Morgunblaðið - 01.08.2013, Síða 40
FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 213. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Maður er var bjargað úr bílskúr látinn
2. Nauðgað í fjóra daga samfleytt
3. Tveir karlar nauðguðu 12 ára stúlku
4. Þetta gerist ef þú sofnar með málningu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Stiklu úr kvikmynd leikarans og
leikstjórans Bens Stiller, The Secret
Life of Walter Mitty, má nú finna á
myndbandavefnum YouTube. Lag
hljómsveitarinnar Of Monsters and
Men, „Dirty Paws“, hljómar undir nær
allri stiklunni. Myndin var tekin upp
að stórum hluta hér á landi í fyrra og
má sjá marga kunnuglega staði og ís-
lenskt landslag í stiklunni. Stykkis-
hólmur og Borgarnes voru meðal
tökustaða. Af stiklunni að dæma
verður myndin bæði ævintýraleg og
spaugileg og verður hún frumsýnd í
Bandaríkjunum um jólin. Í henni segir
af Walter nokkrum Mitty sem leggur í
mikla ævintýraferð í leit að týndri
ljósmyndafilmu. Stiller fer með hlut-
verk Mittys, auk þess að leikstýra
myndinni, og í öðrum helstu hlut-
verkum eru Kristen Wiig, Sean Penn
og Adam Scott. Ólafur Darri Ólafsson
fer einnig með hlutverk í myndinni,
hlutverk flugmanns.
Lag OMAM hljómar í
stiklu myndar Stillers
Nýjasta kvikmynd Baltasars Kor-
máks, 2 Guns, var frumsýnd sl.
mánudag í Bandaríkjunum og hefur
hún verið gagnrýnd í nokkrum fjöl-
miðlum vestra. Myndin leggst mis-
jafnlega í gagnrýnendur. Scott
Foundas hjá Variety er hrifinn líkt
og kollegi hans John DeFore hjá
Hollywood Reporter.
Öllu neikvæðari eru
hins vegar gagnrýn-
endur Screen Inter-
national og Time
Out New York,
þeir Tim Grier-
son og Keith
Uhlich.
2 Guns Baltasars hlýt-
ur bæði lof og last
Á föstudag Norðlæg átt, 3-8 m/s, en 8-13 austast. Skýjað en úr-
komulítið nyrðra og eystra, en bjartviðri sunnan- og vestanlands.
Hvessir heldur og fer að rigna eystra með kvöldinu. Hiti 7-17 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan 8-13 m/s og skýjað á norð-
austurhorninu, en annars hægari og víða bjart veður. Hiti 6 til 16
stig, svalast norðaustantil.
VEÐUR
Fjölnir stimplaði sig ræki-
lega inn í toppbaráttuna í 1.
deild karla í fótbolta í gær-
kvöldi með sigri á Víkingum
í Víkinni, 2:0. Á sama tíma
unnu Haukar sigur gegn
Selfossi, 2:1, og skelltu sér
á toppinn.
Baráttan um sæti í efstu
deild hefur sjaldan verið
meiri en sjö lið berjast nú
um tvö laus sæti í deild
þeirra bestu og skilja fjögur
stig þau að. » 3
Sjö liða toppbar-
átta í 1. deildinni
Davíð Þór Viðarsson, fyrrum fyrirliði
FH, er genginn aftur í raðir félagsins.
Davíð tjaldar ekki til einnar nætur því
hann samdi árið 2015 við Íslands-
meistarana. Hinum umtal-
aða félagaskiptaglugga
var lokað á miðnætti
og geta íslensk lið því
ekki lengur bætt við
sig mönnum á þessu
tímabili. Dagurinn
var nokkuð fjör-
ugur og Morg-
unblaðið fer
yfir það
helsta í
íþrótta-
blaðinu í dag.
