Morgunblaðið - 02.08.2013, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013
Verslunareigendur!
Ítalskir pappírspokar
í úrvali
Eingöngu sala
til fyrirtækja
Opið 08.00 - 16.00
www.flora.is | info@flora.is | Réttarhálsi 2 | 110 Rvk | Sími: 535 8500
Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is
Óviðjafnanlegur stýrisbiti
Tveir drifmótorar - lágmarks dekkjaslit
Dempun - mastur liggur í gúmmípúðum
Fáanlegur með innbyggðu hleðslutæki
Spólvörn – Góð vinnuaðstaða
Gott útsýni í gengum mastur
Fáanlegir gámagengir uppí 5 tonn
Góð og örugg eftirþjónusta
Rafmagnslyftarar
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Verslunarmenn finna fyrir miklum
áhuga neytenda á íslensku græn-
meti og leggja áherslu á að gera því
hátt undir höfði í verslunum sínum.
Bændur segja það þó ákaflega mis-
jafnt hversu vel sé staðið að málum.
„Við höfum til dæmis verið með
kínakál á markaði í rúman mánuð
en þrátt fyrir það eru sumar versl-
anir enn með innflutt kínakál til
sölu,“ segir Friðrik Rúnar Frið-
riksson, garðyrkjubóndi hjá Flúða-
jörfa. „Þá bjóða verslanir á lands-
byggðinni ekki upp á nægilegt
framboð af grænmeti hvort sem það
er íslenskt eða erlent,“ segir Frið-
rik.
Guðjón Birgisson, garðyrkju-
bóndi á Melum á Flúðum, tekur í
sama streng og segir að margt megi
betur fara. „Það sem svíður einna
mest er þegar verið er að plata
neytendur og selja erlent grænmeti
líkt og það væri íslenskt. Við pökk-
um öllu inn í þar til gerða fjölnota
kassa og sumar verslanir setja er-
lent grænmeti í þá. Það eru lög í
landinu sem skylda verslanir til
þess að greina frá því hvaðan græn-
metið kemur en því miður er líkt og
verið sé að sniðganga þau lög,“ seg-
ir Guðjón.
Ekki vísvitandi gert
Jón Hannes Stefánsson, inn-
kaupastjóri hjá Krónunni, finnur
fyrir miklum áhuga á íslensku
grænmeti. „Allt sem er íslenskt er
vinsælt og við leggjum áherslu á að
fá íslenskt grænmeti inn í verslanir
um leið og það kemur upp úr jörð-
inni. Þegar uppskeran er komin al-
mennilega af stað þá fylgjum við því
vel eftir og erum með bændamark-
aði í verslununum.“
Aðspurður hvort erlendu græn-
meti hafi verið stillt upp sem ís-
lensku segist Jón kannast við það.
„Það gæti hafa gerst í einhverjum
tilvikum, það er ekki hægt að þræta
fyrir það, en það er þó aldrei vísvit-
andi gert. Við reynum að passa upp
á það að merkja uppruna varanna
alltaf rétt,“ segir Jón.
Allt sem er íslenskt er sagt vinsælt
Inn í verslanir um leið og það kemur upp úr jörðinni Margt má betur fara þegar koma á íslensku
grænmeti til neytenda Merkingar á uppruna grænmetis eru sagðar oft og tíðum misvísandi
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Ferskt Grænmetisuppskeran hjá bændum er komin vel á veg. Nú er víða unnið hörðum höndum að því að taka upp
íslenskt grænmeti sem fyllir síðan hillur verslana. Kaupmenn segja mikinn áhuga vera á íslenskum afurðum.
Geogreenhouse ehf. leitar enn að
leiðandi fjárfesti til að hefja stór-
tæka tómatarækt í gróðurhúsi nærri
Hellisheiðarvirkjun.
„Við erum enn að leita að fjár-
mögnun til verksins. Undanfarið
höfum við leitast eftir því að ná í fjár-
festi sem þekkir til í þessum geira.
Það eru margir fjár-festar sem vilja
taka þátt en við höfum ekki fundið
leiðandi fjárfesti hér heima. Því höf-
um við verið í viðræðum við nokkra
erlenda fjárfesta,“ segir Sigurður
Hrafn Kiernan, stjórnarformaður
Investum holding sem er einn fimm
íslenskra fjárfesta í Geogreenhouse
ehf.
Hann segir að fjárfestar séu að
fara í gegnum rekstrartölur og
markaðinn í Bretlandi áður en
ákvörðun verður tekin. Til stóð að
gróðurhúsið yrði tekið í gagnið í
haust en Sigurður segir að slíkar
tímaáætlanir muni færast til. „Þetta
hefur tekið aðeins lengri tíma en við
gerðum ráð fyrir í byrjun og við
væntum þess að klára þetta, eina
óvissan er hvenær við munum gera
það,“ segir Sigurður.
Hann segir að viðræður við fjár-
festa hafi staðið í þrjú ár. Gert er ráð
fyrir að Geogreenhouse þurfi 700
milljónir í eigið fé til að geta hrint
verkefninu af stað. vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Tómatar Áætlanir um stórtæka tómataræktun hafa tafist. Stjórnarformað-
ur segir að viðræður séu í gangi við erlenda fjárfesta.
Leita enn fjárfesta
Geogreenhouse ehf. leitar til erlendra
fjárfesta til að geta hafið tómataræktun
Eiríkur Sigurðsson, kaupmaður
hjá Víði, segist leggja áherslu á
gott og náið samstarf við bænd-
ur. „Það er ósk Íslendinga að fá
alltaf ferskt íslenskt grænmeti
og við leggjum upp úr því að
það komi sem fyrst inn í versl-
anir okkar. Stundum eru komn-
ar til okkar kartöflur í hádeginu
sem voru teknar upp þá um
morguninn. Undanfarið höfum
við átt mikið af íslensku blóm-
káli, spergilkáli og sumarhvít-
káli svo fátt eitt sé nefnt. Hjá
okkur hefur íslenska varan allt-
af forgang enda er hún best þar
sem hún nærist á íslensku
vatni.Við bjóðum upp á hreinar
afurðir því það er það sem við-
skiptavinurinn vill kaupa.“
Vilja kaupa
hreinar vörur
SAMSTARF VIÐ BÆNDUR