Morgunblaðið - 08.08.2013, Síða 29

Morgunblaðið - 08.08.2013, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013 Smáauglýsingar 569 1100 Raðauglýsingar 569 1100 Garðar Eigum gott úrval af hágæða sláttutraktorum frá Austurríki. Gerðu samanburð Orkuver ehf . sími 534 3435 www.orkuver.is Gisting Hótel Sandafell, Þingeyri auglýsir Gisting og matur. Erum með 2ja herb. orlofsíbúð til leigu. Verið velkomin. Hótel Sandafell Sími 456 1600. Snyrting Spænskar gæðasnyrtivörur, fram- leiddar úr náttúrulegum hráefnum og eru fyrir alla daglega umhirðu húðar. Fjölbreyttar vörur sem henta allri fjölskyldunni. Sjá nánar í netversluninni: www.babaria.is Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald N.P. þjónusta. Tek að mér bókhald-, endurútreikninga og uppgjör. Uppl. í s. 861 6164. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt VANDAÐIR ÞÝSKIR HERRASKÓR Á GÓÐU VERÐI Teg: 204201 23. Vandaðir og þægilegir herraskór úr leðri, skinnfóðraðir og með góðan sóla. Stærðir: 40 - 48 Verð: 16.975.- Teg: 310201 23 Vandaðir og þægilegir herraskór úr leðri, skinnfóðraðir og með góðan sóla. Litir: svart og gulbrúnt. Stærðir: 40 - 45 Verð: 13.700.- Teg: 305301 241 Vandaðir og þægilegir herraskór úr leðri, skinnfóðraðir og með góðan sóla. Stærðir: 39 - 47 Verð: 15.885.- Teg: 503603 254 Mjúkir og þægilegir herrasandallar úr leðri. Stærðir: 43 - 50 Verð: 13.685.- Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán. - fös. 10 - 18. Lokað laugardaga í sumar. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bílar Hópferðabílar til leigu Fast verð eða tilboð. Plútó ehf sími: 892 1525. Nýr Jeep Grand Cherokee CRD Diesel Mjög vel útbúinn með leðri, háu og lágu drifi ofl.ofl. Eyðsla aðeins 8,3 L í blönduðum akstri. Til sýnis á staðnum. Einn bíll eftir. Næstu bílar verða um 2 milljónir dýrari. Frábært verð: 10.390.000,- www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Opið kl. 12-18 virka daga. Bílaþjónusta Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Kerrur Samanbrjótanlegar fólksbílakerrur. Verð aðeins. 149.000 kr Orkuver ehf . sími 534 3435 www.orkuver.is NÝKOMIÐ Teg ELODIE - styður mjög vel og fæst í skálum D,DD,E,F,FF,G á kr. 10.990,-. Teg SUSANNA - svoo glæsilegur í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 11.675,- Teg 4500 - þessi gamli góði í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 7.880,- Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-föst. 10-18, Lokað á laugardögum í sumar. Þú mætir - við mælum og aðstoðum. www.misty.is - vertu vinur Kennsla Tónlistarskóli Kópavogs auglýsir eftir píanókennara í hlutastarf Umsóknir sendist fyrir 22. ágúst á netfangið: tonlistarskoli@tonlistarskoli.is. Frekari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 570 0414. Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Engjasel 87, 205-5404, Reykjavík, þingl. eig. Finnur Hrafn Jónsson, gerðarbeiðendur Engjasel 87, húsfélag, og Sparisjóður Rvíkur og nágr., útib., mánudaginn 12. ágúst 2013 kl. 13:30. Esjuberg 2, 221-3188, Reykjavík, þingl. eig. Ragnheiður Hauksdóttir, gerðarbeiðendur Avant hf og Íslandsbanki hf, mánudaginn 12. ágúst 2013 kl. 15:00. Unufell 21, 205-2262, Reykjavík, þingl. eig. Besar Zogaj, gerðarbeið- endurTryggingamiðstöðin hf og Unufell 21, húsfélag, mánudaginn 12. ágúst 2013 kl. 14:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 7. ágúst 2013. Félagsstarf eldri borgara                                                   ! " # $    %  &'           ( ) ( "                ! "#$  *        " +     " "( ,-  %  $&$'  . "              /0      1+            "  +    "  1+  (      2&' *         2                  (       (3  "    0 ( 3    4"( &,-% (     5$    (  6 )   - 777   )!   *  +  8             "              &  (       ,   -! "  *    2  +      % (  (   % (          " .        "      .   /  1 (        '  $     &'  (&   %  $     &' 9   4  :    %   %          6       .  *  +  4 (   1     4)    ( 0  (   %  $       9    2  (      (   (      8    " "( % ur. Styrkur þessi fólst í tilgerð- arlausri umhyggju, dásamlegu gríni, frásagnarlist og virðingu fyrir því sem lætur öllum líða betur; sú virðing sem Vigga kenndi mér og afkomendum mín- um er ókeypis. „Getiði hver kemur í dag?“ Og það var hrópað: „Vigga er að koma, Vigga er að koma!“ Krakkarnir hlupu í kross og settust út á hlað að taka á móti bílnum sem færði þeim Viggu – með hafurtaskið í mörgum litlum töskum. Þannig vildi hún hafa stjórn á innihaldinu. Það var svo fjölbreytt innihaldið. Fyrst voru sparidressin tekin upp, þá fór matartaskan inn í eldhús, svo krullupinna-naglalakks-snyrti- taskan inn á bað. Náttkjóll, treyja og inniskór á sinn stað og – og – og – gotterísboxið! Eld- gamalt kökubox með Viggugot- teríi sem þau mændu á hana stinga upp í efstu hillu. Matartaskan var tæmd þegar Vigga hafði sett upp svuntu og tekið við rekstri eldhússins. Slátrinu skellt í pott, rófustapp- an undirbúin og sunnudagsmatn- um lundanum drekkt í mjólkur- baði. Drögin lögð að rabbabaragraut eða krækiberja- súpu og skyldu heimilisbörn drífa sig út og bera björg í bú, skera rabbabara og tína ber og ekkert hangs. Svo kvöldaði og þá sátum við saman – ég búin að rúlla vinkonu mína, pinnana hafði hún í hárinu í sólarhring – svo sátum við þarna og skröfuðum, reyktum og fengum okkur drykk. Dýrðlegar stundir. Hjónin Vigdís og Hörður áttu lítið sumarhús í holtinu, gegnt Gljúfrasteini, ofanvert í Mosfells- dalnum. Það skríkti í okkur Dunu systur þegar við sáum hvað Hörður „manöveraði“ Síb- eríumöstanginum varlega en þó djarflega við göngustíginn að sumarhöllinni Lyngholti. Sam- gangan var mikil, hist oft á dag, til skiptis hjá þeim Viggu og mömmu. „Vigdís mín, hvað hef- urðu lesið margar bækur eftir mig?“ „Eins margar og þú hefur gefið mér, Halldór minn.“ „Auð- ur mín, hvað hef ég gefið henni Vigdísi margar bækur?“ Það varð dálítil þögn úr eldhúsinu. „Enga, Halldór minn!“ Vigga var þátttakandi í stórum stundum mínum og barna minna. Daginn fyrir ferm- ingu þeirra byrsti hún sig að morgni og sagði: „Það á aldrei að gera neitt skemmtilegt daginn fyrir fermingu.“ „Akkuru?“ „Það er bara svoleiðis. Þið eigið að þegja og hugsa!“ „En ef við ger- um óvart eitthvað skemmtilegt?“ „Þá eigiði líka að skammast ykk- ar!“ Öll fengu þau ný, yndisleg rúmföt að gjöf frá elsku Viggu og sofnuðu „eins og englar“ að kvöldi stóra dagsins. Umvafin ást og umhyggju stórbrotinnar konu, sem nú hvílir sig eftir lang- an dag. Ég votta kærum vinum mín- um, börnunum hennar Viggu og afkomendum þeirra, samúð mína. Blessuð sé minning Vigdís- ar S. Ólafsdóttur. Sigríður Halldórsdóttir. Þegar ég var komin vel á ann- að ár og enn á brjósti þá fannst Viggu nóg komið. Hún sagði mömmu að fara af bæ, eitthvert úr göngufæri. „Farðu bara til Signýjar og láttu ekki sjá þig fyrr en annað kvöld.