»1
Fjörugur félagaskipta-
dagur hérlendis í gær
„Við erum búin að leggja inn op-
inberlega kvörtun og sendum inn
bréf því FINA hefði auðvitað átt að
gera eitthvað. Ég þurfti því bara að
bíða og vonast til að einhver önnur
myndi forfallast; það gerðist ekki og
finnska stelpan fór áfram á minn
kostnað,“ sagði Ingibjörg Kristín
Jónsdóttir sem var illa svikin af
mótshöldurunum á HM í sundi. »2
Var svikin um umsund á
HM í sundi í Barcelona
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Hin 69 ára gamla Gyða Sigurðar-
dóttir hugsaði sig ekki tvisvar um
þegar tíkin hennar, Ísól Rós Matta-
dóttir, féll fram af bryggjunni á Eyr-
arbakka og henti sér umhugsunar-
laust á eftir henni. Eftir barning í
sjónum náði hún til hundsins og
komst í land. „Þetta gerðist þegar
við systir mín fórum í göngutúr með
þrjá hunda síðasta laugardag. Þegar
við komum á bryggjuna leit ég af
hundinum en heyrði skvamp, eins og
þegar eitthvað dettur í vatn. Þegar
ég leit við var litli chihuahua-hund-
urinn minn búinn að steypa sér fram
af bryggjunni. Ég hugsaði ekki neitt
heldur reytti það sem var lauslegt af
mér, nema gleraugun sem ég mun
aldrei sjá aftur, og henti mér út í,“
segir Gyða.
Beit á jaxlinn og komst í land
Þegar í kaldan sjóinn var komið
veitti Gyða því athygli að Ísól hafði
rekið undir bryggjuna og náði hún
ekki til hennar þar sem of þröngt
var á milli bryggjustöplanna. „Ég
kallaði á hana og hún náði að synda
til mín og þegar við náðum saman
„klíndi“ hún sig við hálsinn á mér og
ríghélt,“ segir Gyða. Aðspurð segist
hún ekki hafa verið skelkuð. „Ég er
svo til alin upp í sundlaug á Ísafirði
og vel synd. En þetta var mjög erfitt
því hún var á hálsinum á mér.“
Gyða fikraði sig á milli staura í átt
að landi þar sem grynningar tóku
við. „Þegar ég var komin hálfa leið
var ég ekki viss um að ég myndi
hafa þetta, en ég beit á jaxlinn,“
segir Gyða. Hún segir að hún
hafi ekki hugmynd um hversu
lengi hún var í sjónum. „Það var
maður uppi á bryggjunni sem var
að stappa í mig stálinu og
hann segir við mig: „Ertu
synd? Og ég svara: „Er
ég synd?! Pabbi minn
var nú ólympíufari í sundi og ég ólst
upp í sundlauginni á Ísafirði,““ segir
Gyða hlæjandi og áttar sig á því nú
að þessar upplýsingar voru kannski
óþarfar í þeim aðstæðum sem þarna
voru.
Hún segir að hún hafi upplifað
bryggjuna sem þrisvar til fjórum
sinnum lengri en hún var í raun og
veru. Á endanum náði hún þó fót-
festu og kom sér í land blóðug á
hálsi, handlegg og fótum. Aðspurð
hvort henni hafi ekki verið kalt segir
hún svo ekki vera. „Guði sé lof þá
fannst mér sjórinn volgur,“ segir
Gyða. Hún segir að hún sé eilítið
andstutt eftir þessa lífsreynslu en að
öðru leyti hafi henni ekki orðið
meint af. Ísól fékk hita um nóttina
en jafnaði sig fljótt.
Henti sér á eftir hundinum
Gyða Sigurðar-
dóttir bjargaði
smáhundi úr sjó
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sáttar saman Gyða Sigurðardóttir er hér ásamt chihuahua-hundinum Ísól. Hvorugri varð meint af volkinu í sjón-
um. Gyða nýtti sér sundreynslu sína frá Ísafirði og beit á jaxlinn og komst skrámug í land eftir nokkurn barning.
Faðir Gyðu er sundmaðurinn Sig-
urður Jónsson sem synti undir
merkjum KR og var fyrstur Íslend-
inga til þess að synda í úrslit-
um á alþjóðlegu sundmóti á
Evrópumótinu í Mónakó árið
1947. Þá keppti hann einnig á
sumarólympíuleikunum í
London árið 1948. Sig-
urður setti sitt fyrsta
Íslandsmet árið 1940
og háði um árabil
mikla keppni við nafna sinn Sigurð
Þór Jónsson Þingeying.
Í viðtali við Morgunblaðið 24.
janúar sl. segir hinn níræði Sig-
urður að hann sé hættur að synda
vegna veiki sem hrjáir hann: „Fyrir
nokkrum árum spurði heimilis-
læknirinn minn hvort ég synti ekki
enn. „Nei,“ svaraði ég. „Ég er með
veiki.“ Þá spurði hann grafalvar-
legur hvaða veiki það væri. „Það er
leti,“ svaraði Sigurður.
Faðir Gyðu sundgarpur mikill
SIGURÐUR JÓNSSON KOMST FYRSTUR ÍSLENDINGA Í ÚRSLIT
Sigurður
Jónsson