Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.08.2013, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.8. 2013
Á síðustu stofutónleikum sumarsins á
Gljúfrasteini á sunnudag koma fram þau Daði
Sverrisson, Lilja Dögg Gunnarsdóttir og Þór-
unn Elín Pétursdóttir og flytja tónlist í anda
breska rithöfundarins Jane Austin.
Flutt verða einsöngslög, aríur og dúettar
frá 17., 18. og fyrsta tug 19. aldar. Jane
Austen lék sjálf á píanó og hafði unun af
söng. Tónlist kemur því víða við sögu í verk-
um hennar og var oftar en ekki flutt heima
við. Jane Austen nýtti sér tónlist til að skýra
og skerpa söguhetjur sínar og draga fram
mismunandi andrúmsloft í sögunum. Tónlist-
aratriðin verða öll tengd verkum, sögu-
hetjum og lífi Jane Austen á einhvern hátt.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 á sunnudag.
TÓNLEIKAR Á GLJÚFRASTEINI
ÚR STOFU AUSTIN
Þórunn Elín Pétursdóttir er einn flytjendanna á
stofutónleikunum á Gljúfrasteini.
Morgunblaðið/Sverrir
Haldin verður „Menningarnótt“ í Verksmiðj-
unni á Hjalteyri á morgun, sunnudag, kl. 16-
20, þar sem teiknandi rithöfundar og skrif-
andi myndlistarmenn verða á ferðinni, eins
og það er orðað í tilkynningu. Opnaðar
verða tvær myndlistarsýningar; annars vegar
á verkum Kristínar Eiríksdóttur, hins vegar
Auðar Önnu Kristjánsdóttur og Sítu Val-
rúnar. Upplestrar og gjörningur byrja kl. 17.
Kristín Eiríksdóttir les úr Hvítfeld, Þórarinn
Leifsson les úr handriti á lokastigum: Mað-
urinn sem hataði börn, Auður Jónsdóttir les
úr Ósjálfrátt, Angela Rawlings fer með gesti í
Hljóðagöngu. Á eftir býður Auður Jónsdóttir
upp á stutt kaffispjall fyrir áhugasama um
skapandi skrif.
VERKSMIÐJAN Á HJALTEYRI
ORÐ OG MYNDIR
Einn af stórmeisturum
glæpasögunnar, Banda-
ríkjamaðurinn Elmore
Leonard, lést í liðinni viku
87 ára að aldri. Fyrsta saga
Leonards birtist á prenti
árið 1951 og sextíu árum
síðar var hann enn að
senda frá sér eina bók á
ári, „því það er svo
skemmtilegt,“ sagði hann.
Í byrjun skrifaði Leonard vestra en hann
færði sig síðan yfir í glæpasögur og vakti
mikla athygli fyrir sterka persónusköpun,
svöl samtöl og knappan og vandaðan stíl.
Meðan þekktustu bóka hans eru „Get
Shorty“, „Freaky Deaky“ og „Glitz“.
Bandaríkjadeild PEN-samtakanna heiðraði
Leonard fyrir ævistarfið árið 2009 og voru
bækur hans þá sagðar ekki bara klassískar
spennusögur heldur einhver bestu skrif á
ensku síðustu hálfa öldina.
GLÆPAHÖFUNDUR LÁTINN
LEONARD ALLUR
Elmore Leonard
Tvítugur Akureyringur, Bjarney AnnaJóhannesdóttir, sem gengur undirlistamannsnafninu Sockface, opnar
sýninguna Rat Manicure í Víkinni í dag,
laugardag.
Bjarney Anna gaf nýverið út sína fyrstu
plötu þar sem hún syngur og spilar eigin
lög en hún hefur samið sögur, lög og texta,
teiknað og málað frá unga aldri. Utan um
lögin á plötunni eru byggð mismunandi
rými sem öll eru hugarsmíð Bjarneyjar þar
sem áhorfandinn fær að njóta tónlistarinnar
í einrúmi og verða fyrir sjónrænni upplifun
í leiðinni. Sýningin er hugsuð sem nokkurs
konar umgjörð í kringum plötuna, í stað
úgáfutónleika, en í ljósi þess að Bjarney
spilar bæði á öll hljóðfærin og syngur yrðu
útgáfutónleikar flóknir í framkvæmd. Und-
irliggjandi þráður í sýningunni er skynjun
og upplifun einstaklings á einhverfurófi.
