Morgunblaðið - 02.08.2013, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013
» Heimildarmynd umrússnesku kvenna-
pönksveitina Pussy
Riot, Pussy Riot: A
Punk Prayer, var frum-
sýnd í Bíó Paradís í
gærkvöldi. Fyrir frum-
sýningu tróð kvenna-
pönkhljómsveitin Við-
urstyggð upp og kom
blóðinu í frumsýning-
argestum á hreyfingu.
Boðið var upp á léttar
veitingar og ekki annað
að sjá en að gestir nytu
flutnings Viðurstyggðar
til hins ýtrasta.
Kvennapönksveit lék fyrir frumsýningargesti í Bíó Paradís í gærkvöldi
Grímur Meðlimir kvennapönksveitarinnar Viðurstyggðar spiluðu með grímur fyrir andlitum sínum.
Vinkonur þrjár Helga Lind Mar, María Rut Kristinsdóttir og Brynja Huld
Óskarsdóttir voru ánægðar með Viðurstyggð og brostu sínu blíðasta.
Stemning Bíógestir hlýddu á Hljómsveitina Viðurstyggð og nutu tónanna. Bíógestir Magnús Karl Magnússon og Ellý Katrín Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið/Kristinn
Bíó Paradís sýnir í kvöld 20 heim-
ildarmyndina Charles Bradley: So-
ul of America, í samstarfi við
plötubúðina Lucky Records. Í
myndinni er fjallað um sálar-
söngvarann Charles Bradley og
fylgst með útgáfu fyrstu plötu
hans, No Time for Dreaming.
Charles Bradley var 62 ára þegar
hann ákvað að hefja sólóferil en
fram að því hafði hann unnið við
að flytja lög eftir sálartónlist-
armanninn James Brown. Heim-
ildarmyndin var frumsýnd á hátíð-
inni South By Southwest í Austin í
Texas fyrr á þessu ári og fór það-
an á helstu heimildarmyndahátíðir
heims og alþjóðlegar kvik-
myndahátíðir.
Að lokinni sýningu á myndinni
verður blásið til heljarinnar sálar-
tónlistarteiti í anddyri kvikmynda-
hússins. Í henni munu plötusnúðar
þeyta sálarskífum og plötur Brad-
ley verða auk þess til sölu. Plöt-
urnar voru gefnar út af Daptone
Records og íslenska útgáfufyr-
irtækið Record Records er dreif-
ingaraðili platna þeirrar útgáfu á
Íslandi. Myndin um Bradley verð-
ur aðeins sýnd einu sinni. Frekari
fróðleik um myndina og stiklur má
finna á vefsíðunni charles-
bradleyfilm.com.
Sál Charles Bradley hafði það að lifibrauði að flytja smelli James Brown.
Heimildarmynd og sálartónlistarteiti