sá leið-
angur snýst um viðbrögð hans;
hughrif og hugrenningatengsl sem
tengjast mismunandi litum og lykt.
Stemningin í salnum er því óræð
og óhlutbundin. Áferð innsetning-
arinnar umlykur sýningargestinn
og smýgur í hans innra rými – og
tóma askjan reynist þá ef til vill
innihaldsríkari en ætla mætti.
Sú sterka tilvísun í abstraktlist,
þá sér í lagi Bauhaus og strangflat-
arstefnu, sem fólgin er í pappa-
skúlptúrunum, styrkir gagnrýni
listamannanna. Skírskotunin tekur
til almenns „útlits“ sem tengist
tímabili eða tegund listar – og hún
er viðeigandi því hún tengist út-
ópískum hugmyndum, stefnuyfir-
lýsingum og framtíðarsýn. Í ögr-
andi safni Andreu og Hugins
virðast stefnurnar einfaldlega hafa
verið innlimaðar í neyslumynstur.
Endurminningarnar sem safn
þeirra kveikir eru óljósar og þoku-
kenndar. Áhrif sýningarinnar eru
því tvíræð og vekja til umhugs-
unar: þar er sem áhorfandinn sé í
aðalhlutverki og ráði ferðinni – eða
hefur hann látið sefjast og látið
teyma sig út í hugsunarlaust sjálfs-
dekur?
Morgunblaðið/Rósa Braga
Kaflaskipti „Hér er snúið skemmtilega upp á hugmyndir um „upplifun áhorfandans“, hugmyndir sem verið hafa áberandi á myndlistarvettvangi hin síðari
ár,“ segir m.a. í gagnrýni um sýninguna Kaflaskipti sem nú stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Hún stendur til 25. ágúst.
Safn hverfulleikans
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús
Kaflaskipti – Andrea Maack og
Huginn Þór Arason
bbbbn
Listahátíð í Reykjavík. Til 25. ágúst
2013. Opið alla daga kl. 10-17 og
fimmtudaga til kl. 20. Aðgangur 1.100
kr. Námsmenn 25 ára og yngri: 550 kr.
Hópar 10+ 650 kr. Frítt fyrir börn yngri
en 18 ára, eldri borgara og öryrkja. Árs-
kort 3.000 kr. Sýningarstjóri: Shauna
Laurel Jones.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Ilmandi Huginn Þór Arason, Andrea Maack og sýningarstjóri Kaflaskipta, Shauna Laurel Jones.
Myndlistarkonan Björg Atla sýnir
verk sín á tveimur stöðum um þess-
ar mundir, annars vegar í sýning-
arrýminu Herbergi í versluninni
Kirsuberjatrénu, Vesturgötu 4, og
hins vegar í Breiðholtskirkju í
Mjódd. Í Kirsuberjatrénu sýnir
Björg 20 akrílmálverk og nefnir
sýninguna Sólarmegin. Í Breið-
holtskirkju sýnir hún sjö akríl-
málverk, í boði Hollvinafélags
kirkjunnar. Sýningunni í Kirsu-
berjatrénu lýkur 5. ágúst en þeirri í
kirkjunni 18. ágúst. Verk Bjargar
eru óhlutbundin og tjá innri sýn
listamannsins í sterkum litatónum.
Abstrakt Hluti málverks eftir Björgu.
Tvær sýningar á
verkum Bjargar