Morgunblaðið - 01.08.2013, Síða 31
Guðrún var í Víðistaðaskóla og
lauk stúdentsprófi frá Flensborg.
Síðar hóf hún nám í stjórn-
málafræði við HÍ og lauk þaðan
BA-prófi 1990. Þá hefur hún sótt
námskeið á MA-stigi í sálgæslu
við guðfræði- og trúarbragða-
fræðideild HÍ.
Guðrún var blaðamaður við DV,
Alþýðublaðið og Helgarpóstinn
1986-93, var aðstoðarritstjóri
Pressunnar 1993-96 og ritstjóri
þar skamma hríð 1996, og ritstjóri
Mannlífs, ásamt Hrafni Jökulssyni
1996-98. Hún var framkvæmda-
stjóri Hafnarfjarðarleikhússins
2000-2003, framkvæmdastjóri
Sellófan sýningar Bjarkar Jak-
obsdóttur og kynningarstjóri
Listahátíðar í Reykjavík 2003-
2009. Hún var síðan sjálfstætt
starfandi blaðamaður, einkum á
sviði heilsumála og hélt úti síðu
um þau málefni.
Guðrún er ein af stofnendum
Rótarinnar, félags um málefni
kvenna sem hafa verið að kljást
við áfengis- og fíkniefnavanda sem
og meðvirkni, og er núverandi
formaður félagsins. Félagið var
stofnað upp úr Kvenfélagi SÁÁ,
sem lagt var niður fyrr á þessu
ári.
Guðrún er nú starfskona ný-
stofnaðs Systrasamlags, sem er
kaffihús og heilsubúð á Seltjarn-
arnesi – heilsuhof – í eigu Guð-
rúnar og Jóhönnu, systur hennar.
Með áhuga á lífi og tilveru
Ekki verður sagt að Guðrún
hafi ekki áhuga á lífinu og tilver-
unni: „Ég hef áhuga á marg-
breytileiki manneskjunnar, sál-
gæslu, trúarbrögðum, heimspeki,
vináttu, hálendisgöngum, ferða-
lögum. jóga, Ayurveda-fræðum,
og hugleiðslu. Svo finnst mér
dásamlegt að hlaupa og hreinlega
elska að gera tilraunir í eldhúsinu
heima hjá mér og í Systrasamlag-
inu. Mér þykir líka notalegt að
leggjast í góðar bókmenntir og
hlusta á tónlist. En ætli frábærar
kvikmyndir nái mér ekki í hæstu
hæðir. Ég var líka lengi fréttafí-
kill en það er nú að mestu runnið
af mér. Ég kýs heldur að skoða
stóru myndina og það smáa í öðru
samhengi.“
Vegna anna við stofnun Systra-
samlagsins komst Guðrún ekki í
árlega hálendisgöngu sína að
þessu sinni en ætlar að bæta sér
það upp með því að fara til Lond-
on um verslunarmannahelgina.
Fjölskylda
Börn Guðrúnar: Elísabet Elma
Líndal Guðrúnardóttir, f. 16.6.
1989, nemi í kvikmynda- og kynja-
fræði við HÍ, nýflutt í móðurhús
eftir skiptinám í Bretlandi; óskírð-
ur Björns- og Guðrúnarsonur, f.
15.5. 1986, d. 15.5. 1986.
Systkini Guðrúnar eru Jóhanna
Kristjánsdóttir, f. 28.10. 1967,
annar eigandi Systrasamlagsins,
búsett í Reykjavík; Valur Krist-
jánsson, f. 18.4. 1973, umbrots-
maður, búsettur á Seltjarnarnesi;
Guðmundur Gauti Kristjánsson, f.
8.3. 1980, endurskoðandi, búsettur
í Reykjavík.
Foreldrar Guðrúnar eru Krist-
ján Jóhannsson, f. 18.5. 1942, út-
gefandi búsettur á Seltjarnarnesi,
og Elísabet Stefánsdóttir, f. 20.11.
1943, hjúkrunarfræðingur, búsett
á Seltjarnarnesi.
