Morgunblaðið - 02.08.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.08.2013, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Færeyingarstanda núframmi fyrir yfirvofandi atlögu Evrópu- sambandsins að efnahag eyjanna og virðist fátt geta hindrað að refsiaðgerðirnar svoköll- uðu verði að veruleika. Evr- ópusambandið sakar Fær- eyinga um að ætla sér um of úr síldarstofninum og hyggst bregðast við ágrein- ingnum með löndunarbanni, sem hefði þungbærar afleið- ingar fyrir eyjarnar. Óhætt er að segja að þessar ásakanir um ofveið- ar, hvort sem er úr til- teknum stofnum eða al- mennt, koma úr hörðustu átt. Evrópusambandið hefur haldið þannig á sínum sjáv- arútvegi að fiskistofnar inn- an lögsögu þess eru almennt ofveiddir. Ekki síst þess vegna sækir sambandið af hörku á önnur mið og hefur uppi óbilgjarnar kröfur um veiðar úr flökkustofnum eins og Íslendingar hafa fengið að kynnast. Lítill sómi er að því fyrir Evrópusambandið að ganga fram með þessum hætti gegn lítilli nágrannaþjóð sem á allt undir því að geta stundað fisk- veiðar í friði og selt aflann án hindrana. Fyrir Evrópusambands- ríkið Danmörku hlýtur þetta að vera alveg ein- staklega ömurleg staða enda verður vart hjá því komist að þessi aðför skaði samband Færeyja og Dan- merkur. Víst er að Danir þurfa að koma fram með allt öðrum hætti hér eftir en hingað til í þessu máli vilji þeir koma í veg fyrir að það verði vatn á myllu sjálf- stæðissinna í Færeyjum. Færeyingar eru nánasta frænd- og vinaþjóð Íslend- inga og með þjóðunum er og á að vera eindrægni og sam- staða. Íslensk stjórnvöld hafa þegar lýst andstöðu sinni við þessar aðgerðir Evrópusambandsins gegn Færeyjum og mikilvægt er að þau mótmæli verði ein- dregin, ótvíræð og ákveðin. Færeyingar eiga ekkert minna skilið. Lítill sómi er fyrir Evrópusambandið að atlögunni að Færeyjum} Sýnum ótvíræða sam- stöðu með Færeyingum Mesta ferða-helgi lands- manna á árinu stendur nú fyrir dyrum. Fjöldi Ís- lendinga, einkum þeir í yngri kantinum, fara nú á hinar ýmsu útihátíðir og hyggjast skemmta sér ær- lega, eins og vera ber. Við tilefni sem þessi er ávallt ástæða til að minnast þess að furðustutt getur oft verið milli hláturs og gráts og líf geta breyst eða eyðilagst á einu vanhugsuðu augnabliki. Á það bæði við um ferðalagið að heiman og aftur heim og svo skemmtunina sjálfa. Á liðnum árum hefur fórn- arkostnaðurinn við útihátíð- irnar verið of hár og rík ástæða til að leitast við að minnka hann eins og unnt er. Þegar fjöldi fólks er á ferð- inni aukast líkurnar á um- ferðarslysum talsvert. Mikið starf hefur verið unnið hér- lendis til þess að bæta um- ferðaröryggi Íslendinga og draga úr banaslysum. Hvert mannslíf sem glatast í um- ferðinni er einu mannslífi of mikið. Þess vegna er ástæða til að hvetja til þess að fólk sýni aðgát í umferðinni og snúi heim, heilu og höldnu. Yfir versl- unarmannahelginni hefur jafnframt lengi grúft skuggi alvarlegra kynferðisafbrota og annarra ofbeldisbrota. All- ir þurfa að leggjast á eitt um það að útrýma þessum vá- gesti af ferðahelginni. Það er ekki eðlilegt ástand að á hverju ári berist fréttir af slíku ofbeldi á útihátíðum og skemmtunum landsmanna. Það er í raun fullkomlega óá- sættanlegt og ef allir standa saman, jafnt mótshaldarar, þátttakendur og yfirvöld, ætti að vera hægt að koma í veg fyrir ofbeldið og annað sem varpar skugga á annars góða skemmtun. Það er því verðugt mark- mið þeirra sem hyggjast gera sér glaðan dag um helgina að spilla ekki gleðinni, hvorki fyrir sjálfum sér né öðrum. Ein vísasta leiðin