“ Mamma gerði eins og henni var sagt og þegar hún kom heim sat ég pollróleg á eldhúsgólfinu, í góðu yfirlæti hjá Viggu og gott ef ég var ekki bara að gæða mér á skyrhræring eins og ekkert væri sjálfsagðara. Við Vigga vorum nefnilega al- veg sérstakar vinkonur alla tíð. Þegar von var á Viggu í helg- arheimsókn, tala nú ekki um ef hún var að koma til lengri dvalar í Viggukofa, steinsnar frá heimili okkar í Mosfellsdal, þá var ég að- framkomin af spenningi svo dög- um skipti. Það jafnaðist ekkert á við að fá Viggu í heimsókn. Hún Vigga var tvímælalaust skemmtilegasta manneskja sem ég þekkti. Spenningurinn náði hámarki þegar Vigga renndi í hlað og heimsóknin hófst og ég óskaði þess að tíminn stæði í stað. Á morgnana, þegar Vigga reyndi að sofa fram eftir, biðum við systkinin eins og hundar fyrir framan svefnherbergisdyrnar eftir að Vigga færi á fætur. Á endanum gafst hún upp og hleypti okkur Ara Klængi inn og bauð okkur að velja gotterí úr sælgætisdósinni sem hún hafði alltaf meðferðis. Vigga var einstök manneskja. Hlý og góð, mikill húmoristi og eldklár. Hún var með stríðnisblik í augunum og alltaf að djöflast eitthvað í tiltekt eða fá sér kaffi- sopa og rillu með mömmu, segja ævintýralegar gamansögur og reka upp gól í hvert sinn sem henni fannst eitthvað skemmti- legt, sem var oft. Fýlupokar fengu sungna fyrir sig sérstaka vísu svo ekkert þýddi að halda fýlunni til streitu og hundunum var hótað að snúið yrði upp á eistun á þeim með gömlum ull- arvettling ef þeir hættu ekki að fljúgast á. Á laugardagskvöldum horfði Vigga á kúrekamyndir með mér Auju og Ara, en það var eiginlega skemmtilegra að fylgj- ast með Viggu horfa á heldur en að horfa á myndina sjálfa, slík voru viðbrögðin við atburða- rásinni. Fyrir dálitlu síðan heimsótt- um við mamma Viggu. Þær fengu sér rillu og Vigga spurði frétta. Þrátt fyrir háan aldur var hugur Viggu jafn síkvikur og endranær. Stríðnisblikið var á sínum stað og ég fékk gotterí. Elsku hjartans Vigga mín, ég þakka fyrir samfylgdina. Ég votta elsku Kollu og öllum að- standendum Viggu mína dýpstu samúð. Þín Rannveig Jónsdóttir (Gagga). Það var alltaf stutt í húmorinn hjá Viggu frænku minni, hún var fljót að svara fyrir sig og ótrú- lega skemmtileg og sjarmerandi. Þegar Vigga kom í heimsókn og búin að setja á sig svuntuna, eld- aði hún fyrir okkur uppáhalds- matinn, saltkjötsbollur í kál- bögglum með lauksmjörsósu og öllu tilheyrandi, þessi réttur var kallaður Viggumatur á mínu heimili. Þegar Vigga var hætt að geta eldað fyrir okkur, reyndi ég að elda þennan rétt, en fékk að heyra að þetta væri ekki eins og Viggumatur. Það þýddi ekkert fyrir strákana mína Fróða og Guðmund að vera í fýlu nálægt Viggu. Þá ullaði hún á þá og söng: „Fýlupúki fór af stað, flýtti sér að skunda ofan á gólf og út á hlað og ætlaði svo til hunda, voff, voff.“ Þá skríkti í strákunum og þeir fóru skellihlæjandi inn í her- bergi, búnir að steingleyma fýl- unni. Vigga var fyrir þá eins og besta og skemmtilegasta amma. Þegar við heimsóttum hana á Lindargötuna, var allt á sínum stað fyrir smáfólkið, Andrésblöð- in í svefnherberginu, og gotteríið í skálinni í stofunni. Þó að Vigga ætti 70 afkom- endur, munaði hana ekkert um að bæta nokkrum í hópinn. Hún fylgdist vel með sínu fólki alla tíð og hafði ótrúlegt minni. Nú er kominn tími til að þakka fyrir samveruna og allar skemmtilegu stundirnar með Viggu, í Mosfellsdalnum, í Flat- ey, og Reykjavík. Vertu sæl elsku Vigga mín og takk fyrir allt. Blessuð sé minning Vigdísar Steinu Ólafsdóttir. Arndís Jóhannsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.