Úr frændgarði Guðrúnar Kristjánsdóttur
Guðrún
Kristjánsdóttir
Kristín Gísladóttir
húsfreyja í Móabúð
Kristján Jónsson
útvegsb. í Móabúð í Eyrarsveit
Guðrún Líndal Kristjánsdóttir
húsfr. á Seltjarnarnesi
Viggó Stefán Guðmundsson
skipstjóri á Seltjarnarnesi
Elísabet Stefánsdóttir
hjukrunarfræðingur á Seltjarnarnesi
Elísabet Stefánsdóttir
húsfr. í Hrólfsskála
Elín Guðfinna Sigurðardóttir
húsfr. á Ísafirði
Kristján Jóhannesson
sjóm. á Ísafirði
Kristján Jóhannsson
útgefandi á Seltjarnarnesi
Sigríður Guðmundsdóttir
húsfr. á Ísafirði
Jóhann E. Þorsteinsson
söðlasm., kaupm. og
útgerðarm. á Ísafirði
Jóhanna R. Kristjánsdóttir
húsfr. á Ísafirði
Elín Jóhannsd.
sjúkraliði í Dk.
Jóhann Guðjónsson
læknir í Noregi
Jóhann Jóhannsson
forstj. á Ísaf. og Rvík
Sigurður J. Jóhannsson
arkitekt
Kristjana Stefánsdóttir
leikskólastj. á Seltjarnarnesi
dr. Berglind
Guðmundsd.
yfirsálfr. á LHS
Guðrún Pétursdóttir
húsfr. í Görðum við
Ægisíðu í Rvík
Sigríður Sigurðardóttir
húsfr. í Görðum
Ólöf Kristín Sigurðardóttir
listfr. og forstöðum.
Hafnarborgar
Guðmundur Pétursson
útvegsb. í Hrólfsskála,
af Engeyjarætt
Guðríður
Kristjánsdóttir
húsfr. í Rvík
Aðalsteinn Pétursson
læknir
Sigurður Pétursson
læknir
Sigrún Pétursdóttir
ljósmóðir
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013
BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18
EASY
Hönnun Jahn Aamodt
Stóll kr. 206.600
Stóll + skemill kr. 264.300
Stefán Jóhann Stefánsson,skólameistari Menntaskólansá Akureyri, fæddist á Heiði í
Gönguskörðum hinn 1.8. 1863. For-
eldrar hans voru Stefán Stefánsson,
bóndi á Heiði, og k.h., Guðrún Sig-
urðardóttir húsfreyja, frá Heiði.
Systir Stefáns var Þorbjörg, móð-
ir Jóns Björnssonar, skólastjóra og
heiðursborgara Sauðárkróks, föður
Jóhannesar Geirs myndlistarmanns,
Þorbjargar skólastjóra og Ólínu
Ragnheiðar, móður Óskars Magnús-
sonar, útgefanda Morgunblaðsins.
Þorbjörg var auk þess móðir Har-
aldar Björnssonar leikara, föður
Jóns arkitekts og Stefáns yfirlækn-
is. Bróðir Stefáns var Sigurður, pr.
og alþm. í Vigur, afi Sigurðar
Bjarnasonar, fyrrv. alþm., ritstjóra
Morgunblaðsins og sendiherra, og
Sigurlaugar Bjarnadóttur, fyrrv.
alþm., móður Bjargar Thorarensen
lagaprófessors.
Börn Stefáns og k.h., Steinunnar
Frímannsdóttur frá Helgavatni,
voru Valtýr, ritstjóri Morgunblaðs-
ins, faðir Helgu leikkonu og Huldu,
fyrrv. blaðakonu, og Hulda skóla-
stjóri, móðir Guðrúnar Jónsdóttur
arkitekts.
Stefán lauk stúdentsprófi í
Reykjavík 1884 og las náttúrufræði
við Háskólann í Kaupmannahöfn
1884-87.
Stefán var kennari við Gagn-
fræðaskólann á Möðruvöllum og síð-
an Gagnfræðaskólann á Akureyri
1887-1908 og skólameistari Mennta-
skólans frá 1908.
Stefan var alþm. Skagfirðinga
1900-1908 og síðan konungkjörinn
alþm. 1908-1916. Hann sat í dönsk-
íslensku milliþinganefndinni um
sambandsmálið 1907 sem leiddi til
„Uppkastsins“ fræga og sögulegra
alþingiskosninga 1908, og var amt-
ráðsmaður og bæjarfulltrúi á Ak-
ureyri 1906-1918.
Stefán ferðaðist mikið um landið
við gróðurrannsóknir. Hann sat í
stjórn ýmissa fyrirtækja og var að-
alhvatamaður að stofnun Náttúru-
fræðifélags Íslands og Náttúru-
gripasafnsins.
Stefán lést 20.1. 1921.
