Morgunblaðið - 02.08.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.08.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013 Við sérhæfum okkur í vatnskössum og bensíntönkum. Gerum við og eigum nýja til á lager. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bílaleigubílar eru 12.356 talsins samkvæmt skrá Samgöngustofu. Þar af eru 1.953 bílar af árgerð 2006 eða eldri og sá elsti var skráð- ur 1976 og er því 37 ára. Sigurður Smári Gylfason, framkvæmdastjóri SADcars bílaleigunnar, telur að hér starfi 10-20 bílaleigur sem leigja út eldri bíla. SADcars leigir út bíla af eldri árgerðum og telur bílafloti þeirra um 200 bíla. Tölur Samgöngustofu um aldur bílaleigubíla sýna að sá elsti er skráður 1976 eða 37 ára gamall. Fáir bílar eru eldri en frá 1990 eða 26 bílar. 20 bílar eru komnir á skil- greindan aldur fornbíla, sem er 25 ára og eldri. Bílar af hverri árgerð frá 1991-1996 eru nokkrir tugir eða 139 alls. Síðan fjölgar ört bílum af hverri árgerð og langmest er af eins og tveggja ára bílaleigubílum, eins og sést á skýringarmynd. Misbrestur á réttri skráningu Sigurður á sæti í bílaleigunefnd Samtaka ferðaþjónustunnar sem fjallar um málefni bílaleiganna. Hann segir ekki alveg að marka opinberar tölur um fjölda bíla- leigubíla því ákveðinn misbrestur sé á skráningu þeirra í ökutækja- skrá. Reglugerð kveði á um að bíla- leigubílar skuli vera skráðir sem slíkir hjá Umferðarstofu sem nú er hluti af Samgöngustofu. Sigurður telur lítið eftirlit vera með því að sú skráning sé rétt. „Þessi skráning skiptir litlu máli varðandi tryggingar og allt slíkt. Tryggingar bílaleiga fara eftir samningum þeirra við trygginga- félögin, það pælir enginn í því hvort bíll er skráður bílaleigubíll eða ekki,“ segir Sigurður. Hann segir t.d. að það geti farist fyrir við sölu bílaleigubíla að afskrá þá sem slíka. Því geti verið fullt af einka- bílum sem eru skráðir bíla- leigubílar. „Við segjum að bílarnir okkar séu að meðaltali tíu ára gamlir, við eigum bíla sem eru eldri og líka yngri. Flotinn er heldur að yngjast en hitt,“ segir Sigurður. Hann bendir á að meðalaldur íslensks fjölskyldubíls sé að nálgast tólf ár. „Við erum að leigja út það sem nálgast að vera íslenskur fjöl- skyldubíll.“ Sigurður kveðst vera sammála því að auka þurfi eftirlit með bíla- leigubílum og ástandi þeirra. Hann kveðst hafa verið talsmaður þess lengi. „Við gengum í Samtök ferða- þjónustunnar til að taka þátt í því með atvinnugreininni að bæta hana,“ segir Sigurður. Um 30% ódýrari leiga Sigurður segir erfitt að segja hve miklu ódýrara sé að leigja eldri bíla en nýlega bíla. Almennt talað geti það verið um 30% ódýrara, en í öðrum tilvikum geti munurinn verið minni. En hvernig bregst SADcars við ef bíll í leigu bilar úti á landi? „Við bregðumst nákvæmlega eins við og stóru leigurnar. Við erum í samstarfi við bifreiðaverkstæði hringinn í kringum landið sem sinna viðgerðum fyrir okkur. Þurfi annan bíl vegna bilunar eða óhapps þá færum við leigutaka annan bíl eins fljótt og auðið er. Við erum með neyðarsíma sem er opinn allan sólarhringinn. Ég held að við stöndum okkur vel í þessum hlut- um.“ Engin áhöld eru um það hver ber kostnaðinn ef bilunina má rekja til slits eða aldurs bílsins, að sögn Sig- urðar. Þá ber bílaleigan þann kostnað. „Útlendingar eru óvanir því að það springi dekk. Það getur orðið ágreiningur um það við við- skiptavininn hvort hann á að borga viðgerðina á sprungna dekkinu,“ segir Sigurður. „Ef einum af jepp- unum okkar er sökkt í á þá ber við- skiptavinurinn kostnaðinn af því. Þar er enginn tryggður.