Morgunblaðið - 08.08.2013, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 08.08.2013, Qupperneq 40
FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 220. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1.Vélin fór „neðar og neðar“ 2.Nöfn stúlknanna sem létust 3.Erfiður tími á gjörgæsludeildinni 4. Stúlkan miður sín »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Breska dagblaðið Independent gef- ur leiksýningunni Blam!, eftir Krist- ján Ingimarsson og leikhópinn Nean- der, fullt hús stiga í gagnrýni en verkið er nú sýnt á leiklistarhátíðinni Fringe í Edinborg. Í gagnrýninni segir að sýningin hafi slegið óvænt í gegn á hátíðinni og að gestir tiltekinnar sýningar hafi sprottið á fætur í lok hennar og fagnað með látum. Um leikara sýningarinnar segir að þeir séu snillingar þegar kemur að gríni og magnaðir fimleikamenn á sviði. Kristján Ingimarsson og Neander hlutu Sprota ársins á Grímuverð- launahátíðinni í ár fyrir Blam!, í svið- setningu Neander og Borgarleikhúss- ins en verkið var sýnt í Borgarleikhúsinu 3.-7. apríl sl. Blam! slær í gegn á Edinborgarhátíðinni  Tónlistarkonurnar Hafdís Huld, Védís Hervör, Ragga Gröndal og Lára Rúnars halda í tónleikaferð um landið í mánuðinum. Tónleikaferðin er liður í því að kynna starfsemi KÍ- TÓN, félags kvenna í tónlist, og verður haldin kynning á félaginu kl. 17 á hverjum tónleikastað. Fyrstu tónleikar ferðarinnar verða haldnir á Vestfjörðum og Norðurlandi, þeir fyrstu 20. ágúst í Sjóræningjahús- inu á Patreksfirði. 21. ágúst verða haldnir tónleikar í Bræðraborg á Ísafirði, 22. ágúst í Melrakkasetrinu á Súðavík, 23. ágúst á Græna hatt- inum á Akureyri, 24. ágúst á Kaffi Rauðku, Siglufirði, og 25. ágúst á Gamla Bauk, Húsavík. Tónleikarnir hefjast allir kl. 21 og er aðgangur ókeypis. KÍTÓN-konur halda í tónleikaferð Á föstudag Austan og suðaustan 5-13 m/s og rigning, en úrkomu- lítið fyrir norðan. Hiti 10-17 stig, hlýjast fyrir norðan og vestan. Á laugardag Rigning með köflum fyrir norðan. Hiti 8-16 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 10-18 m/s og rigning. Hvassast með suðurströndinni, en suðaustan 8-13 m/s og úrkomulítið norð- austan til. Hiti 9-18 stig, hlýjast fyrir norðan. VEÐUR Keflavík vann sinn fyrsta heimasigur í Pepsideildinni í sumar þegar liðið hafði betur gegn Víkingi Ó. í gær, 2:0. Þar með skildu Keflvík- ingar ÍA eftir á botninum. KR er stigi á eftir toppliði FH eftir 3:1-sigur á Þór á Akureyri. Fylkir hélt áfram á sigurbraut og vann góðan 2:1-sigur á Stjörnunni í Garðabæ, og Valur kom sér í baráttu um Evrópusæti með 4:0-sigri á Fram. »2-4 Keflavík af botni og KR nær toppi Íslandsmeistarar FH í knattspyrnu karla voru ekki langt frá því að slá þriðja andstæðing sinn út í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í gær. FH gerði 0:0 jafntefli gegn Austria Vín í Kaplakrika og þurfti að sætta sig við 1:0 tap samanlagt. FH fær þó keppnisrétt í forkeppni Evrópudeildarinnar í sárabætur. »2-3 FH-ingar ekki langt frá því að komast áfram Íslenska karlalandsliðið í körfuknatt- leik er á heimleið frá Austur-Evrópu með einn sigur og eitt tap í farangr- inum. Liðið kvittaði í gær fyrir stórt tap í fyrsta leik í Búlgaríu með því að vinna góðan sigur á Rúmeníu. Liðið tók strax frumkvæðið og hélt forskoti sínu út leiktímann. Varnarleikurinn var öflugur að sögn Hlyns