Merkir Íslendingar
Stefán
Stefánsson
90 ára
Kristín Axelsdóttir
Salóme Guðmundsdóttir
Stella Sigurgeirsdóttir
Unnur Marinósdóttir
85 ára
Helga Guðjónsdóttir
Kolbeinn Helgason
80 ára
Arnhildur Guðmundsdóttir
Ásta Sigurðardóttir
Halldór Helgason
Magnús Sigurðsson
Þorgeir Þorgeirsson
Þóra Eiríksdóttir
75 ára
Ásta Erla Ósk Einarsdóttir
Birgir Jónsson
70 ára
Anna Þóra Sigurþórsdóttir
Eggert Óskarsson
Elín Gréta Kortsdóttir
Guðberg Guðmundsson
Guðný Þórarinsdóttir
Guðrún Úlfhildur
Örnólfsdóttir
Hermann Tönsberg
Margrét Kristine Toft
Páll Þór Imsland
Ögn Guðmundsdóttir
60 ára
Ársæll Daníelsson
Benedikt Einar
Gunnarsson
Halldór K. Ásgeirsson
Jón Baldvin Hannesson
Jón Ingi Young
Kolbeinn Bjarnason
Magnús Björn
Brynjólfsson
Maren Aðalbjörg
Jakobsdóttir
Ólafía Aðalsteinsdóttir
Sigrún Kristinsdóttir
50 ára
Anna Sigríður Helgadóttir
Ágúst Sindri Karlsson
Bergdís Linda
Kjartansdóttir
Birgitta Bjargmundsdóttir
Bryndís Pétursdóttir
Brynja Dögg Birgisdóttir
Gróa Guðmundsdóttir
Guðjón G. Engilbertsson
Guðjón H. Arngrímsson
Hjalti Bjarnfinnsson
Jón Lárus Guðmundsson
Kristín Gunnarsdóttir
Ólafur Karel Jónsson
Pálína Kristín Garðarsdóttir
Sigurður Sigurðsson
Þorsteinn Bergþór
Sveinsson
40 ára
Anna Lilja Valsdóttir
Arndís Dögg Arnardóttir
Ágúst Þráinsson
Guðmunda
Kristjánsdóttir
Guðmundur Liljar Pálsson
Halla Svanhvít
Heimisdóttir
Harpa Gunnlaugsdóttir
Houria Yahyaoui
Jakob Benedikt Ólafsson
Jóhanna Kristín
Jóhannsdóttir
Páll Birkir Wolfram
Raimonds Smits
Rakel Rúriksdóttir
Rúnar Sveinsson
Sarah Lillan During
Tina Petersen
30 ára
Eggert Björnsson
Ewa Elzbieta Szczygiel
Hassan Haidari
Hrönn Guðmundsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Vilhjálmur ólst
upp á Seltjarnarnesi og er
sölustjóri hjá Marvís.
Maki: Anna María
Ágústsdóttir, f. 1972, hjá
Lífeyrissjóði verslunarm.
Dætur: Helen María, f.
2003; Lilja María, f. 2007,
og Bryndís María, f.
2009.
Foreldrar: Guðfinna Her-
mannsdóttir og Ingiberg-
ur Vilhjálmsson.
Fósturfaðir: Grímur Ing-
ólfsson.
Vilhjálmur Árni
Ingibergsson
40 ára Sólborg fæddist á
Siglufirði, ólst upp í Hafn-
arfirði en er húsfreyja í
Garðinum.
Maki: Kjartan Þorvalds-
son, f. 1973, háskólanemi.
Börn: Heiðrún Hanna, f.
2010, og Úlfur Orri, f.
2011.
Foreldrar: Heiðrún Hulda
Guðmundsdóttir, f. 1951,
húsfreyja í Hafnarfirði, og
Björn Matthíasson (stjúp-
faðir) 1939, hagfræð-
ingur.
Sólborg Gígja
Guðmundsdóttir
40 ára Vernharð lauk
prófi sem löggiltur fast-
eignasali, keppti í júdó á
Ólympíuleikunum 1996 og
er fasteignasali hjá Re-
max.
Maki: Magga S. Gísladótt-
ir, f. 1975, fjármálastjóri.
Börn: Rannveig Íva, f.
1997; Kristján Ríkarður, f.
1998, og Gísli Goði, f.
2009.
Foreldrar: Þorleifur Frið-
riksson sagnfr., og Regína
Vernharðsdóttir kennari.
Vernharð S.
Þorleifsson