Morgunblaðið - 02.08.2013, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.08.2013, Blaðsíða 7
Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is Rannsóknarskipið Árni Friðriksson RE er nú í Grænlandshafi við rannsóknir á útbreiðslu af helstu uppsjávartegundum og áhrifum þeirra á umhverfi sitt. Norðmenn og Færeyingar taka einnig þátt í verkefninu, en skip á þeirra vegum hafa kannað hafsvæðið austur af Íslandi; Nor- egshafið sjálft og hafið í kringum Færeyjar. Hluti af alþjóðlegu rannsóknarverkefni „Þetta er hluti af alþjóðlegu rannsóknarverk- efni á útbreiðslu uppsjávartegunda, það er að segja makríls, kolmunna og síldar. Við erum að bergmálsmæla kolmunna og síld en við mælum makrílinn með togum. Það er erfitt að bergmáls- mæla hann vegna þess hversu veikt endurvarpið er af honum,“ segir Sveinn Sveinbjörnsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun. Mak- ríll er án sundmaga, en stærsta endurvarpið sem mælist í bergmálsmælingunum er af loftinu í sundmaga fiska. „Við mælum makrílinn með svokallaðri trollaðferð sem er búið að staðla á milli þjóðanna. Við erum með samskonar veið- arfæri, togum á alveg sama hátt, togum jafn lengi og notum sömu víralengdir,“ segir Sveinn. Hann segir að makrílstofninn hafi verið sterk- ur á undanförnum árum og að stofnstærðar- mæling frá síðasta ári gefi til kynna að stofninn færi stækkandi. Niðurstöður rannsóknarinnar munu liggja fyrir í lok ágústmánaðar og þá munu þjóðirnar halda sameiginlegan fund og fara yfir niðurstöðurnar, en rannsóknin hefur verið árleg hjá Hafrannsóknastofnun frá árinu 2009. Makríllinn hefur áhrif á dýralíf „Makríllinn kemur hérna inn í lögsögu okkar í maí og hann er að miklu leyti farinn úr henni aft- ur í seinnihluta september. Hann er í mikilli beinni samkeppni við síld og kolmunna um átu, en yfir 90% af fæðu hans eru sviflæg krabba- dýr.“ Hann segir makrílinn þó einnig keppa við fugla um fæðu, en hann étur sandsíli og eru ýms- ar vísbendingar þess að það hafi áhrif á fuglalíf, til dæmis á lundastofninn í Vestmannaeyjum, en þó hefur engin rannsókn verið unnin á því. Norðmenn hafa lokið sínum hluta Á vef Hafrannsóknastofnunar Noregs kemur fram að Norðmenn luku fyrr í vikunni við sinn hluta rannsóknarinnar á útbreiðslu makríls. Þar segir að stofninn hafi styrkst á undanförnum ár- um og 2010 árgangurinn sé sterkur. Einnig að um það bil 10% af makrílnum hafi ekki hrygnt ennþá og að hugsanlega muni stærri hluti mak- ríls halda sig á norðlægari slóðum í haust, í stað þess að ganga suður á bóginn. Endanleg niðurstaða þessa sameiginlega verkefnis á að liggja fyrir í lok mánaðarins. Sterkur makrílstofn á norðurslóðum  Hafði minnkað samkvæmt síðustu úttekt en mælist nú sterkur  Í lögsögu Íslands frá maí og fram í lok september  Endanlegar niðurstöður koma í lok mánaðar  Norðmenn staðfesta styrk stofnsins Morgunblaðið/Eggert Árni Friðriksson RE Grænlendingar hafa leitt skipið síðustu fjóra sólarhringa, en siglt er um Grænlandshaf við rannsóknirnar. Gert er ráð fyrir því að niðurstöður birtist í lok ágúst. FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.