Morgunblaðið - 08.08.2013, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 8. Á G Ú S T 2 0 1 3
Stofnað 1913 183. tölublað 101. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
DALVÍSKAR FJÖL-
SKYLDUR BJÓÐA
UPP Á FISKISÚPU
ELLEFU ÁRA
PLÖTUSNÚÐUR
Á PÖNKHÁTÍÐ
VIÐSKIPTABLAÐIÐ PÖNK Á PATRÓ 10FISKIDAGURINN MIKLI 16
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Fjárfestahópur frá Asíu, sem meðal
annars samanstendur af kínverskum
fjárfestum, hefur áhuga á að kaupa
95% hlut kröfuhafa Glitnis í Íslands-
banka. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Morgunblaðsins gæti
kaupverðið numið um 115 milljörð-
um króna. Eftir því sem næst verður
komist er ekki farið fram á það að
fjárfestunum verði veittur „afslátt-
ur“ á þeim gjaldeyri sem greitt yrði
með við möguleg kaup á bankanum.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að forsætisráðherra og efnahags- og
fjármálaráðherra hafi verið upplýst-
ir um áhuga fjárfestahópsins. Slita-
stjórn Glitnis bíður nú viðbragða
stjórnvalda þess efnis hvort slík sala
gæti verið hluti af mögulegum
nauðasamningi þrotabúsins.
Í samtali við Morgunblaðið vildi
Bjarni Benediktsson, efnahags- og
fjármálaráðherra, ekki tjá sig sér-
staklega um málið á þessu stigi.
Hann segir hins vegar að slitastjórn
Glitnis upplýsi stjórnvöld um stöðu
mála hvað varðar sölu Íslandsbanka
eftir því sem hún telur ástæðu til.
Miðað við þær verðhugmyndir
sem uppi eru í viðræðunum þá gætu
kröfuhafar verið að fá yfir 80% af
bókfærðu eiginfjárvirði Íslands-
banka. Það er mun hærra verð en
áður hefur verið talið raunhæft.
Yrði án fordæma
Samkvæmt heimildum er það mat
margra sem þekkja vel til helstu
ráðgjafa og kröfuhafa Glitnis að við-
ræðurnar við fjárfestahópinn séu
mikilvægur liður í því að sýna fram á
að verðmæti eignarhlutarins sé mun
hærra en íslenskir stefnusmiðir hafa
leitt líkur að til þessa. Fyrr á árinu
sagði Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri að eignarhlutir kröfu-
hafa í Íslandsbanka og Arion banka
yrðu aldrei seldir á því verði sem
bókfært eiginfjárvirði þeirra segir
til um. „Aldrei nálægt því,“ sagði
Már.
Heimildir herma að fjárfestahóp-
urinn muni brátt undirrita viljayfir-
lýsingu þar sem áhugi þeirra á að
hefja formlegar viðræður um kaup á
Íslandsbanka verður staðfestur.
Ljóst þykir að slík kaup, þar sem
meðal annars kínverskir fjárfestar
gætu eignast meirihluta í einum
stærsta banka Íslands, myndu mæta
mikilli pólitískri andstöðu hérlendis.
Næðu kaupin fram að ganga væru
þau án fordæma á Vesturlöndum.
MVilja borga »Viðskipti
Kínverjar vilja kaupa banka
Fjárfestahópur frá Asíu í viðræðum um að kaupa hlut kröfuhafa í Íslandsbanka Verðið gæti numið
um 115 milljörðum Stjórnvöld upplýst um stöðu mála Liður í að reyna að auka heimtur kröfuhafa
Morgunblaðið/Golli
Sala Glitnir metur 95% hlut kröfu-
hafa í Íslandsbanka á 115 milljarða.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Við höfum fengið svar frá stækkunardeild
Evrópusambandsins um að hún vilji ekki setja af
stað IPA-verkefni sem eru tilbúin til undir-
ritunar,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra um þá ákvörðun ESB að stöðva verkefni
sem ætlað er að undirbúa Ísland undir ESB-aðild.
Fram kemur í skýrslu utanríkisráðuneytisins í
apríl sl. um stöðu aðildarviðræðna að ESB hafi
samþykkt að veita 40 milljónum evra í verkefnin.
Ákvörðun ESB hefur ekki
áhrif á landsáætlun vegna
IPA-styrkja árið 2011, að einu
verkefni undanskildu. Hún
stöðvar öll verkefni í áætl-
uninni 2012, að einu verkefni
frátöldu, og öll verkefni 2013.
Ekki fékkst uppgefið hjá utan-
ríkisráðuneytinu hversu miklir
styrkir falla niður. Upphæðin
hlypi þó á milljörðum króna.
Gunnar Bragi segir að þegar
ríkisstjórnin ákvað að gera hlé á aðildarviðræðum
hafi hún ákveðið að hafa ekki frumkvæði að því að
stöðva IPA-verkefni sem voru langt komin eða
tilbúin til undirritunar. Hins vegar skyldi verk-
efnum sem ekki var byrjað að undirbúa sjálfhætt.
„Við töldum að ESB þyrfti að ákveða framtíð
verkefna sem eru tilbúin til undirritunar, enda
töluverð vinna verið lögð í undirbúning þeirra.
Ekki verður hætt við verkefni á áætlun 2011, en
ESB vill setjast niður í september og ræða stöðu
þeirra,“ segir Gunnar en m.a. verður hætt við 300
milljón króna verkefni á vegum MATÍS.
ESB skrúfar fyrir IPA-styrkina
Evrópusambandið boðar til fundar um framhaldið í Brussel í næsta mánuði
Gunnar Bragi
Sveinsson
Það er álit
Samkeppnis-
eftirlitsins að ný-
leg reglugerð um
að apótek sem
veita viðskipta-
vinum afslátt af
lyfjaverði verði
einnig að láta
ríkið njóta af-
sláttar kunni að leiða til minni sam-
keppni apóteka.
Í reglugerðinni felst að ef veita á
afslátt við sölu á lyfjum beri lyfsöl-
um skylda til þess að láta Sjúkra-
tryggingar Íslands njóta ágóðans
til jafns við sjúklinginn sem kaupir
lyfið, en Sjúkratryggingarnar nið-
urgreiða lyfin að stórum hluta.
Velferðarráðuneytinu hefur verið
gefinn kostur á koma á framfæri
sjónarmiðum sínum í málinu. »6
Reglugerð geti
dregið úr sam-
keppni apóteka
Foxy Ladies voru í gær krýndar draggdrottningar Íslands árið 2013. Er
það sviðsnafn filippseysku piltanna Márkys Cántalejo og Chris Mercado.
Draggkóngur Íslands var Brjánn Hróðmarsson en hann gengur alla
jafna undir nafninu Ylfa Lind Gylfadóttir. Keppnin fór nú fram í sextánda
sinn og voru alls ellefu keppendur, fimm strákar og sex stelpur. Þrír dúett-
ar mættu til leiks, þar af tveir með stelpum.
Morgunblaðið/Ómar
Draggdrottningar krýndar
CRI FÆR ER-
LENDA VÍTAMÍN-
SPRAUTU