Morgunblaðið - 08.08.2013, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013
Rafknúnar hurðapumpur fyrir útihurðir og innihurðir. Fáanlegar
í útfærslu sem er sérstaklega hentug fyrir vindasöm svæði.
ENGIR ÓVÆNTIR HURÐASKELLIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fjölmenni var á samverustund í Gler-
árkirkju í gærkvöldi til að minnast
Páls Steindórs Steindórssonar flug-
stjóra og Péturs Róberts Tryggva-
sonar, slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanns, en þeir fórust í flug-
slysinu við rætur Hlíðarfjalls á
mánudag.
Að sögn Örnu Ýrar Sigurðar-
dóttur, prests í Glerárkirkju, er mikil
sorg í samfélaginu nyrðra.
„Það er líka mikil samstaða. Mikið
af ættingjum og vinum Páls Stein-
dórs og Péturs Róberts komu saman.
Margir stöldruðu við eftir athöfnina
og þáðu spjall hjá sjálfboðaliðum
Rauða krossins.“
Finnum fyrir sorg annarra
„Ég talaði um hvað það væri mikil-
vægt að við sýndum hvert öðru um-
hyggju, kærleika og samstöðu. Við
finnum það vel þegar eitthvað svona
gerist að við erum öll tengd. Við finn-
um til hvert með öðru og finnum fyrir
sorg annarra, þótt við sjálf séum ekki
að verða fyrir missi. Það er mjög dýr-
mætt og er eitt af því sem gerir okkur
að manneskjum. Það var mikilvægt
að koma saman og styrkja hvert ann-
að,“ segir Arna Ýrr.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Samverustund Um 200 manns komu saman til að minnast mannanna sem fórust í flugslysinu sl. sunnudag.
Sameinuð í sorg
Vinir og ættingjar mannanna sem fórust í flugslysinu á
Akureyri komu saman á minningarstund í Glerárkirkju
Samstaða Ættingjar og vinir mannanna komu saman í Glerárkirkju.
Hildur Hjörvar
hhjorvar@mbl.is
Ekki er heimilt að úthluta aflaheim-
ildum til veiða á úthafsrækju á
grundvelli veiðireynslu síðustu
þriggja ára nema að undangenginni
lagabreytingu. Þó eru litlar líkur á að
ríkið yrði talið skaðabótaskylt yrði
ákveðið að miða við veiðireynsluna.
Þetta er meðal niðurstaðna lögfræði-
álits sem Land lögmenn unnu fyrir
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið á dögunum vegna fyrirætlana
um að setja kvóta á veiðar á úthafs-
rækju á ný.
Veiðar á úthafsrækju voru gefnar
frjálsar í upphafi fiskveiðiársins
2010-11 en Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegsráðherra hefur sagt að
honum þyki ljóst að veiðarnar þurfi
að lúta stýringu á ný á næsta fisk-
veiðiári.
Ráðuneytið bað Land lögmenn að
vinna lögfræðiálit um heimild til að
úthluta aflaheimildum til þeirra
sömu og höfðu þær áður en veiðarnar
voru gefnar frjálsar eða miða úthlut-
anir við veiðireynslu síðustu þriggja
ára og hugsanlega bótaskyldu ríkis-
ins, kæmi til þess.
„Við teljum
ekki miklar líkur
á bótaskyldu rík-
isins ef kvótanum
verður úthlutað
með málefnaleg-
um hætti til
þeirra sem hafa
verið að veiða síð-
ustu þrjú ár, eða
útdeila honum
þannig að hluta,“ segir Atli Már Ing-
ólfsson héraðsdómslögmaður, sem
vann álitið ásamt Eiríki Gunnsteins-
syni hæstaréttarlögmanni. Niður-
staðan sé þó ekki óumdeild.
Hins vegar töldu þeir heimilt að út-
hluta kvóta samkvæmt eldri aflahlut-
deild, en gerður sá fyrirvari að mikill
vafi ríkti um hvernig dómstólar
myndu meta slíka úthlutun með tilliti
til jafnræðis og atvinnufrelsis.
„Við töldum leika vafa á því, ef al-
gjörlega yrði lokað á þá sem hefðu
veitt undanfarið, þá þyrfti ríkið að
sýna fram á rökbundna nauðsyn þess
að takmarka heimildina við þá sem
áður hefðu haft hana,“ segir Atli Már
til skýringar.
Óheimilt að
úthluta miðað
við veiðireynslu
Breyta þyrfti fiskveiðistjórnarlögum
Atli Már
Ingólfsson
Ökumaður sendibíls sem lenti í
árekstri við vörubifreið á Suður-
landsvegi var úrskurðaður látinn við
komuna á sjúkrahús í Reykjavík í
gær.
Slysið varð skammt frá Þingborg,
austan við Selfoss.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
var bílunum ekið í gagnstæðar áttir
þegar þeir skullu saman. Ökumaður
vörubifreiðarinnar var fluttur á
sjúkrahús á Selfossi en er ekki alvar-
lega slasaður.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur
fram að ekki liggi fyrir upplýsingar
um tildrög slyssins en lögregla biður
þá sem urðu vitni að slysinu og lög-
regla ræddi ekki við á vettvangi að
hafa samband í síma 480 1010.
Skullu harkalega saman
Ökumaður
sendibíls lést
eftir árekstur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sævarsson
Slys Áreksturinn var harður og sendibíllinn skemmdist mikið.
Með samhentu átaki
slökkviliðs, björg-
unarsveita og bænda
virðist sem tekist hafi að
koma í veg fyrir alvar-
legt mengunarslys við
ána Skálm í Skaftár-
hreppi. Þar valt olíu-
flutningabíll með tengi-
vagn út af veginum með
þeim afleiðingum að gat
kom á tengivagninn og
dísilolía lak úr honum.
Það ætti að skýrast í
dag hversu mikið lak úr tanknum
en Guðmundur Vignir Steinsson,
slökkviliðsstjóri á Kirkjubæjar-
klaustri, telur ekki að það hafi ver-
ið mikið. Vagninum var fljótlega
komið á réttan kjöl og þá hætti lek-
inn.
Einar Örn Ólafsson, forstjóri
Skeljungs, segir að bíllinn hafi ver-
ið að flytja olíu til bænda og verk-
taka á Suðurlandi þegar slysið
varð. Bílstjórinn hafi lítið meiðst
við óhappið en verið brugðið. Hann
fór heim að lokinni læknisskoðun.
Olía lak úr tengivagni eftir
að olíubíll valt út af
Mengun Olía lekur úr tanknum á vagninum.
Ljósmynd/Bárður Einarsson
Þorkell Ágústsson, rannsókn-
arstjóri flugslysasviðs rannsókn-
arnefndar samgönguslysa, segir
að rannsókn á vettvangi hafi lokið
um hádegisbil í gær. Brak vél-
arinnar verður flutt til Reykjavíkur
þar sem það verður rannsakað.
Þorkell segir ómögulegt að
segja til um hvað rannsóknin taki
langan tíma. Nú fari í hönd gagna-
öflun. Frumrannsókn sé að hefjast
sem taki nokkrar vikur.
Hann telur líklegt að erlendir
sérfræðingar verði fengnir til að
aðstoða við rannsóknina á brot-
lendingu vélar Mýflugs.
Frumrannsókn að hefjast
LÍKLEGT AÐ ERLENDIR SÉRFRÆÐINGAR KOMI TIL AÐSTOÐAR