Morgunblaðið - 02.08.2013, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 02.08.2013, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013 Lækjargötu og Vesturgötu Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Guðný Lára Thorarensen fékk ásamt Steinþóri Helga Arnsteins- syni styrk frá Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, ÚTÓN, í fyrra til að sækja sér starfsnám í mark- aðssetningu og umboðsnámi fyrir hljómsveitir á alþjóðlegum vett- vangi. Guðný Lára fór í starfsnám til Candlelight records í Bretlandi þar sem henni hefur nú verið boðin vinna við að markaðssetja hljóm- sveitir. „Ég fékk styrkinn í fyrra- haust en fann enga umboðs- skrifstofu og sótti því um hjá plötufyrirtæki og fékk inni í starfs- námi hjá Candlelight records sem gefur m.a. út tónlist íslensku hljóm- sveitarinnar Kontinuum,“ segir Guðný sem hlaut námstyrk ÚTÓN m.a. vegna reynslu sinnar af því að hafa flutt inn hljómsveitir og komið að skipulagningu Eistnaflugs ásamt Stefáni Magnússyni, eiganda hátíð- arinnar. „Forsenda þess að fá styrkinn frá ÚTÓN er að viðkom- andi hafi einhverja reynslu úr ís- lensku tónlistarlífi.“ Styrkirnir verða veittir aftur í ár og er opið fyrir umsóknir hjá ÚT- ÓN til 2. september. Styrkir útrás tónlistar Fjöldi íslenskra hljómsveita og tónlistamanna hefur sótt á erlenda markaði með misjöfnum árangri. „Gróskan í íslenska tónlistarlífinu er orðin mikil núna og íslenskar hljómsveitir eru að fá þónokkra at- hygli. Það sem þarf að gera er að hjálpa þeim að komst út og brúa bil- ið inn á erlenda markaði,“ segir Guðný en markmiðið með styrkjum ÚTÓN er m.a. að fjölga umboðs- mönnum með reynslu og þekkingu til að hjálpa íslenskum hljóm- sveitum að sækja inn á erlenda markaði. Hægt er að sækja sér nám í um- boðs- og markaðsfræðum fyrir hljómsveitir og tónlistarmenn víða erlendis en Guðný segir starfsnám alls ekki verri vettvang fyrir áhugasama. Oft er best að læra af reynslu annarra og um leið gera hlutina jafn óðum. Hljómsveitir Íslenska hljómsveitin Kontinuum er hjá Candlelight records. Styrkir í starfsnám erlendis  Skortur á um- boðsmönnum með erlend tengsl Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Spiritual Landscapes, einkasýning myndlistarkonunnar Maríu Kjart- ansdóttur, verður opnuð kl. 18 í dag í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Hluta sýningarinnar vann hún í samstarfi við tón- listarmanninn Bigga Hilmars og fjöllista- konuna Hörpu Einarsdóttur sem kallar sig Zisku. Biggi mun leika fyrir gesti við opnun sýning- arinnar í dag og spila á tónleikum Mýrarboltans á Ísafirði annað kvöld, við Suðurtanga. „Ég hef verið búsett erlendis í tæp tíu ár og flutti heim fyrir stuttu. Það sem ég saknaði mest var að finna fyrir veðrinu, kraft- inum í landinu okkar þannig að ég fór með dóttur mína, sem þá var 11 ára, og litla bróður minn sem var rúmlega tvítugur, í ferð um Suður- land í brjáluðu veðri, nokkrum dög- um fyrir jól og þannig varð syrpan til,“ segir María um myndasyrpu sem er hluti sýningarinnar. „Þetta eru stór ljósmyndaprent, 70x100 cm, og svo er ég með tvær listræn- ar stuttmyndir. Á hluta ljósmynd- anna er Ziska, Harpa Einarsdóttir, búin að teikna verur. Þetta fjallar svolítið um það sem er í náttúrunni og í kringum okkur en við sjáum ekki öll,“ segir María. Náttúran, krafturinn og hið ósýnilega eða andlega sé rauður þráður í sýning- unni. Stuttmyndir með fallegan boðskap – Þú vannst hluta verkanna með tónlistarmanninum Bigga Hilm- ars … „Já, það eru vídeóin. Við höfum verið að gera litlar stuttmyndir með fallegan boðskap, svona „spiritual“, undir nafninu Open Your Eyes & Listen,“ segir María. Þessar mynd- ir má m.a. finna á myndbandavefn- um YouTube og samdi Biggi tón- listina í þeim. – Hefurðu fyrst og fremst unnið með ljósmyndir og stuttmyndir? „Já, það er frekar nýtilkomið að ég fór að gera vídeó. Ég hef að- allega verið í ljósmyndum og ljós- myndainnsetningum, hef gert mikið af þeim. Svo fór ég meira út í að gera stutt vídeóverk, þegar ég fór að ferðast og kynna mér lítil sam- félög á Spáni með dóttur minni. Við bjuggum með sígaunum og hippum og þá fannst mér ljósmyndamiðill- inn bara ekki ná þessu,“ segir María og hlær. Hún hafi þá farið að gera stuttmyndir, opnað fyrir aðrar víddir. Náttúran, krafturinn og hið ósýnilega  María Kjartans opnar sýningu í Edinborgarhúsinu í dag Dulúð Myndin, A sense of adventure úr syrpunni Spiritual Landscapes, ljósmynd Maríu með teikningu Zisku. María Kjartansdóttir Söngvarinn Óskar Pétursson og org- anistinn Eyþór Ingi Jónsson munu flytja óskalög tónleikagesta í Akureyrarkirkju í kvöld. Óskar og Ey- þór hafa haldið slíka tónleika til fjölda ára á þessum degi, þ.e. föstudegi um versl- unarmannahelgi. Í tilkynningu frá fé- lögunum segir að minni þeirra sé reynd- ar ekki gott og árin séu líklega fimm eða sex. Tónleikagestir munu fá lagalista með nokkur hundruð lög- um og geta þeir beðið um óskalög á staðn- um. „Glens og gaman einkenna tónleikana, sem og vandræða- gangurinn í Óskari þegar hann reynir að finna lög og texta í möppunum sínum,“ segir tvíeykið í til- kynningu. Miðasala mun fara fram í anddyri kirkj- unnar og verður hún opnuð kl. 19. Forsala á tónleikana fer fram í verslun Eymundsson á Akureyri. Glens Þeir Óskar og Eyþór taka sig ekki of hátíð- lega, eins og sjá má af þessari ljósmynd. Óskar og Eyþór flytja óskalög í Akureyrarkirkju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.