Morgunblaðið - 08.08.2013, Side 11

Morgunblaðið - 08.08.2013, Side 11
að Páll Óskar sé í miklu uppáhaldi hjá sér. Hefur lært af pabba sínum Una Margrét sækir hæfileikann til að skemmta fólki ekki langt en fað- ir hennar er Reynir Lyngdal, leik- stjóri og meðlimur í plötusnúð- atvíeykinu Gullfoss og Geysir, og fósturmóðir hennar er leikkonan Elma Lísa Gunnarsdóttir. „Ég er mjög spennt fyrir því að spila á hátíðinni. Það sem ég held að verði skemmtilegast við þetta allt saman er að ég er að fara að spila í sundlaugarpartýi. Ég æfi sund og finnst alveg rosalega gaman að synda og vera í sundi þannig að ég er mjög spennt fyrir því,“ segir Una Margrét sem kveðst mögulega ætla að taka einn sundsprett þegar hún hefur lok- ið við að skemmta sundlaugargestum með ljúfum tónum. Frítt verður í sund fyrir sextán ára og yngri en faðir Unu verður henni til halds og trausts á meðan á skemmtuninni stendur. „Ég hef ekki beint verið að æfa mig mikið því ég á ekki neinar græj- ur. Pabbi minn á bara græjur sem ég fæ stundum að nota. Ég er reyndar með græjurnar inni í herbergi hjá mér núna svo ég geti verið að æfa mig. Ég hef lært mjög mikið af pabba, hann er búinn að vera að kenna mér rosalega mikið upp á síð- kastið. Ég er svona nokkurn veginn búin að ná tökunum á þessu. Ég var viðstödd þegar pabbi fékk nýju græj- urnar sínar og þegar hann og Jói vin- ur hans voru að læra á þær þá horfði ég bara á og lærði svolítið af þeim,“ segir Una Margrét og bætir því við að faðir hennar og Jóhann Bragi Bjarnason, hinn helmingur Gullfoss og Geysis, séu fyrirmyndir hennar þegar kemur að því að þeyta skífum. Framtíðin er spennandi „Ég ætla að verða dýralæknir, bóndi og hljómsveitarstjóri þegar ég er orðin stór,“ segir Una Margrét ákveðin. Hún kveðst ætla að vera með dýr og rækta land en hún er mikill dýravinur og á til að mynda kettina Brand og Læðu. „Ég held að þetta geti allt farið vel saman. Ég vil stjórna sinfón- íuhljómsveit og ég væri til í að læra eitthvað slíkt í framtíðinni. Ég er nú þegar að læra að spila á píanó. Ég veit nú ekki hvort ég sé mjög vön því að vera á sviði en ég hef þó komið fram nokkrum sinnum að spila á pí- anóið. Síðan hef ég líka nokkrum sinnum leikið í skólaleikritum og svo- leiðis,“ segir hún. „Ég held að ég sé eina barnið sem kemur fram á hátíðinni en það munu margar hljómsveitir koma fram. Það verður líka tónlistarsmiðja og fleira skemmtilegt í gangi þarna. Þetta verður góð hátíð,“ segir Una Margrét að lokum. Meðal þeirra listamanna sem hafa komið fram á hátíðinni eru Dikta, Amiina, Pollapönk, 701 og Prinspóló og því ljóst að Una Mar- grét verður í góðum félagsskap að há- tíð lokinni. Morgunblaðið/Styrmir Kári Rokk Hljómsveitin Skálmöld kemur einnig til með að spila á hátíðinni. „Ég er svona nokkurn veginn búin að ná tökunum á þessu. Ég var viðstödd þegar pabbi fékk nýju græjurnar sínar og þegar hann og Jói vinur hans voru að læra á þær þá horfði ég bara á og lærði svo- lítið af þeim.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013 skátamiðstöð nærri Ottawa en auk þess geta skátarnir farið í þriggja daga ferð til Montréal, Québec- borgar eða Toronto. Sex þúsund manns til Íslands Íslenski hópurinn sem tekur þátt mun fylgjast grannt með gangi mála hvað skipulag keppninnar varðar því hún verður haldin hér á landi árið 2017. Gert er ráð fyrir að um sex þúsund þátttakendur frá hátt í hundrað þjóðlöndum komi þá hingað til lands. Nú þegar hefur verið stofnaður hópur á fés- bókinni þar sem áhugasamir geta fylgst með undirbúningi skáta- mótsins árið 2017. Þess má til gamans geta að flestir þeir skátar sem eru á viðkomandi aldri eru svokallaðir Róverskátar en starf þeirra byggist aðallega á að leggja talsvert af mörkum til samfélags- ins. Íslensku Róverskátarnir eru þar engin undantekning og starfa þeir flestir innan vébanda björg- unarsveitanna. Skátar Þinghúsið í Ottawa í Kanada er flott bygging en þar verður fjórtánda World Scout Moot hátíðin sett í dag. Farið verður í þriðju Menningargöngu Bláskógarbyggðar 14. ágúst næst- komandi en viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Upplit, menningarklasa uppsveita Árnessýslu. Pálmi Hilmarsson, húsvörður Menntaskólans að Laugarvatni, mun leiða göngufólk um Laugarvatn og fræða viðstadda um einstaka staði og sögu svæðisins. Lagt verður af stað í gönguna frá Héraðsskólanum klukkan 19 en gangan er sögð vera auðveld og taka um eina til tvær klukkustundur. Að lokinni göngu verður síðan komið við hjá Sverri og Sveini hjá Héraðsskólanum Hostel og þeir kynna starfsemi sína fyrir gest- um og gangandi. Endilega… … röltið um Laugarvatn Söguganga Laugarvatn er fagurt. Ljósmyndarinn Daníel Starrason mun um helgina efna til ljósmyndasýn- ingar í Populus Tremula á Akureyri ásamt Magnúsi Andersen. Hann held- ur úti heimasíðunni danielstarrason- .com þar sem áhugasamir geta kynnt sér verk hans. Þar má meðal annars finna ljósmyndir sem hann hefur tek- ið af tónlistarmönnum, dýrum sem og dauðum hlutum. Vefsíðan www.daniel- starrason.com Myndir Sýningin er í Populus Tremula. Ljósmyndasýn- ing á Akureyri Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Lifðu, lærðu, leiktu með Lenovo Yoga 3ja ára ábyrgð Borgartún 37, Reykjavík / Kaupangi, Akureyri / netverslun.is Fartölva og spjaldtölva í einni 11,6" snertiskjár Intel Core i3 örgjörvi 4 GB minni 128 GB SSD diskur Verð: 164.900 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.