Bærings- sonar og Hauks Helga Pálssonar. » 1 Öflugur varnarleikur Íslendinga í Rúmeníu ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Jón Heiðar Gunnarsson jonheidar@mbl.is Gönguhópur frá Blindrafélaginu er nýkominn heim úr níu daga fjall- gönguferð. Í ferðinni voru 20 manns en þar mátti finna alblinda, sjón- skerta og fullsjáandi einstaklinga í bland. Hópurinn gekk m.a. upp á Kristínartinda sem eru í 1125 metra hæð og á Snæfell sem er í rúmlega 1800 metra hæð. Alls lögðu þau 60 kílómetra að baki í fjallgöngum og heildarhækkun var um 3500 metrar. Gekk vonum framar „Ferðin gekk framar vonum og við vorum heppin með veður allan tímann,“ segir Kristinn Halldór Ein- arsson, formaður Blindrafélagsins. „Markmiðið var fyrst og fremst að skemmta sér saman og jafnframt að víkka út þægindarými blindra og sjónskerta,“ segir Kristinn. Hann telur marga blinda og sjón- skerta einstaklinga mikla slíkar ferðir fyrir sér og bendir á að fjalla- mennska henti þeim líka vel. „Það var ofboðslega góður andi í hópnum og ótrúlega skemmtilegt að ganga á fjöll í svona góðum félagsskap.“ Engar ofurhetjur Göngugarpurinn Eyþór Kamban Þrastarson segir aðalatriðið að taka þátt í göngunni og bæta sig persónu- lega. „Þetta er bara eins og hvert annað áhugamál og útheimtir ekkert endi- lega að maður sé með góð augu,“ segir Eyþór en hann hefur verið blindur frá fæðingu. „Það er mikilvægt að sýna blind- um og sjónskertum fram á að maður þarf ekki að vera einhver ofurhetja til að geta lagt stund á fjalla- mennsku. Þetta er ekkert mál! Ef maður treystir sér ekki alla leið upp á topp þá snýr maður bara við og fer til baka,“ segir Eyþór. Gangan á Kristínartinda var mjög krefjandi að mati Kristins en grýtt- ur jarðvegur gerði hópnum erfitt fyrir. Hann segir gönguna á Snæfell einnig hafa tekið sinn toll en hún tók heila 11 klukkutíma. „Margir gönguhópar fara hraðar yfir heldur en við og því getur verið gott að ferðast saman á hraða sem hentar okkur,“ segir Eyþór. „Ég get vel hugsað mér að leggja oftar stund á þetta í framtíðinni enda gekk ferðin vel í alla staði og var mjög skemmtileg. Fólk hefur að sjálfsögðu mismikla reynslu af fjall- göngum en enginn í hópnum var ófær um að fara í alvöru fjall- gönguferð.“ Kristinn stefnir á að skipuleggja fleiri sambærilegar fjallaferðir í framtíðinni og var ánægður með að allir skiluðu sér heilir og glaðir heim. Blindir garpar ganga á fjölll  Víkka út þæg- indaramma blindra og sjónskerta Ljósmynd/Kristinn Halldór Einarsson Dugnaður Hópur á vegum Blindrafélagsins gekk upp á topp Snæfells. Fjallið er hæsta fjall landsins fyrir utan jökla. „Þetta fer allt eftir undirlaginu og stundum er betra að labba með tvo göngustafi í hönd í staðinn fyrir að treysta á aðra,“ segir Eyþór Kamban Þrast- arson göngugarpur. Hann sleppti oft takinu á að- stoðarmanninum sínum og treysti á stafina í stað- inn. Eyþór var kominn í mjög góða æfingu við að tjalda eftir ferðina. Hann þurfti oft að setja tjaldið upp og taka það niður enda gisti hópurinn í tjöldum allan tímann. „Þó að ferðin hafi verið frábær í alla staði þá var líka alveg hrikalega skemmtilegt að komast í sturtu eftir langa fjarveru frá hefðbundnum blönd- unartækjum.“ Orðinn mun betri í að tjalda HRIKALEGA GOTT AÐ KOMAST Í LANGÞRÁÐA STURTU Eyþór Kamban Þrastarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.