til þess er að fara að öllu með gát, ekki síst ferðinni um gleðinnar dyr. Förum varlega um helgina og höfum gleðina í fyrirrúmi} Spillum ekki gleðinni D anir eru óneitanlega í talsvert snúinni stöðu um þessar mundir vegna þeirra fyrirætlana Evr- ópusambandsins að beita Fær- eyinga refsiaðgerðum vegna síldar- og makrílveiða þeirra í eigin efnahags- lögsögu. Danmörk er hluti af sambandinu sem kunnugt er en það á hins vegar ekki við um Færeyjar sem eftir sem áður eru hluti af danska konungsríkinu. Þegar Danir gengu til liðs við forvera Evrópusambandsins í byrjun 8. áratugar síðustu aldar kusu Færeyingar að standa áfram utan þess en þeir fengu heima- stjórn skömmu eftir lok síðari heimsstyrjald- arinnar. Dönsk stjórnvöld hafa reynt að malda í mó- inn vegna fyrirhugaðra refsiaðgerða Evrópu- sambandsins gegn Færeyingum en ekki orðið ágengt í þeim efnum. Þeir hafa meðal annars greitt at- kvæði gegn aðgerðunum á vettvangi sambandsins en orðið undir. Komi refsiaðgerðirnar til framkvæmda af hálfu Evrópusambandsins verða Danir fyrir vikið að framfylgja þeim líkt og önnur ríki sambandsins sem væntanlega mun fela í sér löndunarbann á færeyska síld og makríl. Mjög mikið af þeim afla Færeyinga mun hafa farið í gegnum danskar hafnir til þessa. Staða Dana er þannig talsvert snúin eins og áður segir svo ekki sé fastar að orði kveðið. Þeir vilja ekki beita Færeyinga refsiaðgerðum, þeir hafa reynt að koma í veg fyrir að það verði gert en neyðast engu að síður til þess að taka þátt í aðgerðunum ef af þeim verður. Vegna þess að þeir eru hluti af Evrópusam- bandinu og eru bundnir af ákvörðunum þess. Danir eru engu að síður með sæti við borðið þar sem ákvörðunin var tekin líkt og ýmsar aðrar ákvarðanir á vettvangi sambandsins. En það dugði þeim þó skammt. Líkt og Færeyjar stendur Ísland utan Evr- ópusambandsins. Fyrir vikið taka íslenzkir ráðamenn ákvarðanir um hérlend sjávar- útvegsmál í krafti fullveldis landsins og hafa því meðal annars getað staðið vörð um hags- muni Íslendinga í makríldeilunni við sam- bandið. Rétt eins og gagnvart Bretum í þorskastríðunum á síðustu öld. Færeyingar hafa getað gert slíkt hið sama enda fara þeir með flest sín mál sjálfir í krafti heima- stjórnar sinnar. Og það er ljóst að þeir ætla ekki að lúffa fyrir hótunum Evrópusambandsins. Það er annars óneitanlega nokkuð merkilegt til þess að hugsa að Færeyjar skuli þannig geta tekið eigin ákvarðanir þegar kemur að makríl- og síldveiðideilunni þrátt fyrir að vera ekki fullvalda ríki. Hins vegar geta til að mynda Bretland og Írland það á sama tíma ekki þrátt fyrir að eiga að heita fullvalda. Nokkuð sem deila má um að sé raunin. Þarlendir ráðamenn hafa þau einu ráð að tala digurbarkalega í fjölmiðlum og reyna síðan að þrýsta á Evrópusambandið að aðhafast gegn Færeyjum og Íslandi. Völdin til þess hafa jú fyrir margt löngu verið framseld til stofnana sambandsins. hjortur@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill Danir og sætið við borðið STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Sé ökumaður valdur að banaslysi undir áhrifum er hann ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Í 44% tilfella eru þeir sem krafðir eru um endurgreiðslu ungir öku- menn (yngri en 25 ára) og þrír af hverjum fjórum karlmenn. Hafa kröfurnar numið allt að 4,5 millj- ónum. „Endurkrafan er bara einn partur af því að keyra undir áhrifum áfengis, en að valda slysi á einstaklingi er erf- itt að hafa á samviskunni inn í fram- tíðina,“ segir Sigrún. Banaslys vegna ölvunar Til langs tíma litið eru