“ Sigurður segir það koma fram í leigusamn- ingunum að bílar séu ekki tryggðir við akstur yfir óbrúaðar ár. „Við stofnuðum bílaleiguna fyrir röskum fjórum árum. Við fengum til þess leyfi hjá Vegagerðinni, út- veguðum starfsábyrgðartryggingu hjá tryggingafélaginu okkar og ein- hver vottorð hér og þar. Þremur eða fjórum árum síðar er varla hægt að segja að nokkur hafi kom- ið að tala við okkur, hvort sem er tryggingafélagið, Vegagerðin til að sinna eftirliti, lögreglan til að segja okkur hvernig á að standa að hlut- unum, Samtök ferðaþjónustunnar eða nokkur annar. Það er eins og enginn láti sig þetta nokkru skipta.“ Sigurður segir að lögreglan og Vegagerðin hefðu tekið einhverjar stikkprufur á bílaleigubílum í vetur, en fram að því hefðu þeir verið látnir afskiptalausir. „Hafi lögreglan stoppað bíl í okk- ar eigu úti á landi þá höfum við ekki fengið að vita af því, hvort eitthvað var að eða ekki,“ segir Sigurður. SADcars gera þær kröfur að bíl- arnir uppfylli allar öryggiskröfur og geti staðist aðalskoðun hvenær sem er. Dekk og bremsubúnaður á að vera þannig að bíllinn standist skoðun. Auðvelt að stofna bílaleigu Sigurður segir að ekki þurfi mik- ið til að stofna bílaleigu og það kosti sáralítið í sjálfu sér, sér- staklega bílaleigu með ódýra bíla. Auðvelt sé að koma sér á framfæri í gegnum netið. „Þessi grein þarf meira eftirlit opinberra aðila sem eiga að sinna því almennilega. Það er ekki verið að gera það nú,“ segir Sigurður. Hann telur að gera þurfi lágmarks- kröfu um fjölda bíla á bílaleigu sem leigir útlendingum. Það þurfi ákveðin umsvif til að geta brugðist við ef bíll í útleigu bilar og til að geta verið á vakt allan sólar- hringinn. Lítið eftirlit er með bílaleigunum  Elsti bílaleigubíll landsins var skráður 1976  Tuttugu fornbílar skráðir í bílaleigu  Auðvelt og ódýrt að stofna bílaleigu með eldri bíla  Þörf á meira eftirliti með bílaleigubílum og ástandi þeirra Morgunblaðið/Ómar Bílar Flestir bílaleigubílar eru nýlegir en 10-20 bílaleigur leigja út eldri bíla. Löglegir bílaleigubílar þurfa að standast ástandsskoðun á hverju ári. Bílaleigubílar á skrá eftir árgerð: 19 76 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 19 81 19 83 19 84 19 85 19 86 19 87 19 88 19 89 19 90 19 91 19 92 19 93 19 94 19 95 19 96 19 97 19 98 19 99 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 20 13 1 2 2 3 1 3 5 3 4 2 13 14 1 5 23 38 36 7 9 11 8 15 3 17 7 13 6 11 2 16 5 23 7 33 8 27 3 56 8 78 5 27 4 9 69 1. 48 6 3. 24 1 3. 10 7 Nýlegir bílaleigubílar Heimild: Samgöngustofa Karl Viðar Pálsson, sem rekur bíla- og dekkjaverk- stæði á Mý- vatni, segir það hafa færst í vöxt að til hans komi fólk á útslitnum bílaleigubílum. Flestir bílaleigubílar og stærri bílaleig- ur séu þó til sóma og í góðu lagi. Innan um séu óvandaðir leigusalar. Í gær voru tvær „druslur“ hjá Karli. Önnur var eldgamall jeppi á þremur tegundum af dekkjum og varadekkið ónýtt. „Ég get talið svona enda- laust,“ sagði Karl. Hann sagðist ekki vinna fyrir suma þessa „leigukalla“ því þeir hvorki borgi né svari síma. Útslitnir bílar og ónýt dekk BILAÐIR BÍLALEIGUBÍLAR STRANDA Í MÝVATNSSVEIT Karl Viðar Pálsson Fundur sem nýlega var haldinn á Rauf- arhöfn í stjórn Lands- sambands smá- bátaeigenda „þakkar velvild þjóðarinnar í garð strand- veiða“. Þar segir að strandveiðar hafi á aðeins örfáum árum sannað gildi sitt fyrir auð- ugra mannlífi í hinum dreifðu byggðum, samhliða því að vera til fyrirmyndar um nýtingu auðlind- arinnar með umhverfisvænum hætti. Það er skoðun LS að veiðar handfærabáta skili þeim stofnum sem þeir nýta sjálfbærum til komandi kynslóða. Með vísan til þess eigi veiðar þeirra að vera fyrir utan ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar og ekki á nokk- urn hátt að hafa áhrif á ákvörðun ráðherra um heildarafla. Þakka velvild gagn- vart strandveiðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.