Sýningin er hluti af stærra samhengi, þar
sem verkefnið Rat Manicure samanstendur
af samnefndri plötu sem kom út í apríl síð-
astliðnum og sýningu sem fyrst var sett
upp í Hlöðunni Litla-Garði á Akureyri. Á
Menningarnótt standa yfir tvær sýningar á
verkum Bjarneyjar; myndlist og tónlist
Bjarneyjar er líka að finna í Gallerí Tukt í
Hinu húsinu og stendur sú sýning til 25.
ágúst.
Sýningin í Víkinni verður opnuð kl. 11.00.
RAT MANICURE Í VÍKINNI SJÓMINJASAFNI
Tónlist og sjónræn upplifun
Verk á sýningu Bjarneyjar Önnu.
Bjarney Anna Jóhannesdóttir, t.h., og verkefnis-
stjórinn Anna Gunndís Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
RAT MANICURE ER ÓVENJULEG SÝNING, SEM BYGGIST Á TÓNLIST EFTIR
UNGA KONU Á EINHVERFURÓFI, BJARNEYJU ÖNNU JÓHANNESDÓTTUR.
Menning
Leikfélag Akureyrar býður upp á fjöl-breytt verkefni í vetur og RagnheiðurSkúladóttir leikhússtjóri segir starfs-
fólkið fara keikt inn í leikárið. Hún tók við
stjórninni við mjög erfiðar aðstæður í fyrra en
reksturinn á síðasta leikári var réttum megin
við núllið, sem hún segir hreinlega kraftaverk.
„Við höfðum meiri tíma til að undirbúa leik-
árið núna og breiddin er meiri, bæði í leik-
arahópnum og í verkefnavali. Ég segi eins og
leikhússtjórar gera gjarnan; allir ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi …“ segir hún við
Sunnudagsblað Morgunblaðsins.
Fastráðnir leikarar eru að vísu aðeins þrír í
vetur en voru fjórir áður. Aðalbjörg Þóra
Árnadóttir og Hannes Óli Ágústsson halda
sínu striki og Hilmir Jensson er nýr. Ýmsir
taka þátt í einstaka verki, m.a. gamlar kemp-
ur sem stóðu á sviðinu hjá LA áratugum sam-
an: Þráinn Karlsson, Sunna Borg og Saga
Geirdal Jónsdóttir. María Pálsdóttir, Akureyr-
ingur og einn Pörupiltanna sem vakið hafa
verðskuldaða athygli undanfarin misseri, tek-
ur og þátt í einu verki.
Spennandi verk um Davíð
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi verður áber-
andi í dagskrá vetrarins. Afmælissýningin
verður Gullna hliðið, frumsýnt í janúar, og 1.
mars, þegar 50 ár verða liðin frá andláti
skáldsins, verður frumflutt nýtt verk Útvarps-
leikhússins og LA í Davíðshúsi; hljóðverk í
leikstjórn Viðars Eggertssonar, leikhússtjóra
Útvarpsleikhússins. Höfundur er Árni Krist-
jánsson, verkið verður tekið upp í hljóðveri
Ríkisútvarpsins í Reykjavík þar sem leikarar
LA fara með hlutverkin og flutt sem innsetn-
ing í Davíðshúsinu. Sýningar verða nokkrar
en leikritið verður síðan páskaverk Útvarps-
leikhússins.
Gaman er að segja frá því að á þessu stór-
afmælisári eru tengingar nokkrar við sögu fé-
lagsins; gömlu kempurnar voru áður nefndar,
en í framhjáhlaupi má nefna að Viðar Egg-
ertsson var um tíma leikhússtjóri LA og steig
fyrstu leikaraskrefin á sviði gamla Samkomu-
hússins árið 1969, sem púki í Gullna hliði Dav-
íðs!