um 20% banaslysa af völdum ökumanna sem eru undir áhrifum áfengis. „Enginn lét þó lífið sökum ölvunaraksturs í fyrra en slíkt hefur ekki átt sér fyrr stað frá því að skráning umferðar- slysa var sett á fót með markvissum hætti. Það breytir þó ekki því að í fyrra slösuðust margir og urðu valdir að slysum vegna ölvunaraksturs,“ segir Einar Magnús Magnússson, kynningarstjóri hjá Samgöngustofu. Það sem af er ári hefur orðið bana- slys í umferðinni vegna ölvunarakst- urs og verður því árið í fyrra ekki endurtekið nú. „Full ástæða er til að minna á að fólk taki ekki þessa áhættu að setjast undir stýri eftir neyslu áfengis eða annarra vímu- efna.“ Ölvun undir stýri er mikil ógn á vegunum Morgunblaðið/Golli Umferð Fjöldi manns verður á ferðinni um helgina og má búast við mikilli umferð. Mikil hætta er á ölvunarakstri á stórum ferðahelgum. FRÉTTASKÝRING Áslaug A. Sigurbjörnsdóttir aslaug@mbl.is Þ etta er ein af þeim helgum þar sem hættan af ölv- unarakstri er töluvert mikil. Þar sem áfengi og önnur vímuefni eru höfð um hönd aukast líkur á slysum og illa ígrunduðum ákvörðunum,“ segir Sig- rún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS. Mikið er um að vera um allt land um verslunar- mannahelgina og margar hátíðir haldnar af því tilefni. Margir krossa fingur að helgin gangi stóráfallalaust. Árlega verða um 250 umferðarslys sem rekja má til ölvunaraksturs. Í um fimmtungi þeirra slasast fólk og tveir til þrír láta lífið á ári. Sam- kvæmt rannsóknum ráða tilviljun, skammtímasjónarmið og brengluð dómgreind mestu um að fólk ákveður að aka drukkið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VÍS. Margir aka of snemma af stað „Margir aka einnig of snemma af stað daginn eftir djamm þannig að áfengið er enn í blóðinum,“ segir Sig- rún sem bætir við að mikilvægast sé að fólk láti skynsemina ráða og láti nægan tíma líða. „Margir líta svo á að nóg sé að fá sér að borða og fara í sturtu, en það hefur ekkert með það að gera hvort þú sért tilbúinn að keyra og hvort áfengið sé farið úr blóðinu,“ segir Sigrún sem ítrekar að það sé aðeins tíminn sem skipti máli og einstaklingar sem eru að drekka framundir morgun þurfi að bíða þar til seinnipart næsta dags að lág- marki. Að sögn Samgöngustofu getur í sumum tilfellum þurft að bíða í allt að 18 klukkustundir eða lengur áður en sest er undir stýri eftir áfengis- neyslu. En það tekur langan tíma fyr- ir áfengi að brotna niður í lík- amanum. 44% ungir ökumenn Í um fimmtungi af slysum vegna ölvunaraksturs slasast fólk og tveir til þrír láta lífið á ári. Tryggingafélög geta krafið einstaklinga um endur- greiðslu tjóna- og slysabóta ef um- ferðarslysi er valdið af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. Magn áfengis í blóði þarf ekki að ná refsimörkum, þ.e. 0,5 prómillum til að hægt sé að gera slíka kröfu á hendur ökumanni. „Talið er að um 50 einstaklingar á síðustu 10 árum hefðu lifað af bílslys hefðu þeir verið í bílbelti,“ segir Sigrún A. Þorsteinsdóttir og ítrekar að bílbeltið sé sjálf- sagður öryggisbúnaður og það eigi ekki að gerast að fólk nýti það ekki. „Þá þarf að gæta að því búið sé vel um farangur því hann margfaldar hættuna á að slasast í bíl sökum þyngdar hans á mik- illi ferð,“ segir Sigrún og bætir við að framúrakstur sé verulega varhugaverður um þessa helgi í mikilli umferð og skili ótrúlega litlu þegar litið er til tíma. Skorða þarf farangur vel BÍLBELTIN MIKILVÆG Bílbelti Notkun bílbelta er gríð- arlega mikilvæg og getur bjargað lífi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.