Leikárið hefst með gestasýningunni
Blakkát, verki Bjarkar Jakobsdóttir en fyrsta
frumsýningin verður í byrjun október á verk-
inu Sek, eftir Hrafnildi Hagalín, sem skrifaði
verkið sérstaklega fyrir LA. Leikstjóri er
Ingibjörg Huld Haraldsdóttir.
Gullna hliðið verður frumsýnt í janúar sem
fyrr segir. Leikstjóri verður Egill Heiðar Ant-
on Pálsson, sem setti á svið eftirminnilega
sýningu, Leigumorðingjann, í húsinu í fyrra-
vetur.
Lísa og Lísa eftir Amy Conroy í leikstjórn
Jóns Gunnars Þórðarsonar verður frumsýnt í
febrúar. Með hlutverkin tvö fara Sunna Borg
og Saga Geirdal Jónsdóttir.
Söngur hrafnanna, verk Árna um Davíð, er
næst í röðinni. Heimili Davíðs við Bjarkarstíg
er sögusviðið. Í því segir frá undarlegum at-
burðum sem henda skáldið vetrarkvöld þegar
gesti ber óvænt að garði; Pál Ísólfsson og
Árna Kristjánsson píanóleikara.
Sjálfsprottið verk eftir leikhóp LA verður
frumsýnt í byrjun apríl. Leikhópur LA samdi
verkið Ef ég væri jólasveinn á síðasta leikári
og var það flutt fyrir eyfirsk börn við glimr-
andi undirtektir. Hópurinn hyggur nú á annað
verkefni þar sem hugarfluginu er gefinn laus
taumurinn. Verkið verður þannig úr garði
gert að það verður vænlegt til ferðalaga og
verður byggt á eyfirskum þjóð- og draugasög-
um.
Leiklistarskóli LA, sem settur var á stofn í
leikhússtjóratíð Maríu Sigurðardóttur árið
2009, hefur gengið glimrandi vel allar götur
síðan. Tugir krakka taka þátt á hverri önn og
sumir hafa verið með frá byrjun.
Ragnheiður segir skólann, sem og vinnu-
stofur sem LA hefur starfrækt, hafa vakið
mikla athygli.
Leikstjóri frá Ástralíu
„Sam Haren, leikstjóri og höfundur, kemur til
okkar frá Ástralíu til vinnustofudvalar auk
þess að vinna með nemendum leiklistarskól-
ans,“ segir Ragnheiður, en Sam þessi kemur
til Akureyrar á vegum ástralska ríkisins og
dvelur í heilan mánuð í höfuðstað Norður-
lands.
Ástæða þess að Haren kemur eru sambönd
sem Ragnheiður hefur í útlandinu, en ekki
einvörðungu. „Fyrir utan hvað við framleiðum
af leikritum eru vinnustofurnar og leiklist-
arskólinn mikilvægur hluti af starfi félagsins
og þykja satt að segja víða það merkilegasta í
starfi Leikfélags Akureyrar. Áströlunum
fannst þetta mjög spennandi og þess vegna
var Sam áhugasamur um að koma.“
Vert er að geta þess að auki að kvöld-
dagskrá með upplestri á verkum Atla Viðars
Engilbertssonar, sem er listamaður án landa-
mæra 2013, og flutningi á tónlist eftir hann,
er einnig á dagskrá LA nú í haust.
ATVINNULEIKHÚS Á AKUREYRI Í FJÓRA ÁRATUGI
Akureyringar halda keikir
inn í stórafmælisár
Í HAUST VERÐA 40 ÁR FRÁ ÞVÍ
LEIKFÉLAG AKUREYRAR VARÐ
ATVINNULEIKHÚS. AFMÆLISSÝN-
INGIN ER GULLNA HLIÐIÐ EFTIR
SKÁLDIÐ DAVÍÐ STEFÁNSSON FRÁ
FAGRASKÓGI, EINN FJÖGURRA
HEIÐURSBORGARA AKUREYRAR.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Styttan af Davíð Stefánssyni sem er í Davíðs-
húsi. Skáldið verður áberandi í starfsemi LA.
Morgunblaðið/Skapti